Stefnir - 01.05.1962, Síða 13

Stefnir - 01.05.1962, Síða 13
Löggjöf um sveitarstjórn á íslandi hefur ver- ið mjög dreifð, þar lil nú, að' sett hafa verið heildarlög um þessi efni. Komu þau til fram- kvæmda 1. janúar 1962. 1 þessum lögum eru hrepparnir skipulagðir á sama grundvelli og verið hefur, að því er varðar mörk þeirra. Hrepparnir eru mjög mis- stórir bæði að landsstærð og fjölmenni og er síður en svo, að landsstærð og fjölmenni hreppa fari saman að jafnaði. Hér í lögsagnarumdæmi Mýra- og Borgar- fjarðarsýslu, er fjölmennasti hreppurinn t.d. með um 900 íbúa, en sá fámennasti með 85 íbúa. Verður meðaltalið um 200 íbúar í hverjum hrepp. Hreppamörkin hafa hér um slóðir verið hin sömu í höfuðatriðum allt frá fornri tíð. Nokkrar breytingar hafa þó verið gerðar á þeim. T.d. er kunnugt um eina breyt- ingu, sem sennilega er mesta fádæmi. En hún er sú, að einn hreppanna í Mýrarsýslu náði suð- ur yfir Hvítá, sem þó aðgreinir sýslurnar, sem mynda lögsagnarumdæmið. Þetta var Hvítár- síðuhreppur. Svo var málum skipað að Húsafell, sem er sunnan Hvítár og því í Borgarfjarðarsýslu, taldist til Hvítársíðuhrepps í Mýrarsýslu. Hélzt þetta fram á 18 öld. Sést þetta m.a. af bæjarþulu gamalli, sem til er um alla bæi í Hvítársíðu. Hún er svona: Húsafell og tungur tvær Þorvaldsstaðir og Hallkelsbær Kolstaðir og Gilsbakki grær, Þar með slotið Bjarna. Kirkjuból, Hvammur, Haukagil. Hef ég Sámsstaða komið til. Á Háafelli ég hírast vil heldur en Tóftarkjarna. Þorgautsstaðir og Fróðafrón eru frábær hjón. Síðumúli og Veggir varna. Þessi þula er að vísu heldur leirkenndur kveð- skapur, en lnin hefur gildi að því leyti, að hún fræðir okkur um skipan hrepps, þ.e^a.s. hvaða bæir til hans töldust, og því um mörk hans. Eftir sveitarstjórnarlögunum nýju er heimilt að gera breytingar á hreppamörkum, bæði sameina hreppa og skipta þeim. Meginreglan um sameiningu hreppa er sú, að ef íbúatala hrepps hefur verið lægri en 100 samfellt í 5 ár, er viðkomandi ráðuneyti heimilt, eftir til- lögu sýslunefndar að sameina hreppinn þeim nágrannahreppi í sömu sýslu, sem sýslunefnd telur bezt henta. Að því er skiptingu hrepps varðar er aðal- reglan sú, ,að kauptún með 300 íbúa eða fleiri, sem er í hreppi með dreifbýli, sem telur 200 íbúa eða fleiri, hefur heimild til þess að stofna nýjan hrepp. Það er ljóst, að það er ýmsum erfiðleikum háð að halda uppi sveitarfélögum, sem mjög eru fámenn. Er því rétt að hafa þessar heimildir í lögunum. En á hinn bóginn er viðbúið, að menn verði á stundum tregir til þess að leggja niður forn hreppamörk, þótt í hreppnum fækki um skeið. Sú hefur þróunin orðið, að sveitarfélögum hérlendis hefur fjölgað um 60 s.l. rúm 100 ár. Þau voru 169 árið 1845 en munu nú vera 214. Þess skal hér rétt getið, að lögbundið er, hverjir teljast þegnar tiltekins sveitarfélags. — Eru það allir þeir, sem lögheimili eiga í sveitar- félaginu, samkvæmt lögum um lögheimili frá 1960. Það er að sjálfsögðu þýðingarmikið atriði, hvernig þegnum ríkisins er skipt milli sveitarfélaganna. Virðist reglan um lögheimili í alla staði eðlileg við þá skiptingu. Ekki er unnt að skilja svo við þennan þátt, að ekki sé gerð örstutt grein fyrir stjórn sveitar- félaganna, kaupstaðanna og hreppanna. Hrepps- nefnd stjórnar málefnum viðkomandi hrepps. Eru fimm menn í hreppsnefndinni. Hún er kosin STEFNIR 11

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.