Stefnir - 01.05.1962, Page 31

Stefnir - 01.05.1962, Page 31
40% viðurkennds kostnaðar við mannvirkja- gerðina. íþróttanefnd sem hefur stjórn sjóðsins með höndum ákveður styrkupphæðina. Árlegar tekjur sínar fær Iþróttasjóður á fjár- lögum og verða þær í ár 2.250.000.00 kr. A undanförnum árum hafa fjárveitingar til sjóðs- ins verið svo naumar, að hann er langt á eftir með greiðslur sínar. Mun það nú skipta milljón- um króna, sem hann á eftir að greiða vegna íþróttamannvirkja, sem samþykkt hafa verið og byrjað er á. Er það hin óæskilegasta þróun. Væri áreiðanlega betra fyrir alla aðila, meðan ekki fæst hækkun á framlagi ríkisins, að íþrótta- sjóður skæri verulega niður þátttökuhlutfall sitt, en vissa væri þá fyrir hendi um það, að greiðsla kæmi á skaplegum tíma. 3) Með samþykki ráðherra er heimilt að setja á stofn og starfrækja sjúkrahús og aSrar heilbrigðisstojnanir, samanber sjúkrahúsalög nr. 93 frá 1953. I langsamlega flestum tilfellum hefur það orðið hlutskipti sveitarfélaganna að reisa sjúkrahús og annast rekstur þeirra, þar sem það hefur almennt ekki verið á færi annarra aðila. Samkvæmt sjúkrahúsalögum greiðir ríkis- sjóður nú bæjarfélögum sem hafa 3000 íbúa eða fleiri allt % hluta kostnaðar, en öðrum sveitarfélögum allt að % hlutum kostnaðar við að reisa almenn sjúkrahús, sjúkraskýli eða lækn- isbústaði, að fullnægðum nánari skilyrðum, sem lögin greina. Frá þessari meginreglu um greiðslu- skyldu ríkisins er gerð sú undantekning, að greiddir skuli allt að 3/5 hlutar byggingarkostn- aðar, ef í hlut eiga sjúkrahús sem fengið hafa viðurkennigu ráðherra, sem fjórðungssjúkrahús. Sama gildir og um sjúkrahús, sem er sérstak- lega vel búið af tækjum til sjúkdómsgreiningar og meðferðar og hefur fastráðið eða ákveðið að fastráða til starfa nægilega marga lækna til þess að leysa af hendi þau störf, sem eru við hæfi þess, þó ekki færri en þrjá. Það var lengi deilumál hvort telja ætti ýmsan nauðsynlegan útbúnað sjúkrahúsa til byggingarkostnaðar. Með lagabrevtingu 1956 var það mál leyst, með við- unandi hætti fyrir sveitarfélögin, en þar er tek- ið fram að styrkinn skuli miða við kostnað við sjálfa bygginguna, með öllu múr- og nagl- föstu, lagfæringu á lóð og meiriháttar tækjum í eldhús, þvottahús svo og rönkentækjum. Sveitarfélög munu almennt hafa fengið lán hjá Tryggingarstofnun ríkisins til bygginga sjúkrahúsa. Lánsupphæð hefur verið misjöfn en mun þó ekki hafa numið minna en 20% kostn- aðarverðs. 4) Eitt af vandamálum framtíðarinnar verð- ur að sjá fyrir þörfum gamla fólksins. Með ári hverju hefur meðalaldur fólks í landinu farið hækkandi. Lítt vinnufæru, gömlu fólki, mun því örugglega mjög mikið fjölga á næstu árum, fólki sem sjá þarf fyrir á einn eða annan hátt. Ymsir aðilar hafa tekið að sér að koma upp elliheimilum og þannig létt af sumum sveitar- félögum á þessu sviði, en víst er að sveitarfé- lögin munu ekki komast hjá því að reisa fleiri eða færri elliheimili. Skv. lögum nr. 12 frá 1952 rennur nú allt erfðafé í sérstakan sjóð, og skal honum varið til þess að styrkja og lána sveitarfélögum og öðrum félögum og einstaklingum til þess að koma upp vinnuheimilum fyrir öryrkja og gamalmenni, í því skyni, að starfskraftar þeirra komi að sem fyllstum notum fyrir þjóðfélagið. Samanlagðar upphæðir lána og styrkja mega eigi fara fram úr % hlutum kostnaðar. Með lögum nr. 25 frá 1960 var starfssviö erfðarfjársjóðs fært út, svo úr honum má nú einnig lána fé til bygginga venjulegra elliheim- ila. Þar sem sjóður þessi hefur yfir miklu fé að ráða, örugglega svo að skiptir milljónum á næstu árum, mun hann koma að miklum not- um fyrir þau sveitarfélög, sem þurfa að koma upp slíkum heimilum. Ég hef nú minnst á þær framkvæmdir sveit- STEFNIR 29

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.