Stefnir - 01.05.1962, Síða 29

Stefnir - 01.05.1962, Síða 29
J Ó N A S G. R A F N A R, alþingismaður: Fjáröflun sveitarfélaga til framkvæmda Ef sveitarfélag á að gegna hlutverki sínu, kemst það ekki hjá því að standa í margvísleg- um framkvæmdum. Gera má greinarmun á framkvæmdum vegna félags- og heilbrigðismála t.d. skóla- og sjúkra húsabygginga og svo vegna atvinnulífsins t.d. hafnargerðir. Framkvæmdir þessar leiða ýmist beint af lögum, svo er um skólabyggingar, eða þá að sveitarfélag ákveður einhliða hvort í þær er ráðist. Að sjálfsögðu hlýtur það að fara eftir greiðslugetu viðkomandi sveitarfélags, hversu mikið er unnt að framkvæma á ákveðnu tíma- bili. Sé um kostnaðarsama framkvæmd að ræða, hrökkva árlegar tekjur sjaldnast til, og verðúr þá að afla lánsfjár. Um margar helztu fram- Má af þessu mjög draga þá ályktun, að til- laga nefndarinnar um aðeins einn útsvarsstiga, sem gildi fyrir allt landið, fái staðist, án þess að koma fyrirsvarsmönnum nokkurs sveitarfé- lags í vandræði með niðurjöfnun heildarupp- hæðar þeirra útsvara, sem ákveðin hefur verið. Er þetta óneitanlega tæknilega séð mjög æski- leg þróun og ætti að jafna þann meting, sem oft hefur verið milli hinna ýmsu sveitarfélaga um niðurjöfnun útsvaranna og er því ekki að leyna, að það er fyrst og fremst tilkoma Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaganna, sem gerir þetta mögulegt. kvæmdir á vegum sveitarfélaganna, gildir sú regla, að ríkissjóður greiðir nokkurn hluta kostnaðarins, eftir því sem fé er veitt til á fjár- lögum hverju vinni, eða þá á vissu árabili eins og ákveðið er um framlög ríkissjóðs til skóla- bygginga. I öllum þessum tilfellum er um nauðsynlegar framkvæmdir að ræða, svo þýð- ingarmiklar, að rétt er talið að hinn sameigin- legi sjóður landsmanna, ríkissjóðurinn, hlaupi undir bagga. Víst er, að hlutdeild ríkissjóðs hef- gert fámennari sveitarfélögum kleift að koma upp hafnarmannvirkjum og skólabyggingum, sem annars hefði verið þeim með öllu ofviða. Þetta samstarf sveitarfélaganna og ríkisvaldsins, við að koma framfaramálunum áleiðis, hefur að mínu áliti reynzt farsælt. Heimamenn hafa undirbúið og framkvæmt verkin, eftir að leitað hefur verið samþykkis ríkisvaldsins, og undir eftirliti trúnaðarmanna þess. Með því að hafa sveitarfélögin fjárhagslega ábyrg sparast án efa fjármunir, sem hætta er á að annars færu for- görðum, ef ríkið ætti eitt að standa straum af kostnaði. I stuttu máli mun ég nú gera grein fyrir lánsmöguleikum sveitarfélaga, þ.e.a.s. hvaða leiðir þau geti farið til þess að afla sér samn- ingsbundinna lána til framkvæmda — og þá jafnframt ræða greiðsluskyldu ríkissjóðs. Skýrast verður og umsvifaminnst, að taka hvern málaflokk fyrir sig og gera honum sk.il. I lokin mun ég með örfáum orðum minnast á STEFNIR 27

x

Stefnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.