Stefnir - 01.05.1962, Blaðsíða 30

Stefnir - 01.05.1962, Blaðsíða 30
þær lánsstofnanir í landinu, sem sveitarfélögin hafa einna helzt aðgang að. Ég hyrja þá á hinum svonefndu mannúðar og menningarmálum. 1) Samkvæmt lögum nr. 41 frá 1955 um greiSslu kostnaðar vi& skóla sem reknir eru sam- eiginlega af ríki og sveitarfélögum greiðir ríkis- sjóður helming stofnkostnaðar við heimangöngu- skóla harnafræðslustigs og gagnfræðastigs. —- Skólastjórabústaði við heimagönguskóla barna- fræðslustigs greiðir ríkissjóður þó að % hlut- um. Stofnkostnað heimavistarskóla barnafræðslu- stigs og gagnfræðastigs, svo og húsmæðraskóla greiðir ríkissjóður að % hlutum. Megin reglan er því sú, að sveitarfélag og ríki greiða sinn helming kostnaðar, þegar um venjulega skóla er að ræða, en ríkissjóður % hluta af stofnkostnaði heimavistarskóla. Þegar lögin um greiðslu kostnaðar við skóla voru sett 1955, var ríkissjóður orðinn mörgum árum á eftir með sitt framlag, þar sem of lítið hafði verið áætlað á fjárlögum til skólabygg- inga í landinu. Kom þetta sér mjög illa fyrir sveitafélögin, sem reiknað höfðu með hluta ríkissjóðs og þá ekki sízt fyrir þau fámennustu og getuminnstu. Þáverandi menntamálaráðherra, Bjarni Benediktsson, hafði forgöngu um eftir- farandi ákvæði voru sett inn í lögin: „Alþingi ákveður hverju sinni til hvaða skóla- framkvæmda stofnkostnaðarframlög eru veitt, og er ekki heimilt að hefja framkvæmdir fyrr en fyrsta fjárveiting er fyrir hendi. Nú hefur Alþingi samþykkt slíka fjárveitingu, og ákveður það þá einnig, hvernig framlögum skuli háttað framvegis. En skylt er ríkissjóði þó að hafa lokið greiðslu framlaga til hverrar framkvæmd- ar miðað við upphaflega kostnaðaráætlun innan 5 ára frá því er fyrsta framlag var innt af hendi.“ Með þessu var því slegið föstu, að ríkisfram- lagið ætti allt að koma til greiðslu innan 5 ára, eftir að Alþingi hafði með byrjunarframlagi samþykkt viðkomandi skólabyggingu. Var þetta stórvægileg réttarbót fyrir sveitarfélögin, og geta þeir bezt um dæmt, sem staðið höfðu í inn- heimtu á ríkissjóðinn vegna þessara mála oft svo árum skipti. ( Allar síðari breytingar á skólalöggjöfinni hafa miðað að því að lengja skólaskylduna. Þjóðinni hefur og mikið fjölgað, en á afmörkuðu svæð- um, eins og hér við Faxaflóann. Þörfin fyrir nýjar skólabyggingar hefur því verið sérstaklega knýjandi. Framlög sveitarfélaganna og ríkissjóðs vegna þessara mála hafa því sífellt farið hækk- andi, sem sjá má m.a. á því að til bygginga barna- og gagnfræðaskóla voru á fjárlögum 1959 veittar 19,3 milljónir kr. en í ár er áætlað að veita í sömu þarfir 40,3 milljónir kr. Er það meira en helmings hækkun, sem má heita mikil á ekki lengri tíma en þremur árum, þótt verðlagsbreytingar hafi orðið verulegar á tíma- bilinu. Til þess að standa straum af hinum kostnaðar- sömu skólabyggingum hafa sveitarfélögin ekki komist hjá því að leita til hinna almennu lána- stofnanna, banka og sparisjóða. Hefur þá oft verið slegið út á væntanlegt fjárframlag ríkis- sjóðs. Þar sem það getur ekki talizt sérstakt verkefni neinnrar ákveðinnar lánsstofnunnar að lána í þessu skyni hafa bankar og sparisjóð- ir yfirleitt orðið að hlaupa undir bagga. 2) Það er nú orðin verkefni sveitarfélaganna, a.m.k. hinna stærri, að koma upp íþróttamann- virkjum. Só það gert í sambandi við þarfir skól- anna, en íþróttir eru nú skyldunámsgrein, greiðir ríkissjóður á móti í sömu hlutföllum og til skól- anna. Á árinu 1956 voru sett ný íþróttalög. Þar eru ákvæðin um íþróttasjóð lítið breytt frá fyrri lög- um. Bæjar- sveitar- eða sýslufélög geta notið styrks úr sjóðnum til þess að koma upp íþrótta- mannvirkjum og getur styrkveiting numið allt að 28 STEFNIR

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.