Stefnir - 01.05.1962, Blaðsíða 9

Stefnir - 01.05.1962, Blaðsíða 9
istaflokksins — Sameiningarflokks Alþýðu, en það var í Keflavík. Hlutu þeir 83 af 1804 greiddum atkvæðum. Af skýrslum um kjörsókn 1958 má sjá hvar kosningaáhuginn var mestur. Meðalkjörsókn var 82,9%. I kaupstöðunum var hún mest á Sauð- árkróki eða 93,2% en minnst á Húsavík 85%. I öllum 14 kaupstöðunum var meðalkjörsókn 90%. I kauptúnum var hún mest í Ólafsvík eða 94,9%, þar næst í Borgarnesi 93,6% en minnst í Hrísey eða 34,5%. Til þess að geta séð, hvort kjósendur hafa sömu pólitísku viðhorf til sveitarstjórnarmála og landsmálanna hefði ég m.a. þurft að gera samanburð á kjörfylgi hinna einstöku flokka, þar sem boðið var „hreint“ fram, við sveitar- stjórnarkosningarnar og kosningar til Alþingis, en til þess hafði ég ekki möguleika né tíma, þótt fróðlegt hefði verið að fá það atriði hér fram. En eins og ég tók fram hér að framan, mun það vera meginreglan, að þar sem menn hafna 1 stjórnmálaflokki, annað hvort vegna eigin skoðana og sannfæringu eða vegna áhrifa ann- arra, þar heldur hann sig einnig þegar hann greiðir atkvæði sitt við sveitarstjórnakosningu, jafnvel í hinum minnstu hreppum, þar sem raunverulegur ágreiningur um sveitarstjórnar- málin á sér ekki stað. Þó er það svo, að fylgi sumra flokka er meira við bæjarstjórnarkosning- ar en við Alþingiskosningarnar og öfugt. Má nota Reykjavík sem dæmi. Af 35.094 atkvæðum sem greidd voru þar við bæjarstjórnarkosning- arnar 1958, fékk Sjálfstæðisflokkurinn 20.027 atkvæði, en við Alþingiskosningarnar 1959 (haust) fékk hann 16.474 atkvæði af 35.799 greiddum atkvæðum. Hins vegar má geta þess, að fyrir kjördæma- breytinguna var fylgi Sjálfstæðisflokksins í Gullbringu- og Kjósarsýslu mun meira, en það reyndist hjá flokknum við bæjar- og sveitar- stjórnarkosningarnar. Réði þar um að sjálfsögðu hið gífurlega persónufylgi frambjóðanda flokks- ins, Ólafs Thors. Því er ekki að neita, að þróunin í landsmál- unum og viðhorfið til þeirra gætir mjög mikið í sveitarfélögunum og ráða þau oft úrslitum í kosningum til sveitar- og bæjarstjórna. T. d. mun lítill vafi vera á því, að óvinsældir þær sem vinstri stjórnin bakaði sér með úrræðaleysi sínu og fálmkenndu stjórnarfari hafði mjög mikil áhrif í bæjar- og sveitarstjórnarkosning- unum 1958, og afhroð það, sem vinstri flokk- arnir guldu í þeim kosningum, og hinn glæsi- legi sigur Sjálfstæðisflokksins —• eina stjórn- arandstöðuflokksins — átti rætur sínar að rekja til vinstri stjórnarinnar og þeim ófarnaði, sem hún á flestum sviðum leiddi yfir þjóðina. Eftir bæjar- og sveitarstjórnarkosningar hafa flokkarnir tekið upp samvinnu um stjórn bæja- og kauptúna og hefur sú samvinna þá ekki allt- af farið eftir því, hvernig ríkisstjórnin er skipuð eða hvernig samstarfi er háttað á Alþingi eða í ríkisstjórn. Þó virðist reynslan vera sú, að tryggari er samvinnan heima fyrir milli stjórn- arflokka heldur en milli eins stjórnarflokks og eins eða fleiri stjórnarandstöðuflokka. Gætir þar oft áhrifa frá samstöðuflokki eða flokkum ríkisstjórnarinnar hverju sinni. Eins og ég sagði í upphafi, getur þetta efni, „sveitarfélögin og stjórnmálin“, verið svo víð- tækt og margþætt, að erfitt er að ákveða hvað skuli tekið og hvað skuli eftir liggja, þegar taka þarf það í samanþjöppuðu formi í takmörkuSu erindi. Hefði ég viljað gera efni þessu miklu betri skil, en ég hef nú gert, en til þess vannst ekki tími, og bið ég menn virða viljan fyrir verkið og læt því staðar numið.

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.