Stefnir - 01.05.1962, Síða 33
eign ríkisins. Annars hafa verið veitt til þeirra
lán úr raforkusjóði.
Leggi ríkið eitthvað af mörkum vegna fram-
kvæmda sveitarfélaga leiðir það af sér íhlutunar-
rétt þess varðandi viðkomandi mannvirki. I hafn-
arlögum er það t.d. tekið fram í 8. gr. að óheim-
ilt sé án samþykkis ráðuneytis að selja eða veð-
setja fasteignir hafnar- eða lendingarbótar, og
í 8. gr. sjúkrahúslaga að ríkið geti krafizt end-
urgreiðslu á styrk ef sjúkrahús er lagt niður.
Svipuð ákvæði eru í 24 gr. íþróttalaga frá 1956.
Hinar almennu lánastofnanir þjóðarinnar
veita sveitarfélögunum margvíslega fyrirgreiðslu
vegna fjárfestingaþarfar þeirraj
Eftirtaldar stofnanir telja það meðal annars
innan verkahrings síns að veita sveitarfélögum
lán.
a) Tryggingastofnun ríkisins lánar til heilbrigð-
isstofnanna eins og ég hef getið um. í henn-
ar vörzlum er erfðarfjársjóður, sem lánar til
vinnuheimila og elliheimila.
b) Atvinnuleysistryggingarsjóður sbr. lög nr. 29
1946 lánar sveitarfélögum til margvíslegra
framkvæmda, en þó sérstaklega til hafnar-
gerðar. Sjóðurinn mun nú eiga um 300 millj.
kr., þar af í útlánum um 100 millj.
c) Kíkið lánar sveitarfélögum til ýmissa fram-
framkvæmda af atvinnuaukningarfé, sem
veitt hefur verið á fjárlögum. Atvinnuaukn-
ingarféð mun nú vera samtals um 100 millj.
kr. Á síðasta þingi var samþykkt löggjöf
fyrir sjóðinn.
d) Brunabótaf. Islands, sbr. lög nr. 9 1955. Til-
gangur félagsins er m.a. að lána til vatns-
veitna, hitaveitna og sjóveitna eftir því sem
aðstæður félagsins leyfa.
e) Bjargráðasj. íslands, sbr. lög nr. 8 1961, lán-
ar einnig sveitarfélögum undir sérstökum
kringumstæðum.
Á undanförnuni árum hafa sveitarfélög fengið
samþykki ríkisstjórnarinnar til erlendra lántaka
vegna ákveðinna framkvæmda eins og t.d.
Akranes til hafnarframkvæmda. Þá hefur ríkis-
stjórnin einnig í mörgum tilfellum útvegað er-
lend lán, sem hún hefur þá endurlánað til sveit-
arfélaganna. Hafa þessi lán oft verið veitt fyrir
milligöngu Framkvæmdabankans.
STEFNIK 31