Stefnir - 01.12.1984, Side 30

Stefnir - 01.12.1984, Side 30
SUS - STARFIÐ SUS — Starf ið Frá menntamála ráðstefnu SUS á Akureyri. Ráðstefnugestir skoða hús Verkmenntaskólans á Akureyri. Menntamálaráðstefna á Akureyri Þann 17. nóvember síðast liðinn hélt SUS ásamt Verði FUS á Akureyri og Víkingi FUS á Sauðárkróki, ráðstefnu um menntamál. Ráð- stefnan var haldin í Kaupangi, í húsnæði sjálf- stæðisfélaganna á Akureyri. Friðrik Friðriks- son 1. varaformaður SUS setti ráðstefnuna, en síðan flutti menntamálaráðherra frú Ragn- hildur Helgadóttir stutt ávarp. Að því loknu fluttu þeir Atli G. Eyjifsson læknir og Jón H. Magnússon verkfræðingur erindi. Atli fjallaði í máli sínu um starf og niðurstöður þróunar- nefndar Háskóla íslands, en Jón ræddi um tæknivæðingu atvinnulífsins og það hlutverk skólanna, að veita tæknimenntun í samræmi við síauknar kröfur atvinnulífsins. Að loknum hádegisverði heimsóttu ráð- stefnugestir Verkmenntaskólann á Akureyri, en sem kunnugt er flutti hann í nýtt húsnæði fyrr á þessu ári. Skólameistari Verkmennta- skólans vísaði veginn um hinn glæsilegu húsakynni skólans og vakti það m.a. athygli gestanna að nemendur skólans höfðu sjálfir lagt hönd á plóginn, við smíði hússins. Eftir skoðunarferðina hélt svo ráðstefnan áfram í Kaupangi, með erindi Salóme Þorkels- dóttur, alþingismanns, en hún fjallaði um álit nefndar sem skipuð var af Alþingi til þess að gera úttekt á sambandi heimila og skóla. Loks flutti Þorvarður Elíasson, skólastjóri Verslun- arskóla íslands erindi sem hann nefndi: Menntun, - seld þjónusta eða gefin? Þar fjall- aði hann um það hvort þeim peningum sem við íslendingar verjum til sklamála væri eins vel varið og kostur er. Hann taldi svo ekki vera og kynnti hugmyndir sínar um nýtt fyrirkomulag á fjárveitingum til skólamála, allt frá grunnskóla- stigi til háskólastigs. Erindi Þorvarðar vakti mikla athygli og urðu líflegar umræður meðal ráðstefnugesta um tillögur Þorvarðar. Húsfyllir var á ráðstefnunni og urðu fjörugar umræður. Ráðstefnustjórar voru þeir Davíð Stefánsson, formaður Varðar og Ari Jóhann Sigurðsson formaður Víkings. Sambandsráðsfundur Helgina 24 og 25 nóvember hélt Samband ungra sjálfstæðismanna sambandsráðsfund sinn, en fundur af þessu tagi er haldinn annað hvert ár, það ár sem SUS-þing er ekki haldið. Fundurinn var haldinn á Hellu á Rangárvöllum. Viðfangsefni þessa fundar vartvíþætt. í fyrsta lagi var rætt um skipulag SUS og tengsl félag- anna um land allt, við skrifstofuna í Reykjavík. Aðildarfélög SUSeru nú 21 og erfyrirhugaðað stofna fleiri á þessu ári. Meginefni fundarins var þó kynning á starfi vinnuhóps sem stjórn SUS skipaði síðast liðið haust, til þess að gera tillögur um framtíðar- skipan velferðarkerfisins, með það fyrir augum að nýta betur þá fjármuni sem til velferðarmála er varið og einnig kanna nýjar leiðir til að veita nauðsynlega þjónustu á annan hátt en nú er gert. Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur kynnti til- lögur í framfærslumálum, það er almanna- tryggingamálum og starfsemi Iífeyrissjóða. í | máli hans kom meðal annars fram að á síðustu árum hefur það nokkrum sinnum gerst að atvinnuleysisbætur hafa verið hærri en dag- vinnutekjur, svo það hefur jafnvel ekki borgað sig fyrir suma einstaklinga að reyna að sjá fyrir sér og sínum með vinnu. Vilhjálmur benti einnig á að með sama áframhaldi er hætt við að lífeyrissjóðir landsmanna, sem brunnu upp í verðbólgunni og neikvæðum raunvöxtum, geti ekki staðið við skuldbindingar sínar um næstu aldamót, það er eftir 15 ár. Auðun Svavar Sigurðsson hafði framsögu um tillögur hópsins í heilbrigðismálum. Hann fjallaði um það fyrirkomulag sem nú tíðkast gjarnan á heilbrigðisstofnunum, að það eru sameiginlegir hagsmunir lækna og sjúklinga að eyða peningum. Þar veitir einn aðili öðrum þjónustu, og sendir svo þriðja aðila reikning- inn. í niðurstöðum velferðarhópsins svokall- aða er lagt til að í auknum mæli verði farið að nota kostnað sem stjórntæki og lögð áhersla á að neytendum heilbrigðisþjónustunnar sé gerð grein fyrir raunverulegum kostnaði til dæmis vegna lyfjagjafar, jafnvel þótt bein þátt- taka sjúklinga í kostnaðinum yrði lítil sem engin. Einnig taldi Auðun nauðsynlegt að leggja meiri áherslu á fyrirbyggjandi starf í heil- brigðismálum en nú er gert. Eiríkur Ingólfsson, viðskiptafræðinemi fjall- aði um álit velferðarhópsins í menntamálum. Þar er lögð áhersla á að sjálfstæði skólastofn- ana verði aukið og að valfrelsi á milli skólastofn- 26 STEFNIR

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.