Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1927, Síða 30
28
Ó 1 a f s v. Fremur algeng. Mörgum sjúkl. batnar vel án heilsuhælis-
vistar.
P a t r. VirSist fara i vöxt og infl. og misl. spilla til. Af 30 Irerkla-
sjúkl. voru 11 úr Patrekshreppi, 12 úr Rauðasands, 3 úr Barðastrandar
og 4 úr TálknafjarSar.
Þingeyrar. Heldur meiri en áriö áöur. Þó ekki mikil. Allir, sem
veikjast, settir á sjúkrahús.
Flateyrar. Útbreidd. Kirtlaveik börn eru uppspretta berklanna og
þau þarf að herða og lækna. Einangrun sjúkl. á síðari stigum veikinnar
ófullnægjandi. Hefi hvatt fólk til þess að nota lýsi og lýsisbræðing í
stað smjörlíkis og einkum sólböð. Kvenfólk á Suðureyri hefir tekið að
sjer að gangast fyrir notkun sólbaða og fengið til þess nokkurn styrk úr
hreppssjóði. í ráði að reisa sólskýli á hjallanumi fyrir ofan kauptúnið.
í s a f. Piltur, sem í fyrra fjekk eryth. nod„ hefir nú fengið tub.
pulm.
H e s t e y r i. Hennar ekki orðið vart.
Sauðárkróks. Ekki í rjenum. Stundum illkynjuð.
H o f s ó s. Ekki mikil.
S v a r f d. Fylgi þeirri reglu, að telja engan albata, fyr en eg hefi
fengið nokkurnveginn fulla vitneskju um, að ekkert hafi borið á veik-
inni mörg ár samfleytt. Aftur viðbúið, að læknir viti ekki um alla sjúkl.
— Fæstir hjeraðslæknar senda nokkra skýrslu um utanhjeraðssjúkl., sem
til þeirra leita, þó lögboðið sje.
A k. Af 112 dánum dóu 31 úr berklaveiki (6 utanhieraðs). í árslok
eru 186 sjúkl. í hjeraðinu, en aukningin stafar aðallega af Kristneshælinu.
Af sjúkl. voru:
Allvel friskir og vinnufærir ............ 92.
Veikir en færir til ljettrar vinnu ....... 55.
Rúmlægir og sumir dauðvona ............... 39.
Af 186 sjúkl. voru 82 úr Akureyrarkaupstað, Glæsibæjarhv. 24, Saur-
bæiar 15, Öngulstaða 8, Arnarnes 8, Skriðu 5, Hrafnagils 5, Svalbarðs
4, Öxnadals 1, öðum hjeruðum 34.
Ö x a r f. Mikil, og margt hjer af uppkomnu fólki, sem hefir verið
berklaveikt, en hangir nú við þolanlega heilsu.
Þ i s t i 1 f. Siúkl. með flesta móti, en nú rnunu flestir taldir, sem
veikin er augljós í.
Reyðarf. Mikil berklav. 6 dóu úr lungnaberklum og 4 úr heila-
lærklum. Innanhjeraðssjúkl. eru 43.
B e r u f. Erfitt að segja hvort berklav. sje hjer í rjenum eða ekki
Þó fáir sjeu skráðir eitt ár eru margir það næsta árið. Frá 1905 hafa
113 sjúkl. verið skrásettir í fyrsta sinn. Af þeim hafa 52 dáið. Frá
1905—15 voru skráðir 63 sjúkh, 1916—26 46. Munurinn er of litill og
tölurnar oflágar til þess að mikið verið á þeim bygt.
S í ð u. Fleiri sjúkl. en nokkru sinni áður.
M ý r d. Með meira móti.
V e s t m. Mikil hjer 85 skráðir en 12 dóu. Flestir siúkl. eru þó vinnu-
færir. Tvö skólabörn, berklaveik voru látin hætta skólavist.
R a n g. Fer ekki í vöxt.