Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1927, Side 82

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1927, Side 82
veikir e8a 1.9/0 íbúa„ en i Noregi 3.26%í,. Sennilega er talning vor ekki allskostar nákvæm, en líklega ekki öllu lakari en þar. I báðum löndun- um er veikin nokkru tí'öari í bæjum en sveitum, en sennilega stafar það að mestu af geðveikrahælunum. Eftirtektarvert er það, hve mikill mun- ur er á geðveikum konum og körlum hjá oss. Við manntalið 1920 voru geðveikar konur 113, en karlar aðeins 70. Eftir dánartölunum að dæma er ekki svo mikið á munum í Noregi. Tabes dorsalis. Úr þessum sjúkdómi eru 4 taldir dánir hjá oss og má mikið vera, ef sú diagnosis er rjett. Víst er um það, að rnjög fátiður er hann hjer. Eigi að síður eru norsku tölurnar tiltölulega hærri: 0.3:0.7. Epileps ia. Hún sýnist og fátíðari hjá oss (2.2: 3.3) og' má vel vera að svo sje. Því miður eru engar skýrslur til um slagaveika sjúk- linga, sem gætu verið til samanburðar, en veiki þessi er oft kynfylgja og hún ekki góð. Eclampsia infantum er tíðari hjá css og það til muna (18.6: 12.8). Kramparnir eru of'tast aðeins einkenni við ýmsa sjúkdóma og ætti því frekar að telja þá sem banamein en krampana. Annars verður tæp- ast giskað á, af hverju munurinn stafar. Neurast.henia er ekki talin, banamein i Noregi, enda engin ástæða til þess. Það má segja, að skörin færist upp í bekkinn, ef menn deyja úr neurasthenia. Þó eru taldir 7 dánir þessi árin. Hafa eflaust dáið úr öðru. Morbus Basedowúi er hnífjafn í báðum löndum, enda ekki sjaldgæfur hjer. Paralysis gleneraílis er nokkur í Noregi, en engin hjá oss. Munu þess enn engin dæmi, að hjer hafi fundist sjúklingur með þann kvilla, enda engir taldir dánir. F—G. E y r n a- o g augmasjúkdómar. Sjúkdómar í þessum líffærum eru ekki taldir í banameinaskrá Norð- manna. Hjer er talið að 3 hafi dáið úr eyrnakvillum og má það vel rjett vera. H. S j ú k d ó' m a r í andfsqru m. A þessum ])ýðingarmikla flokki er undarlega mikill munur (206.5: 121.5), þegar slept er bronch. acuta, sem ekki er sambærileg, því Norð- menn telja bronch. ac. epidemica og non epidemica i einu lagi en vjer í tvennu, þó hæpin sje sú skifting. Hjer er þá nálega helmings munur. sem athuga þarf nánar. Sjúkdóma í nefi og barkakýli telja Norðmenn ekki sjer- staklega. Miklu máli skifta þeir ekki. Kvefsótt telja skýrslur þanoig, að dáið hafa árlega að meðaltali á 100.000 íbúa: ísland J3-3 7.2 Noregur j 19-7 Bronchitis acuta epid. .. Bronchitis ac. non epid. Samtals 20.5 19.7

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.