Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Blaðsíða 21

Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Blaðsíða 21
Fjarðarfréttir 21 REIKNISTOFA HAFNARFJARÐAR HF. REYKJAVÍKURVEGI 60 HAFNARFIRÐI sími 54344 Við bjóðum tilbúin tölvuvcrkefni fyrir hvers konar fyrirtæki og stofnanir, svo sem: Bókhald Launabókhald Viðskiptamannabókhald Lagerbókhald Verðskrár fyrir heildsölur og smærri fyrirtæki Gjaldendabókhald fyrir sveitarfélög og ýmis önnur sérhönnuð verkefni. Getum einnig boðið: Rekstrarráðgjöf og hönnun á nýjum tölvuverkefnum. Leitið upplýsinga hjá okkur að Reykjavíkurvegi 60 eða hringið og við komum á staðinn. Verslunin ÖRK Úrval jólakorta — jólapappír Gr SP N° oQ 5V- VeV o<ó Barbie »\' p Wce Verslunin ORK Verslanamiðstöðinni, Miðvangi sími: 54333 Nýr lestrarsalur opnaður í Bókasafni Hafnarfjarðar Þann 4. nóvember sl. var formlega opnaður nýr lestrarsalur á efri hæð Bókasafns Hafnarfjarðar. Fjöldi gesta var við athöfnina og þáði veit- ingar í boði Bókasafnsins. For- maður Bókasafnsins, Snorri Jóns- son, flutti ávarp, þar sem hann lýsti í stuttu máli sögu safnsins og að- dragandanum að opnun nýja salar- ins. Fjarðarfréttir fengu leyfi Snorra til að birta hluta úr ávarpinu. Þann 18.okt., s.l., voru 60 ár liðin frá því bókasafn Hafnarfjarð- ar tók til starfa. Aðalhvatamaður að stofnun þess var Gunnlaugur heitinn Kristmundsson sand- græðslustjóri og kennari. Gunn- laugur var ötull maður og ósérhlíf- inn og hugsaði lítt um eigin hag, þegar áhugamál hans voru annars vegar. Um hann og verk hans við uppgræðslu örfoka lands var sagt, að engum embættismanni í þjón- ustu ríkisins hefði orðið jafnmikið úr jafnlitlum fjárupphæðum og þeim, sem hann fékk til umráða við það mikla brautryðjanda og þjóð- nytjastarf sem hann vann á sviði sandgræðslunnar. En áhugi Gunnlaugs fyrir bóka- safninu og málefnum þess er best lýst með því, sem fram kom í verkum hans. Hann var í bóka- safnsnefnd frá 1922- þ.e., frá upp- hafi til dauðadags 1949 eða í 27 ár. Allan þann tíma var hann gjaldkeri safnsins og annaðist um innkaup bókanna og tók aldrei eyri fyrir. Við þessi tímamót í sögu safnsins er við hæfi að rifja upp í örstuttu máli nokkur atriði úr sögu þess jafnframt því sem reynt verður að skyggnast ofurlítið fram í tímann. Bókasafnið fékk í fyrstu til af- nota húsnæði í gamla barnaskól- anum við Suðurgötu, sem nú er ekki lengur ofan moldu. fyrst var það aðeins lítið herbergi en síðar kennslustofa. Þarna var það til húsa í ein 16 ár hygg ég, því 1938 var það flutt upp á efri hæð í austurálmu Flensborgarskólans, sem þá var ný- byggt hús uppi á Hamarkotshamri og tok þar til starfa í október- mánuði, þau húsakynni þóttu rúm- góð á þeirra tíðar mælihvarða. Þar var 80 m2 bókageymsla og 50 m2 lestrarsalur. Frá opnun nýja lestrarsalarins. Árið 1950 veitti bæjarstjórn lóð undir sérstaka bókhlöðubyggingu, það er Ióð sú sem þessi bygging stendur á hér við Mjósundið sem á þeim tíma var ein breiðasta gata bæjarins þrátt fyrir nafngiftina. Byggingarframkvæmdir á lóðinni hófust þó ekki fyrr en 1955 og húsið sem fyrst var teiknað var ein hæð með háu risi, en gert var ráð fyrir annarri hæð síðar. En þegar byggingin var hafin þótti ráðlegra að steypa upp tvær Snorri Jónsson flytur ávarp sitt hæðir í sama áfanga, þar sem menn gerðu ráð fyrir, að bókasafnið þarfnaðist stærra húsnæðis áður en langt um liði. Skólanefnd Iðnskólans fór fram á það að fá hæðina leigða undir skólann. Tókust um það samn- ingar, að skólinn fengi efri hæðina til leigu í 10 ár frá hausti 1957. Komst efri hæðin fyrr i notkun en bókasafnshæðin, því hún var ekki að öllu tilbúin fyrr en um vorið 1958 að hún var vígð daginn fyrir 50. afmælisdag bæjarins. Iðnskólinn var nú hér lengur en umsaminn leigutími gerði ráð fyrir, því að hann var hér til húsa á hæð- inni fram á vordægur 1973 eða í 16 ár. Fékk safnið þá hæðina til afnota og var þá hafist handa um innrétt- ingu fyrir tónlistardeildina — (Friðriksdeild) sem búið hafði við þröngan eða nánast engan kost á neðri hæðinni. Deildin flutti svo í núverandi húsnæði sitt í apríl 1974 og vil ég segja, að hún hafi verið stolt safnsins æ síðan. Með opnun tónlistardeildarinnar er lokið fyrsta áfanga í nýtingu þessarar hæðar í þágu Bókasafns- ins. En í dag fögnum við öðrum áfanganum — þessum lestrarsal sem nú sitjum við í. Það er átta árum síðar og sannarlega ekki vonum fyrr. Smiðum glugga og hurðir. Vönduð vinna á hagkvarinu verði. Gerum lilboð og veilum nánari upplýsingar, ef óskað er. Hafnfirðingar! Við bjóðum ykkur velkomin í VÖRCJHÚSIÐ: Gjafavörur og leikföng á jólamarkaðnum. Góðar vörur á góðu verði. Dömufatnaður af öllum Lítið inn á leið ykkar í stærðum. Mikið úrval af barna- jólainnkaupin. fatnaði °9 öðrum fatnaði. SKOÐIÐ — SJÁIÐ — SANNFÆRIST VÖRUHÚSIÐ Trönuhrauni 6 sími 51070
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.