Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Blaðsíða 40

Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Blaðsíða 40
40 Fjarðarfréttir MIKIL GROSKA OG GOÐUR ARANGUR Hópur frjálsíþróttafólks FH fyrir framan þrekmiðstöðina. Þar æfa þau einu sinni í viku við betri aðstöðu en víðast annars staðar, að eigin sögn. í rúman áratug hefur verið unnið mikið og gott uppbyggingarstarf innan Frjálsíþróttadeildar FH. Þetta starf hefur verið að skila sér á síð- ustu árum, og í dag á FH fjölmarga frjálsíþrótttamenn og konur í fremstu röð á íslandi, ekki síst í yngri aldurshópunum. Það er ekkert launungarmál að maðurinn á bak við þennan árangur er Haraldur Magnússon, sem verið hefur við stjórnvölinn hjá Frjálsíþróttadeild FH allan þennan tíma. Fjarðarfrétt- ir fengu Harald til að svara örfáum spurningum um starf deildarinnar á árinu sem er að liða, og fer spjallið hér á eftir. Ertu ánœgður með árangurinn í sumar? Já, það hefur verið mikil gróska hjá okkur og árangurinn ekki látið á sér standa. Ég er hæstánægður með krakkana. Hvað ber hcest varðandi árangur- inn? Landsliðsfólkið okkar hefur verið mikið í sviðsljósinu. Guðmundur Rúnar, hástökkvari, og Ragnheiður Ólafsdóttir, hlaupari, sem unnu bestu afrek FH-inga í sumar, sam- kvæmt stigatöflu, tóku þátt í lands- keppni í sumar og stóðu sig með prýði. Auk þeirra kepptu í landsliði 1982, Sigurður Pétur Sigmundsson langhlaupari, en hann er íslands- methafi í öllum helstu hlaupum fyrir ofan 10 km. og bróðir hans Einar Páll Guðmundsson millivega- lengdarhlaupari, Hafnarfjarðarmet- hafi í 400 m. og 800 m. hlaupum. Millivegalengdarhlauparinn okkar Viggó Þ. Þórisson átti besta tímann í 800 m. hlaupi og hefði því átt að vera valinn i landslið ungl- inga. Úti í Svíþjóð bjó piltur með íslenskan ríkisborgararétt og var hann valinn af FRÍ þótt hann væri búinn að keppa á sænska meitara- mótinu og því ólöglegur. Auk þess hafði hann lakari tíma en Viggó — refskák það. Þá hefur unga fólkið ekki brugðist, er það? Nei, það brást ekki, ótal sigrar og metaregn hjá þeim líka. Eins og undanfarin ár voru unglingar frá okkur valdir til þáttöku í Andrésar Andar-leikunum, en þeir eru haldnir fyrir krakka af Norðurlöndunum á aldrinum 11-14 ára. í þetta sinn voru það: Finnbogi Gylfason, 12 ára sem keppti í 800 m. hl. og lang- stökki og stóð sig frábærlega vel og Linda Björk Loftsdóttir, 14 ára. Hún keppti í Langstökki og 60 m. hlaupi og stóð sig með ágætum. Bæði eiga þau íslandsmetin í sínum aldursflokki Finnbogi 5.08 m. og Linda 5.45 m. Nú, og þið fóruð í keppnisferð til útlanda. Gekk hún ekki vel? Já, FH-ingar lögðu land undir fót og fóru í keppnis og æfingarferða- lag til Kölnar í V-Þýskalandi. Ferðin tókst í alla staði mjög vel og lögðum við grunninn að veru okkar í 1. deildinni með þessari ferð. Þeir sem gerðu ferðina mögulega voru Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, Kaup- félag Hafnarfjarðar, Steypustöðin auk annarra velunnara og þökkum við þeirrra innlegg. Bræðurnir Einar og Sigurður Pétur. Þið náðuð góðum árangir í Bikar- keppni FRI, ekki satt? Jú, það var mikill hasar hjá okkur í bikarkeppninni í 1. deild, en þar keppa 6 lið. Sú breyting var gerð að tvö lið féllu í 2. deild og kom það í hlut Borgfirðinga og Ármenninga, munaði engu að FH-ingar hrepptu 3. sætið en aðeins skildu 4 stig HSK og FH. í fyrsta skiptið fórum við yfir 100 stig í bikarkeppninni. Síðan tókuð þið þátt í bœjar- keppni. Er það ekki nýbreytni í starfinu? Jú, þetta skemmtilega keppnis- fyrirkomulag var tekið upp í sumar og efnt til bæjarkeppni við Kópa- vog. í flokki 14 ára og yngri unnum við 14 greinar af 16 og keppnina með rúmlega 30 stiga mun. í full- orðinsflokki unnnum við með litlum mun, enda nýbúnir að keppa í bikarkeppninni og lögðum þar allt undir. Það mætti segja að liðið hafi verið í sárum eftir keppnina. Búið þið við góða aðstöðu til œfinga og keppni? Það má segja að aðstaðan sé þokkaleg, a.m.k. ef miðað er við hve stutt er síðan farið var að sinna frjálsíþróttafólkinu á nýjan leik hér í Hafnarfirði. Það sem háir starfsemi okkar FH-inga helst er að okkur vantar vindmæli upp á Kaplakrika og há- stökksdýnur. Við þurfum að halda bæjarkeppnina við Kópavog næsta sumar upp á Kaplakrika og yfir þann tíma þyrftum við að hafa lög- legar aðstæður fyrir keppnina. Hafið þið notið stuðnings bæjar- yfirvalda? Hafnfirðingar eru íþróttaunn- endur, áreiðalega á heimsmæli- kvarða. Bæjarstjórnin hefur sýnt það oft og mörgum sinnum að þeir eru sama sinnis og bæjarbúar. Til dæmis má nefna ferðir okkar fólks til útlanda í sumar. Þessar ferðir hefðu aldrei verið mögulegar ef Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og Æskulýðsráð hefðu ekki stutt jafn frábærlega við bakið á okkur og þeir hafa gert. Slíkur stuðningur er nær aldrei metinn í peningum. Oft er talað um blómatímabil í íþróttum og sagt að íþróttafólk blómstri ef árangurinn er góður. Frjálsar íþróttir hafa átt sín blóma- skeið hér í Hafnarfirði, og ekki fer á milli mála að eitt þeirra stendur nú yfir. Ætli vísan hans Haraldar sé ekki táknræn fyrir þetta? Rósir fölna, falla í mold flögra blöð til skýja. Ólgar lífið, elur fold, aðra rós upp nýja. Þrennt af unga fólkinu i frjálsíþróttadeild FH hafa þarna tekið við verð- laununum fyrir unnin afrek. Með þeim Lindu B. Loftsdóttur, Guðmundi Karlssyni og Viggó Þ. Þórissyni er Sigurður Helgason, útbreiðslustjóri FRÍ. Ragnheiður Ólafsdóttir, „Garpur FH 1982“ og margreynd landsliðskona. GARPAR FH 1982 LFm langt skeið hefur besta frjálsíþróttafólk FH verið verðlaunað sérstaklega. Þau sem hljóta flest stig fyrir eistakt afrek í karla- og kvennaflokki fá verðlaunagrip, sem FH-ingar kalla Garpaverðlaun, eða ,,Garpinn“, og titill verðalaunahafanna er því GARPUR FH. Garpur kvenna 1982 er landsliðskonan kunna Ragnheiður Ólafs- dóttir. Gefandi ,,Garpsins“ er Guðlaug Kristinsdóttir. Garpurinn í Karlaflokki er hástökkvarinn og landsliðsmaðurinn Guðmundur Rúnar Guðmundsson, hann hefur unnið til ,,Garpsins“ 5 sinnum og er því eigandi bikarsins. Gefandi ,,Garpsins“ er Oliver Steinn Jóhannesson. Stigahœstir FH-inga 1982 voru eftirtaldir: Guðmundur R. Guðmundsson hástökk 2.03 m. 882 stig. Eggert Bogason kringlukast 50.16 m. 875 stig Sigurður P. Sigmundsson 5000 m. 14:50.2 mín. 862 stig. Einar P. Guðmundsson 800 m. 1:54.36 mín. 849 stig. Magnús Haraldsson 800 m. 1:55.27 mín. 832 stig. Sigurður Haraldsson 800 m. 1:59.4 mín. 758 stig. Viggó Þ. Þórisson 800 m. 2:00.3 mín. 743 stig. Ragnheiður Ólafsdóttir 800 m. 2:07.9 mín., 1500 m. 4:23.2 mín 957 stig. Lára S. Halldórsdóttir Hástökk 1.63 m. 865 stig. Kristjana Hrafnkeisdóttir Hástökk 1.60 m. 834 stig. Guðrún Gunnarsdóttir Spjótkast 41,52 m. 790 stig. Linda Björk Loftsdóttir Langst. 5.45 m. 782 stig. Súsanna Helgadóttir 400 m. 64.0 sek 660 stig. Á ÆFINGU í ÞREKMIÐSTÖÐINNI: Sigurður Haraldsson, Linda B. Ólafsdóttir Hreiðar Gíslason Anna Haraldsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fjarðarfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.