Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Page 41

Fjarðarfréttir - 01.12.1982, Page 41
Fjarðarfréttir 41 Bikarkeppni sundsambandsins: SH í I. deild Bikarkeppni Sundsambands íslands í 2. deild fór fram í sundhöll Hafnarfjarðar helgina 12-14 nóv. sl. Á föstudagskvöld var keppt í lengstu greinunum, en á laugardag kl. 16.00 flutti bæjarstjóri ávarp en síðan var keppni fram haldið. Fljót- lega kom í ljós að um geysiharða keppni var að ræða, Bolvíkingar tóku strax forystu, en Hafnfirðingar og Ármenningar skiptust á um 2 og 3 sæti og þegar keppni lauk á laugardag var U.M.F.B. í 1. sæti með 94 stig, S.H. með 86 stig og Ármann 85 stig. Eftir að keppni hófst á sunnudag ríkti gífurleg spenna í Sundhöllinni, því þá strax fóru U.M.F.B. og S.H. að skiptast á um 1. og 2. sætið og réðust ekki úrslit fyrr en í síðustu greininni, sem var 4x100 m fjórsund karla þar sem S.H. sigraði of hlaut 1. sæti með samtals 170 stig í öðru sæti varð U.M.F.B. með 164 stig, í 3 sæti Ármann með 133 stig í 4 sæti K.R. með 87 stig, í 5. sæti B sveit Ægis með 46 stig, í 6. sæti Keflavík með 18 stig, en Afturelding hlaut ekkert stig. S.H. féll niður í 2. deild 1978 en þá var komin mikil deyfð í félags- starfi en æfingar héldu þó áfram og þáttaka í mótum, en i litlu mæli miðað við fyrri tíma. Haustið 1981 er hin kunni sundkappi Guðmundur Ólafsson ráðinn þjálfari og ávann hann sér strax trausts og virðingu sundfólksins enda lét árangurinn ekki á sér standa, því að á þeim mótum sem S.H. tók þátt í á s.l. vetri náðist mjög góður árangur og nú síðast að sigra í 2. deild og þar með að komast í 1. deild. Innan S.H. eru einstaklingar sem eru í fremstu röð meðal sundfólks á ís- landi, og ríkir því mikil bjartsýni með árangur í framtíðinni. Einar I. Halldórsson, setur keppnina. Eins og fram hefur komið, hefur félagsstarfið átt mjög erfitt upp- dráttar, kemur þar til aldur barn- anna sem stunda æfingar er á bilinu 8-18 ára og æfingar eru tímafrekar, en til að efla samheldni og ánægju- legt félagslíf, er þáttaka foreldra nauðsynleg og hefur nú myndast traust samstaða foreldra sem gengið hafa í félagið og taka þátt í stjórn þess. Þetta hefur nú þegar borið árangur og hefur færst mikil gróska í félagslífið og mikill samhugur ríkj- andi. Stjórn Sundfélags Hafnarfjarðar skipa, Magnús B. Magnússon, Birna Bjarnadóttir, Lovísa Trausta- dóttir, Sólveig Baldursdóttir og Guðmundur Geir Jónsson. Samtímis bikarkeppninni var haldið þjálfaranámskeið í Víði- staðaskóla á vegum S.S.Í. Aðal- kennar var Áke Hansson, en hann er þjálfari sænska unglingalands- liðsins. Námskeiðið sóttu um 70 nú- verandi og verðandi þjálfarar víðs- vegar af landinu. Námskeiðið þótti takast mjög vel og einnig voru þátt- takendur sérstaklega ánægðir með allan viðurgjörning sem foreldrarnir í S.H. höfðu veg og vanda af. É-ff ■■ . ■ *í: f Frá sundkeppninni. Hreingerningar! Teppa- og húsgagnahreinsun Reykjavíkur Gerum hreint í hólf og gólf, svo sem íbúðir, stigaganga, fyrirtæki og bruna- staði. Veitum einnig viðtöku teppum og mottum til hreinsunar. Móttaka á Lindargötu 15. Margra ára þjónusta og reynsla tryggir vandaða vinnu. ■ Opplýsingar í símum: 23540 og 54452 Viltu breyta til? Hárgreiðslustofan CARMEN Miðvangi 41 — sími 54250 Ath.: Opið á laugardögum kl. 9-12 r Hvers vegna er tvöföld límimg GLER . LOFTRÚM MILLIBIL ★butyllím RAKAEYÐINGAREFNI ÁLLISTI SAMSETNINGARLÍM 1) Állisti - breidd hans ræður loftrúmi á milli glerja og er hann fylltur með raka- eyðingarefni. 2) Butyllími er sprautað á hliðar állistans. Butyllímið er nýjung sem einungis er í einangrunargleri með tvöfaldri límingu. Butyl er 100% rakaþétt og heldur eigin formi - hvað sem á dynur! 3) Rúðan er samsett. Butylið heldur glerinu frá állistunum og dregur þannig úr kuldaleiðni. 4) Yfirlíming, Thiocol.gefur glerinu í sem teygjanleika og viðloðun, sem heldur rúðunum saman. Við hvetjum þig til þess að kynna þér í hverju yfirburðir tvöfaldrar límingar eru fólgnir. Þeir leggja grunninn að vandaðra og endingarbetra einangrunargleri, sem sparar pér vinnu og viðhaldskostnað er á líður - tvöföld líming er betri Einangrunargler með tvöfaldri limingu - eini framleiðandinn á Islandi GLERBORG HF DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRÐI - SÍMI 53333 V

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.