Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1988, Page 73

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1988, Page 73
Ýmismál Fjallað var um notkun freonefna og skýrslu, sem Jakob Kristinsson, lektor, hefur unnið að tilhlutan nefndarinnar um notkun þessara efna. Var talið nauðsynlegt að kanna notkun freonefna enn frekar í plastiðnaði hér á landi. Nefndin sendi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra bréf og bauðst til þess að semja drög að reglugerð, er skyldi takmarka notkun freonefna í úðabrúsa. Ágreiningur reis milli tveggja umboðsaðila um það, hvort enskt fyrirtæki mætti skrá samsetningar, sem innihalda permetrin hér á landi. Skar nefndin endanlega úr þessum ágreiningi. Fjallað var um ákvarðanir á glýkóalkalóíðum í kartöflum og hættu á eitrunum af þeirra völdum. Einnig var rætt um etýlkarbamat (úretan) í áfengum drykkjum, en efni þetta telst vera krabbameinsvaldur. Rætt var um hættu, sem stafað gæti af notkun glóðarkola (grillkola), og merkingar á slíkum kolum. Nefndin fjallaði einnig um hugsanlega merkingu á stofuplöntum, sem valdið gætu eitrun og/eða ofnæmi. Var það gert samkvæmt tilmælum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Nefndin xtrekaði fyrri tillögur sínar þess efnis, að sett yrðu í reglugerð ákvæði um skráningu fúavamarefna og sótthreinsiefna. Lyfjaeftirliti ríkisins voru kynntar rannsóknir, sem benda eindregið til þess, að órótsýra gæti verið krabbameinshvati (promotor) í dýratilraunum, ef dýrum er gefið krabbameinsvaldandi efni. Siglingamálastjóra var sent bréf þess efnis, að varhugavert væri til frambúðar að nota metanól í áttavita í íslenskum skipum. Nefndin vann að tillögum um skráningu markgilda fyrir ýmis eiturefni og hættuleg efni í nokkrum tegundum matvæla og sendi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Upp kom, að tetraklóretýlen væri flutt ólöglega til landsins og ályktaði nefndin um það mál. Nefndin ræddi vandamál í sambandi við notkun tjöruefna til vetrarúðunar á gróðri, enda eru þekktir krabbameinsvaldar meðal þessara tjöruefna. í Danmörku og Finnlandi er nú bannað að nota tjöruefni í þessu skyni. Rætt var við framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda um framkvæmd ákvæða 8. gr. reglugerðar nr. 157/1987, en sú grein varðar bensín til eldsneytis. Nefndin hafði forsögu um gerð tillagna varðandi bann við notkun PCB efna. Var gefin út reglugerð síðla ársins, sem var í stórum dráttum samhljóða tillögum nefndarinnar að þessu lútandi. Nefndin fékk í bréfi ábendingu frá tveimur læknum, er vöruðu við notkun súlfíts í matvælum vegna hættu á óþoli í næmum einstaklingum. Beindi nefndin þeim 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.