Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1992, Page 88
lagi hefur samsetning íbúaQölda í hverju héraði, og þá sérstaklega
aldurssamsetning, áhrif á hve oft íbúar svæðanna þurfa á þjónustu að halda. Þá
hefur hver læknir og annað starfsfólk sinn hátt á í lækninga- og forvarnarstarfi og
síðast en ekki síst er mjög mismunandi hvenær hver og einn íbúi telur tilefni til að
leita á náðir heilsugæslunnar og vera kann að mismunandi hefðir skapist í
samskiptum íbúa og starfsfólks heilsugæslustöðva í mismunandi byggðarlögum.
í stað þess að bera saman einstakar heilsugæslustöðvar eru borin saman
læknishéruð á myndinni hér á eftir.
Mynd 7.2
Hér er eingöngu litið á viðtöl og vitjanir lækna til þess að hugsanleg vanskráning
trufli þennan samanburð sem minnst. A landinu í heild voru að meðaltali 2,2
viðtöl/vitjanir lækna á íbúa árið 1989-1992. Höfuðborgarsvæðið er langt undir þessu
meðaltali með 1,6 samskipti á íbúa. Fjöldi samskipta á íbúa voru einnig undir
meðaltali á Reykjanesi en talsvert yfir meðaltali á Vesturlandi, Norðurlandi vestra,
Austurlandi og Suðurlandi. Norðurland eystra var nærri landsmeðaltali.
Ástæða þess að samskipti við heilsugæslustöðvar miðað við íbúafjölda eru færri á
höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi en annars staðar er sennilega sú að á
höfuðborgarsvæðinu er meira framboð af annarri heilbrigðisþjónustu utan
sjúkrahúsa en annars staðar á landinu. Þar má nefna sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna og sérfræðinga. Flest samskipti á íbúa eru við heilsugæslustöðvar á svæðum
fjarri höfuðborgarsvæðinu.
í september 1974 og í október 1981 var gerð könnun á samskiptum við
heilsugæslustöðvar á landsbyggðinni. Safnað var upplýsingum um öll samskipti við
stöðvar utan höfuðborgarsvæðisins í eina viku. Heildarfjöldi samskipta á ári var
áætlaður út frá könnununum. Samkvæmt þeim áætlunum voru 3,5 samskipti á íbúa
árið 1974 og 3,6 árið 1981. Hér er reiknað með öllum skráðum samskiptum nema
símtölum (Ingimar Einarsson, o.fl. 1984, bls. 228 og Skrifstofa landlæknis 1978, bls.
20). Samkvæmt þessum áætlunum voru heldur fleiri samskipti árin 1974 og 1981 en
árið 1990 og kann ástæðan að vera sú að heildartölur voru áætlaðar út frá aðsókn í
september og október en aðsókn að heilsugæslustöðvum er nokkuð mismunandi eftir
84