Kvöldvaka - 01.02.1934, Side 12

Kvöldvaka - 01.02.1934, Side 12
10 KVÖLDVAKA altarinu. En hinn tilvonandi eiginmaður brosti. Brúðkaupsdagurinn rann upp heiður og fagur. Kirkjan var troðfull af forvitnum áhorfend- um. Ungu elskendu.rnir stóðu fyr- ir framan altarið og presturínn hjelt ræðu um ást og trúfesti í hjónabandinu, en þeir eiginleik- ar eru sjaidgæfir meðal leikara. Kenneth Harlan leit niður á ástmey sína með háðsiegu augnaráði og starði fast á hana. Daufur roði færðist yfir andlit hennar og gerði hana ennþá yndislegri. Er þau komu út vir kirkj- unni, var sigurgleði á andliti brúðgumans. En unga konan sagði háalvarleg: •Veistu hversvegna jeg roðn- aði? Það var af því að jeg hugsaði um, hverskonar maður það væri, sem jeg var að gift- ast«. EÐLILEGT. Reiður elskhugi: »En hvernig i ósköpunum gastu látið mig bjóða þjer alt mögulegt og »fjolla« við mig að staðaldri í hálfan mánuð, án þess að láta mig vita að þú værir trúlofuð, ogættir von á kærastanum hing- að_á morguii?« Stúlkan: »Jeg var bara að reyna áður en hann kœrni hvernig það væri að vera ast- fangin«. BRJEF LÆKNISINS. Hjónin höfðu boðið nýkomna lækninum heim, en fengið al- veg ólæsilegt svarbrjef. »Jeg get ómögulega vitað eft- ir þessu brjefi, hvort læknirinn ætlar að koma eða ekki«, sagði frúin. »Farðu þá í lyfjabúðina, þar hljóta þeir að geta lesið hrafna- sparkið h tns« sagði húsbóndinn. Frúin fór með brjefið í lyfja- búðina. Afgreiðslumaðurinn leit snöggvast á það og fór siðan inn í bakherbergi. Efcir dálitla stund kom hann fram aftur og fjekk frúnni flösku um leið og hann sagði: »tvær og fimmtiu, frú«! MISSKILNINGUR. , Bóksalinn hafði tekið unga stúlku sjer til hjálpar í jóla- * önnunum. Viðskiftamaður kom nú í búðina og bað um bók Hamsuns, »Síðasti kaflinn*. »Síðasti kaflinn«, endurtók ungfrúin fyrir Innan borðið. »Hjer seljura við ekki einstaka kafla úr bókunum, þjer verðið að neyðast til að kaupa aila bókina«.

x

Kvöldvaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvöldvaka
https://timarit.is/publication/1533

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.