Börn og menning - 01.04.2007, Page 6

Börn og menning - 01.04.2007, Page 6
4 Börn og menning békmenntir Guðrún Hannesdóttir „Hver var að hlæja?" Áðurflutt á menningarhátíðinni Krakkar úti í mýri, í Norræna húsinu, 28. september 2006. „Það var kvöld eitt að vetri til, að ég sat á rúmi mínu og sötraði heitu mjólkina. í rúminu var kettlingur að leika sér að hnykli. Fyrir framan rúmstokkinn stóð lítill þvottabali. Allt í einu veltist hnykillinn ofan í balann og kettlingurinn á eftir. Ég skellihló, en vissi ekki fyrr til en húsbóndinn rekur mér rokna kinnhest og missti ég skálina með mjólkinni og hún fór í mola. Þótt mörgum kunni að virðast atvik þetta fremur spaugilegt en alvarlegt, misþyrmdi það og önnur lík sálarlífi mínu." Þessi smákafli úr æviminningum Ólínu Jónasdóttur er sannarlega raunalegur og varð mér furðu áleitinn. Upphaflega var ætlun mín með þessu erindi að skima eftir gleðinni og tína til fjörugar vísur úr vísnaheimi íslenskra barna. En þegar leitað er að ákveðnu munstri er ekki óvanalegt að allt annað munstur birtist óboðið fyrir augum manns. Fyrr en varði var ég farin að einblína á dapurlegar vfsur úr efninu sem ég hef safnað. Endurminningar frá bernskuárum Það hefur trúlega ruglað mig í ríminu og orðið til þess að ég setti kíkinn fyrir „dapra" augað, að ég hef undanfarið verið að skoða mér til gamans sumt af því efni sem skrifað hefur verið um bernskuna á (slandi á liðnum öldum. Þó rannsóknir séu ekki viðamiklar hérlendis eru þær um margt stórmerkar. Það á meðal annars við um einsögurannsóknir síðustu ára sem nota frásagnir einstaklinga af huglægri reynslu sinni, frásagnir úr dagbókum, bréfum og ævisögum og þar á meðal eru endurminningarfrá bernskuárum. Þar rakst ég á fjölmargt sem varpaði Ijósi á hlutskipti barna áður fyrr og ég ætla að láta kallast á við vísur um svipað efni. Það er kunnara en frá þurfi að segja að oft var íslenskri þjóð vart hugað líf í landinu. Því má ef til vill halda fram að hér hafi rfkt meiri „fátæktarjöfnuður" en í öðrum löndum en víst er að frá upphafi vega háðu börn og fullorðnir á íslandi sameiginlega baráttu upp á líf og dauða, baráttu við þrotlausa fátækt og óblíða náttúru. Slysfarir, sóttir eða eitt harðindaár gátu, eins og við vitum, skipt sköpum fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Aðstæður kvenna, mæðranna, voru hinar erfiðustu, barneignir tíðari og barnadauði algengari en annars staðar í Evrópu, einangrun, þunglyndi og þrældómur þeirra meiri. Um miðja nítjándu öldina er talið að nálægt 35% allra ungbarna hafi fallið í valinn á fyrstu æviárunum samkvæmt sumum heimildum. Börn hafa því mátt þola tíðan systkinamissi. Missir annars foreldris eða beggja hafði iðulega í för með sér margfalda sorg þar sem börnin misstu þá einnig heimili sitt, voru sett í fóstur eða urðu þegar verst lét niðursetningar sem máttu þola manna mesta vinnuhörku og refsigleði. Um fóstur og flæking íslenskra barna mætti skrifa langt mál og hefur það verið gert. Eftir að hafa sökkt mér dýpra niður í þessi fræði lá við sjálft og munaði ekki miklu að ég kallaði erindið einfaldlega: „Þyngra en tárum taki ... ". Hlátur Það er haft fyrir satt og bornar fyrir því vísindalegar mælingar að börn nútímans hlæi fjögur hundruð sinnum á dag. En eins og frásögnin af hlátri Ólínu hér í byrjum ber með sér var spaugilegri hliðum tilverunnar ekki alltaf gert hátt undir höfði. Fæðan var meðal þess sem var graf- alvarlegt mál og á eilífum hungurmörkum varð að viðhafa mestu varúð bæði til orðs og æðis ætti ekki illa að fara. Blátt bann var víða við að hlæja yfir mat og alls ekki mátti syngja yfir honum. Fólk klæddist brynju harðýðgi og kreddufestu til að bægja frá sér kjarkleysi - og kvíða. Þetta bitnaði á þeim óhörðnuðu sem áttu að temja sér slíkt hið sama til að komast af. Leikjum barna voru t.d. þröngar skorður settar sem stöfuðu ekki einungis af tímaleysi og plássleysi: ekki mátti ganga aftur á bak því þá var verið að ganga móður sína ofan í gröfina; væri gengið með hendur fyrir aftan bak teymdi maður skrattann; ekki mátti gretta sig, það afskræmdi Guðs mynd og varast skyldi að sveifla handleggjunum, með því fældi maður burt góða engla. Sennilega eimdi hér lengi eftir af píetismanum sem dæmdi alla gamansemi óguðlega. Vísurnar sem ég hef valið eru húsgangar

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.