Börn og menning - 01.04.2007, Side 12

Börn og menning - 01.04.2007, Side 12
10 Börn og menning minnar hafi snúist um einelti. Til dæmis sagan um Litlu Ljót þar sem vondu systurnar sungu hástöfum: Þú ert ijót Litla Ljót við erum fríðar. Þeim var refsað harkalega að lokum sem mér fannst aldrei jafn fullnægjandi og lok sögunnar um Stubb. Svo var það Tobbi túba sem hin hljóðfærin gerðu gys að vegna þess að hann spilaði aldrei alvöru lag. Hörðust af öllum var þó sagan um holgóma drenginn sem hin börnin hæddust stöðugt að og sparkaði að lokum í hundinn. Greinilega er hræðsla mannsins við einelti frumstæð, úr því að barnasögur eru svona þrungnar af henni. Það þarf ekki að koma á óvart. Maðurinn er félagsvera og um það snýst sagan um Stubb auðvitað líka. Stubbur er einungis einn en bræðurnir tveir og þar með lendir hann utangarðs. Sagan er því útlagasaga eins og margar áhrifamiklar sögur og henni lyktar með að Stubbur er tekinn ínn í það samfélag sem skiptir hann mestu máli, samfélag stóru bræðra hans. Hefndin er ekki aðalatriðið hjá Stubbi heldur að vera hluti af mannfélaginu. Sú þörf virðist liggja djúpt í tilfinningalífi mannsins og þess vegna eru útlagasögur gjarnan sárar, erfiðar og átakanlegar, sérstaklega fyrir börn. Hræðslan við útlegð virðist vera frumstæð og sammannleg. Fantar eru eftirsóknarverður félagsskapur í sögunni um Stubb koma bræðurnir Óli og Pétur í fyrstu fyrir sem hreinræktaðir fantar sem hafa það eitt hlutverk að vera vondir við Stubb og útiloka hann frá bræðralagi sínu. Samt er málið ekki svo einfalt því að Stubbur sækist greinilega eftir því að vera með þeim bræðrum, ekki aðeins að éta eplin eða læra í skólanum. Óli og Pétur eru því ekki aðeins andstæðingurinn heldur einnig hnossið í sögunní og vinátta þeirra er það sem Stubbur þráír. Hann sleppur fyrst við magaverk, vingast svo við hund og að lokum eignast hann tvenn ný föt. En þó að allt sé þetta gott er það ekki hið endanlega markmið hans eða árangur. Það er vináttan við Óla og Pétur og sögunni lyktar á farsælan hátt þegar hún er fengin. Þetta er óvenjulegt mynstur sem gerir söguna að mörgu leyti áhugaverðari en ævintýrin þar sem systkinin þrjú eru fyrst og fremst keppinautar en hnossið er eitthvað annað. í þessu tilviki renna andstæðingurinn og hnossið saman og þar með nær þessi einfalda saga að snúa rækilega upp á formgerð ævintýranna, eins og Propp lýsti henni forðum. Hérsést hvernig einfaldar sögur geta stundum verið mjög flóknar og skapað alveg nýtt ævintýraform. Áðurnefndri sögu um Stúf og bróður hans lýkur þannig að Stúfur er orðinn stærri en Stóri-Pétur sem hleypur þá burt og felur sig. Það er engu líkara en eineltið haldi áfram þó að valdahlutföll hafi breyst. Á hinn bóginn eru Óli og Pétur ekki aðeins andstæðingur Stubbs heldur eftirsóknarverður félagsskapur. Það er að sumu leyti mun ánægjulegri niðurstaða að vondu bræðurnir fái ákveðna uppreisn æru í lokin. Sagan um Stubb tekur afstöðu með innlifun og samkennd. í Ijós kemur að það býr gott í Óla og Pétri og þá geta þeir glaðst sem trúa á hið góða í manninum. Það mun hafa gilt um fimm ára drenginn sem ég hitti fyrir nokkrum árum og þegar talið barst að Stubbi tilkynnti hann mér hátíðlega að Óli og Pétur hefðu í raun og veru verið góðir þegar allt kom til alls. Það þótti honum greinilega farsæll endir. Farsæl endalok Sagan um Stubb er þannig lymskuleg að því leyti að hún snýst á yfirborðinu um hvernig Óli og Pétur hafna Stubbi og taka enga ábyrgð á honum. En þvert á gömlu Hammurabilögin sem enn voka yfir mannfélaginu eins og illskeyttur draugur geldur hann ekki líku líkt því að í sögulok tekur hann ábyrgð á þeim. Þó að Stubbur hafi unnið sigur í keppninni og niðurlægt bræður sína vill hann eiga þá áfram, öfugt við það sem

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.