Börn og menning - 01.04.2007, Page 15

Börn og menning - 01.04.2007, Page 15
Stúlkan á bláa sportbílnum 13 NANCY oq grisíra leyndtókniá CAROLYN KEENE fyrir þegar Nancy er í ham. Þannig má segja að hin hefðbundu kynjahlutverk snúist að vissu leyti við í bókunum um Nancy þar sem karlmaðurinn sýnir eilífa aðdáun og þolinmæði en konan stjórnar því hvernig sambandinu líður og er ekkert að flýta sér að festa ráð sitt. Ef valið stendur milli þess að dansa við Ned eða komast í hann krappann þá er það ekkert sérlega erfitt fyrir Nancy, hún velur alltaf ævintýrin umfram öryggið. Fjölskylduleyndarmál og erfðagripir Hvað uppbyggingu varðar eru Nancy- bækurnar miklar formúlubækur, ákveðnir þættir koma fram aftur og aftur í bókunum. Iðulega glímir Nancy viðtvö mál í sömu bókinni sem síðan tengjast á óvæntan hátt, hún fær mjög oft viðvörunarbréf frá ónafngreindum aðilum þess efnís að best fari á þvi að hún hætti við rannsókn málsins (sem hún tekur auðvitað aldrei til greina) og hún tengist iðulega viðkvæmum skjólstæðingum sínum vinaböndum. Skjólstæðingar hennar eru oftar en ekki konur sem eiga einhverra hluta vegna um sárt að binda og Nancy kemur inn í líf þeirra eins og riddarinn á hvíta hestinum og bjargar málunum. Sögurnar snúast líka oft um einhverskonar fjölskylduleyndamál og þá ekki síst tengingu við erfðagripi sem fela í sér sögu og hafa tilfinningalegt gildi fyrir viðkomandi, en í fyrstu bókunum fær Nancy viðkomandi grip oft að launum og stendur þannig bókstaflega uppi sem sigurvegari með bikarinn í höndunum. Einnig er áberandi hversu mjög hraðinn f frásögninni eykst þegar líða tekur á og miklar upplýsingar koma oft fram undir lokin, glæpamennirnir játa iðulega án mikillar pressu og þannig mætti áfram telja. Bláklædd fyrirmynd Nancy er ekki bara ævintýragjarn dugnaðarforkur, hún er líka einstaklega falleg og kemur vel fyrir við nánast öll tækifæri. Lýsingar á útliti hennar eru samkvæmt stöðluðum hugmyndum um fegurð en þó er reynt að gefa henni útlitseiginleika sem vísa til beggja kynja og þar kemur ekki síst til aðdáun hennar á bláa litnum. Hún á bláan bíl og er iðulega í bléum fötum, en blái liturinn var jú talinn hefðbundinn strákalitur og er líklegast enn, að minnsta kosti hafa íslenskar stúlkur aldrei verið bleikari. Og þó Nancy láti sér ekki allt fyrir brjósti brenna hvað varðar lausnir glæpamála er hún ekki síður á heimavelli þegar kemur að heimilishaldi en hún heldur utan um allt sem því viðkemur ásamt ráðskonunni, enginn eldar betri mat og fáir standast henni snúning þegar kemur að ýmiskonar handavinnu. Það er kannski það sem hefur gert Nancy að heillandi fyrirmynd, hún getur allt, hún getur haldið utan um mörg verkefni í einu og stjórnað öllu í kringum sig eins og herforingi en samt verið óskaplega kvenleg og átt kærasta. Hún er líka góð í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, hvort sem það eru íþróttir eða blómaskreytingar, hún hefur afskaplega víðtæka þekkingu, hún er alltaf best, hún skarar alltaf framúr. Þannig má segja að hún sameini á vissan hátt eiginleika sem tengdir eru kynjunum samkvæmt hefðbundnum skilgreiningum, í persónu hennar birtast klárlega bæði karllægir og kvenlægir eiginleikar. Heimska Ijóskan og strákastelpan í raun má segja að vinkonur Nancyar, þær Bess og Georgía árétti þessa tvíræðni í persónusköpun hennar. Bess er Ijóshærð og með kvenlegt vaxtarlag, hún er frekar rög og trúgjörn og svo flissar hún heil ósköp og hugsar bara um stráka og mat. Georgía er hinsvegar stráksleg, grannvaxin og vöðvastælt og notar tungumálið iðulega eins og karlmaður og svo heitir hún George á ensku sem er karlmannsnafn samkvæmt hefðinni. Þannig má segja að vinkonurnar standi fyrir ákveðnar staðalhugmyndir, heimsku Ijóskuna og uppátækjasömu strákastelpuna en þá hugmynd má líka til dæmis greina í persónu Georgínu í Fimm- bókunum eftir Enid Blyton en hún heitir einmitt líka George í frumtextanum. Nancy er einhversstaðar þarna mitt á milli og skreppur að vissu leyti undan skilgreiningunum. Verndari smáborgaralegra gilda Það má segja að útlit og framkoma skipti miklu máli fyrir persónusköpun í bókunum, útlitið vírðist aldrei blekkja í sögunum um Nancy og persónueinkenni birtast iðulega á yfirborðinu. Góða fólkið er fallegt og sviphreint og vondu karlarnir eru gjarnan svipljótir, dónalegir og grófir í framkomu og síðast en ekki síst eru þeir iðulega dökkir

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.