Börn og menning - 01.04.2007, Page 16

Börn og menning - 01.04.2007, Page 16
14 Böm og menning á hörund og gefa gjarnan lítið fyrir reglur millistéttarinnar. Þó að líta megi á Nancy sem einhverskonar femínista sem sættir sig ekki við hefðbundnar hugmyndir um kynin þá er hún einnig verndari smáborgaralegra gilda þar sem andstæðingar hennar eru iðulega af lægri stétt og öðrum kynþætti. Hún er þannig að vissu leyti verðugur fulltrúi stéttar sinnar f sögunum og í raun fulltrúi afturhaldssamra gilda. Það er f vissum skilningi hennar hlutverk að vernda mörkin milli hinna ríku og hinna fátæku sem reynast iðulega vera mörkin milli hinna góðu og hinna vondu, það er hennar hlutverk að vernda auðæfi yfirstéttarinnar fyrir gráðugum lýðnum. Það má líka segja að þrátt fyrir mikið sjálfstæði í hugsun og vinnbrögðum þá þurfi hún oftar en ekki hjálp annaðhvort föður síns eða kærastans til að klára málin sem hún vinnur að, þeir koma oft og bjarga málunum og árétta þannig að þrátt fyrir allt er það karlmaðurinn sem hefur valdið. Þetta flækir persónugerðina enn frekar. Nancy er þannig í raun bæði fhaldssöm og róttæk. Draumar hvítrar millistéttar Eftir á að hyggja er Nancy er ekki alveg jafn fullkomin og hún virtist vera í minningunni. Hún hefur engan húmor og er algerlega laus við það að vera fyndin og orðheppin. Svo er hún líka oft afskaplega smáborgaraleg, það sem hún segir og gerir endurspeglar oft hina hvítu millistétt samtíma síns, hún er til dæmis illa haldín af kynþáttafordómum. En þess ber að gæta að bækurnar endurspegla ekki samfélagsástandið eins og það var í raun og veru, heldur má frekar segja að hér birtist hugmyndir og draumar hinnar hvítu millistéttar um samfélagið. Þegar bækurnar koma fyrst út í Bandaríkjunum er kreppan THE MESSAGE 1N CAROLYN KEE mikla um það bil að skella á þjóðinni með tilheyrandi fátækt og atvinnuleysi en ekki er hægt að sjá ummerki um þetta samfélags- hrun í bókunum um Nancy. Hún hefur alltaf næga peninga milli handanna og vinnur ekki við neitt, hún á alltaf réttu græjurnar, réttu fötin fyrir öll tækifæri, fínan bíl og þar fram eftir götunum. Það er auðvelt að sjá slíkt Iff f hillingum þegar maður er barn, hver vill ekki sleppa við brauðstritið og leika sér að því að leysa dularfull mál með ótæmandi bankareikning að vopni? Hugmyndin sem að baki liggur er væntanlega sú að faðir Nancyar standi undir rekstrinum á dóttur sinni en það kemur sjaldnast beinlínis fram enda myndi það rýra ímynd hennar töluvert. Þó að Nancy komist auðvitað oft í hann krappann er umhverfi hennar þannig í raun mjög öruggt og heimurinn kemst alltaf í réttar skorður í lok hverrar bókar. Og það er líklegast það sem er svo heillandi við Nancybækurnar, heimurinn kemst í uppnám, hrist er upp í viðteknum hugmyndum sem síðan eru áréttaðar og allt fellur í Ijúfa löð að lokum. Höfundur er bókmenntafræðingur

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.