Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 22

Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 22
20 Börn og menning Um bækur Ingólfur Gíslason Er nauðsynlegt að þrífa fyrir afmælisveislur? Afmæli prinsessunnar eftir Per Gustavsson Hvenær hófst prinsessufárið? Ég er ekki að meina prinsessuna á bauninni eða prinsessur í gömlum ævintýrum, heldur prinsessuna sem neysluvöru og imynd fyrir ungar stúikur. Hvað er það sem fær þær til að lifa í endalausum prinsessudraumi allt frá tveggja eða þriggja ára aldri? Að minnsta kosti er Ijóst að enginn skortur er á fötum, dúkkum, teiknimyndum og öðrum varningi þarsem gælt er við einhvers konar prinsessuímyndir. Hin staðlaða prinsessa, og þar á ég við ímyndina sem börnunum er innrætt að þrá, er falleg og klædd í bleikt og í sínum dapurlegustu myndum bíður hún eftir þvi að prinsinn komi og bjargi henni eða að minnsta kosti að góður maður komi og veiti henni rétta prinsessumeðferð með tilheyrandi dekri. Bækur Pers Gustavsson, Svona gera prinsessur og Afmæli prinsessunnar, eru einskonar lítið andóf gegn einkennum staðalprinsessunnar. f þeim er prinsessan hvorki lítillát né hógvær. Hún bíður ekki eftir að karlmenni komi henni til hjálpar eða skapi henni örlög heldur tekur hún málin í eigin hendur og það er hún sem bjargar prinsinum sem hún svo giftist. Afmæli prinsessunnar hefst á því að prinsessan ætlar að halda afmæli. Hún þarf að byrja á því að þrífa veislusalinn af því að það var ekki nógu vel gert í fyrra. Læðist þá að fullorðnum lesanda grunur um að nú eigi að kenna mikilvægi þrifnaðar og samviskusemi en annað kemur reyndar í Ijós í lok bókar. Prinsessan undirbýr afmælið sjálf og í veislunni þarf hún að hlusta á langar ræður. Þá skiptir máli að lita út fyrir að vera áhugasöm, segir í textanum. Hérna stingur höfundur örsmátt gat á merkingarvefnað veruleikans eða yfirborð hans. Hann tekur sér stöðu með barninu eða lesandanum og býður upp á ofurlítið samsæri. ( Ijós kemur að gleymst hefur að bjóða galdrakarli nokkrum í veisluna. Hann hefnir sín með því að galdra gestina burt og prinsessan verður að fara og bjarga þeim. Bæði í leiðangrinum og í lokauppgjörinu við galdrakarlinn sýnir prinsessan samskipta- snilld og vingast við andstæðinga sína. Viðureigninni við galdrakarlinn lýkur með því að hann nær áttum. Ég tel þetta stóran kost þegar litið er til hinna ýmsu barnabóka, til dæmis frá Disney-samsteypunni, þar sem viðureignir enda með þvf að þeim vonda er hreinlega refsað með barsmíðum, sem dæmi má nefna bókina Litli úlfur og gervigrisinn sem var send heim óumbeðið. Að öllum átökum loknum fer prinsessan í heitt bað og ákveður að geyma þrifin til næsta árs. Sá boðskapur er ekki lítils virði. Höfundur er stærðfræðingur

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.