Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 24
22
Börn og menning
verður forvitinn um hvernig þessi æpandi orð
tengjast sögunni sjálfri.
Ævintýri og raunsæissaga
Sagan er blanda af ævintýri og raunsærri
sögu. Amma sem getur flogið eins og
fuglinn er ekki til í raunveruleikanum, en
duglegar ömmur eru víða og geta pottþétt
handsamað verstu glæpona. Vissulega eru
vasaþjófar bíræfnir en þessir eru eiginlega
ósýnilegir þangað til amma nær tangarhaldi
á þeim. Hún leysir iíka atvinnumál hinna
vesölu þjófa og allt fellur í Ijúfa löð.
Björk Bjarkadóttir hlaut íslensku
myndskreytiverðlaunin Dimmalimm fyrir
Ömmu i sumaiiríi. Um bókina og verðlauna-
afhendinguna sagði Aðalsteinn Ingólfsson
meðal annars:
Höfundur bókarinnar hefur vakið athygli
dómnefndar allar götur frá því stofnað
var til Dimmalimm-verðlaunanna. Hann
semur texta sína jafnan sjálfur og
meðfram þeim þróar hann sérkennilegan
og ísmeygilegan frásagnarstíl sem fer bil
beggja milli barnateikninga og evrópskrar
myndlistar, ekki síst súrrealisma.
Höfundurinn fer vel með rými bókarinnar,
teygir myndir sínar og texta vítt og breitt
um síður með skemmtilegum hætti og
hefur við á að tæpa á margvíslegum
þáttum þannig að glöggur lesandi verði
að bera sig eftir þeim, í stað þess að láta
allt liggja í augum uppi (Morgunblaðið,
28. nóvember 2006).
Björk er vel að þessum verðlaunum komin
og lesendur vona áreiðanlega að fleiri bækur
um súperömmu og Óla eigi eftir að koma út
á næstu árum.
Höfundur er framhaldsskólakennari