Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 27

Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 27
Ég er ekki dramadrottning 25 Álfrún Pálmadóttir Ég er ekki dramadrottning eftir Sif Sigmarsdóttur Ég er ekki dramadrottning er unglinga- eða steipubók. Ég verð að viðurkenna að þegar ég byrjaði að lesa bókina gerði ég mér ekki miklar vonir. Bókin kom hins vegar verulega á óvart og ég lagði hana ekki frá mér fyrr en ég var búin. Ég varð þó fyrir nokkrum vonbrigðum með aðalpersónuna, hina 13 ára gömlu Emblu, sem er í rauninni mikil dramadrottning! En hey, hver er það ekki? Ég er ekki dramadrottning er ekki svona týpisk unglingabók þar sem oft eru annað hvort endalaus vandamál eða allt gengur ekkert smá vel. Hún er eiginlega svona mitt á milli. Það sem Embla lítur á sem vandamál, er ekki vandamál, það er fjölskylda! En þegar maður er á þessum aldri vill maður ekki eiga pabba með aflitað hár og tattú, syngjandi ástarpopplög, og ekki heldur mömmu sem ætlar að skrifa bók um allt niðurlægjandi sem maður gerði þegar maður var lítill. Ofan á allt Embla að flytja til London í heilt ár! Frá vinum sínum og draumaprinsinum GK, eða Gangandi Kynþokka, þegar hún loksins hefur náð augnsambandi eftir að hafa verið á höttunum eftir því síðan í 5. bekk. Embla ætlar því að reyna að fá mömmu sína og Hafstein sambýlismann hennar ofan af þessari hugmynd með því að sannfæra þau um ömurleikann við að búa í London, þegar þau fara einn mánuð að prófa hvernig lífið þar er og sjá hvort þeim likar það. Til liðs við síg fær hún Tinnu, bestu vinkonu sína og Braga og Kalla, sem búa í London. En eftir að hafa sjálf kynnst borginni áttar Embla sig á því að það verður enginn heimsendir þótt hún flytji til London í eítt ár og hún áttar sig líka á því að GK er ekkert endilega þess virði að bíða eftir. Sif Sigmarsdóttir lýsir mjög vel þeim hugmyndum sem unglingar hugsa og framkvæma á aldrinum 13-15 ára. Hún er góður rithöfundur og við lesturinn beið ég spennt eftir framhaldinu í bókinni, hvað Embla myndi gera næst til þess að hrella foreldra sína og hvernig hún brygðist við öllu sem foreldrar hennar gerðu. Þetta var mjög fyndið og það væri gaman að heyra meira af þessari dramadrottningu. Sagan gerist á einum mánuði og að þessum mánuði loknum (og því miður bókinni líka) hafði Embla lent i heílmiklu og tekið nokkrum breytingum þótt hún væri enn sama dramadrottningin og enn jafn óánægð með ákvarðanir foreldra sinna. En hey, hver er það ekki? Höfundur er grunnskólanemi

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.