Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 32

Börn og menning - 01.04.2007, Blaðsíða 32
30 Börn og menning Harpa Jónsdóttir Nokkrir nýlegir barnadiskar og ein nótnabók Langlíf perla Barnalög - Mig langar að læra Öll lögin og textarnir á disknum Barnalög - Mig langar að læra eru eftir Kristján Hreinsson, nema textinn við puttalagið, en hann er byggður á alþekktum leik og þulunni um fiskinn fagra í sjónum. Rannveig Káradóttir syngur lögin virkilega fallega og af tilfinningu, textaframburður er almennt skýr þó að s-in séu stundum svolítið tilgerðarleg. Hljóðfæraleikurinn er fagmannlegur og vandaður en einfaldur, enda er það tekið fram á umslaginu að hugmyndin sé að leyfa texta og laglínum að njóta sín og skilja eftir rými fyrir áslátt barnanna sem hlusta. Lögin eru einföld, fyrst og fremst falleg en ekki sérlega frumleg.Yfir þeim er hlýlegur norrænn andblær, þau minna stundum á sænska vísna- og barnatónlist án þess þó að vera eftirlíking. Það besta við þessa plötu eru textarnir. Lögin þjóna þeim og gera það vel. Sumir eru fjörugir og skemmtilegir eins og „Langavitleysa" og „Ferðalagið", aðrir eru hjartnæmir og fallegir eins og „Sandkassinn" sem fjallar um ást á leikvellinum og „Afakvæði" sem segir frá afa á himnum. Á umslagi disksins er talað um yngstu börnin og leikskólana og starfsfólki þeirra þökkuð frábær störf og vil ég hér með nota tækifærið og taka undir það! En ég held að diskurinn eigi erindi við börn f yngstu bekkjum grunnskólans ekkert síður en leikskólabörnin. Góðir textar og vönduð tónlist eiga erindi við alla auk þess sem aðeins einn textinn er beinlínis aldurstengdur, „Mig langar að læra", en þar er Ijóðmælandinn ekki búinn að læra að lesa. Það er þó teygjanlegt, því ekki læra allir að lesa á sama aldri og hver segir líka að börn geti ekki hlustað á lög um yngri eða eldri krakka en þau sjálf. í öllum hinum textunum er Ijóðmælandinn barn á óræðum aldri sem getur allt eins verið í skóla eins og íleikskóla. Uppáhaldslagið mitt af þessum diski og stúlkunnar sem hlustaði með mér líka, er lagið „Haltu þér saman". Óborganlegur texti sem fjallar um það hvernig sífellt er verið að segja börnum (og okkur hinum ) hvernig þau eiga að vera „Þú er of hægur og þú ert of hraður, þú er of fúll, já, og þú ert of glaður ..." Og svo viðlagið sem festist gersamlega í hausnum á mér : „Já haltu þér saman aftan og framan ofan og neðan og þegið'á meðan." Umslagið finnst mér ekki fallegt og ekki passa nógu vel við heildarsvip verksins. Letrið á textunum er óþarflega lítið og teikningarnar fara sums staðar ofan í þá sem gerir byrjendum í lestri erfitt fyrir og líka eldra fólki sem kannski vill syngja þessi fallegu lög með barnabörnunum. Ég sýndi tæplega níu ára stúlku diskinn og spurði hvort hún vildi hlusta á hann. Hún leit á umslagið og hélt nú ekki, þetta væri smábarnadiskur. Nokkru seinna setti ég diskinn í spilarann og stakk umslaginu undan og þá fannst henni lögin skemmtileg eða eins og hún orðaði það ,,róleg og ekki róleg til skiptis eins og munstur úr perlum", ekki slæm umsögn það. Ég verð að vera sammála stúlkunni, þessi diskur er perla sem á örugglega eftir að lifa lengi. Diskurinn Obbosí er ætlaður yngstu börnunum en á honum flytur Kristjana Skúladóttir fjórtán lög eftir sjálfa sig. Lögin eru einföld og glaðleg, mörg hver í líflegum danstakti sem hvetur til hreyfingar. Til dæmis er lagið „Líkaminn" tilvalið til að dilla sér við og benda á líkamshlutana sem sungið er um og við „í sveitinni" er hægt að herma eftir dýrunum og keyra traktor í þykjustunni. Svo er auðvitað varla hægt að sitja kyrr undir laginu „Dönsum". En ekki eru öll lögin Obbosí'! - vandaður diskur fyrir lítil börn ^SSSÍ,

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.