Börn og menning - 01.04.2007, Síða 41

Börn og menning - 01.04.2007, Síða 41
IBBY fréttir 39 Dagur barnabókarinnar Fæðingardagur H.C. Andersens, 2. aprfl, er hinn alþjóðlegi Dagur barnabókarinnar sem víða um lönd er notaður til að vekja sérstaka athygli á barnabókum og mikilvægi lesturs. Stjórn IBBY á íslandi ákvað á fyrsta fundi sínum nú í haust að beita sér fyrir því að koma Degi barnabókarinnar á almanakið hér á landi. Síðustu mánuði hefur verið unnið að því að hvetja þá aðila sem koma að útgáfu og útbreiðslu barnabóka til að standa fyrir einhvers konar viðburðum í tilefni dagsins. Nú þegar þetta er ritað er Ijóst að barnabókahöfundar verða með dagskrá í aðalútibúi Borgarbókasafnsins við Tryggvagötu, myndskreytar verða með sýningu í Ásmundarsal og ekki er ólíklegt að einhverjar bókabúðir hampi barnabókunum sérstaklega. Menningarmiðstöð Hornafjarðar og Hafnarskóli hafa boðið Guðrúnu Helgadóttur í heimsókn og ætla að sýna leikgerð úr verkum hennar auk þess sem nemendur verða með bókmenntakynningar úr bókum Guðrúnar. Vonandi verða viðlíka viðburðir sem víðast um landið. IBBY fagnar deginum með því að veita í fyrsta skipti barnabókaverðlaunin Sögustein eins og fram kemur á öðrum stað hér í blaðinu. Stjórn IBBY bindur miklar vonir við að Dagur barnabókarinnar sé kominn til að vera hér á landi og að sem flestir sem málið varðar noti tækifærið til að koma barnabókum rækilega á framfæri. Heimsþing IBBY 2008 Þrítugasta og fyrsta heimsþing IBBY verður haldið í Kaupmannahöfn 7.-10. september 2008. Yfirskrift þingsins er: Stories in history - history in stories. Heimsþing IBBY eru öllum opin og eru venjulega sótt af fimm til sex hundruð manns frá öllum heimshornum sem deila áhuga á hugsjónum IBBY, barnabókum og útbreiðslu þeirra. Boðið er upp á fyrirlestra í hæsta gæðaflokki, málstofur og sýningar auk ýmiss konar skemmtunar. Nú þegar þingið verður haldið í okkar gömlu höfuðborg er kjörið tækifæri fyrir áhugasama íslenska IBBY-félaga að kynnast betur starfsemi þessara merku samtaka og því góða fólki sem starfar í nafni þeirra. Bent skal á að þinggjaldið er venjulega lægra fyrir þá sem skrá sig snemma. Lesendur eru hvattir til að skoða sérstakan vef Kaupmannahafnarþingsins, www.ibby2008.dk þar sem lesa má um dagskrána, fyrirkomulag og fleira. Guðrún Helgadóttir tilnefnd Stjórn IBBY á íslandi hefur ákveðið að tilnefna Guðrúnu Helgadóttur til H.C. Andersen verðlaunanna sem afhent verða á heimsþingi IBBY í Kaupmannahöfn í september 2008. Þetta er ekkí í fyrsta sinn sem við tilnefnum Guðrúnu enda er það svo að þeir höfundar og myndskreytar sem hafa hlotið verðlaunin hafa jafnan verið tilnefndir mörgum sinnum. Oft hefur verið kvartað yfir því að höfundar frá litlum málsvæðum eins og Norðurlöndunum eigi mjög takmarkaða möguleika á því að hljóta H.C. Andersen verðlaunin einfaldlega vegna þess að dómnefndin hafi ekki tök á að meta þá sem skyldi. Einnig hefur verið gagnrýnt hve mikill kostnaður fylgi tilnefningunum. Það skal þó tekið fram að reynt er að skipa í dómnefndina fólk með mjög breiða tungumálakunnáttu og oft hefur setið í henni fulltrúi með þekkingu á að minnsta kosti einu Norðurlandamáli. H.C. Andersen verðlaunin hafa verið veitt annað hvert ár allt frá 1956 og í hópi þeirra 27 höfunda sem þau hafa hlotið eru 5 Norðurlandabúar, Astrid Lindgren 1958, Tove Janson 1966, Maria Gripe 1974, Cecil Bödker 1976 og Tormod Haugen 1990. Sannast að segja mega Norðurlöndin því una vel við sinn hlut. í ár verður tilnefningarferlinu og dómnefndarstörfunum breytt nokkuð til að reyna að auka jafnræði þeirra höfunda sem tilnefndir eru. Stærsta breytingin felst í því að lengja allt ferlið um nokkra mánuði svo dómnefndarmenn hafi betri tíma til að kynna sér verk höfundanna. Verður spennandi að fylgjast með hvort þessar breytingar leiði til þess að örtunguþjóðir eins og (sland eigi einhverja möguleika. Vilt þú starfa fyrir IBBY? í stjórn IBBY á (slandi sitja sex konur auk þess sem ritnefnd Barna og menningar er skipuð þremur konum. Nokkrar stjórnarkonur hafa unnið fyrir IBBY árum saman en aðrar skemur. Allar vinnum við fulla vinnu auk þess að sinna þessu skemmtilega áhugamáli. Nú er fyrirséð að allavega eitt sæti losnar í stjórninni í vor og því er tækifæri fyrir áhugasama að koma í hópinn. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í gefandi starfi í fljúgandi uppsveiflu skaltu endilega senda tölvupóst til Guðlaugar formanns, gudlaugri@simnet.is

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.