Börn og menning - 2015, Blaðsíða 17
17Fyrirsögn greinarBörn og menning17
Brynhildur Heiðar og Ómarsdóttir
Svipmyndir úr íslenskum
unglingabókum, 1977–2007
Mikil gróska hefur verið í útgáfu íslenskra
barna- og unglingabókmennta síðustu
fjörutíu árin. En þótt fjöldi barna- og
unglingabóka hafa komið út þessa áratugi,
hefur grátlega lítið verið skrifað um
íslenskar barna- og unglingabókmenntir.
Aðeins eitt yfirlitsverk yfir sögu íslenskra
barnabóka hefur komið út, Íslenskar
barnabækur 1780–1979 eftir Silju
Aðalsteinsdóttur árið 1982, grundvallarverk í
íslenskri bókmenntasögu. Árið 1999 ritstýrði
Silja svo greinasafninu Raddir barnabókanna,
en í því riti birtir hún stutt yfirlit yfir sögu
barnabókmennta hér á landi og tekur
sérstaklega fyrir höfunda sem stigu fram á
ritvöllinn eftir útgáfu fyrri bókar hennar. Árið
2005 kom út greinasafnið Í Guðrúnarhúsi
um bækur Guðrúnar Helgadóttur í ritstjórn
Dagnýjar Kristjánsdóttur og Brynhildar
Þórarinsdóttur.
Að þessum bókum frátöldum eru
merkilega fáar heimildir í boði fyrir
áhugamenn um íslenska barnamenningu.
Einstaka greinar um barnabókmenntir – og
færri um unglingabókmenntir – hafa birst í
bókmenntaritum landsins, og þá sérstaklega
í þessu tímariti, Börnum og menningu, sem
hóf göngu sína árið 1997.
Í þessari grein velti ég fyrir mér íslenskum
unglingabókum síðustu fjörutíu árin.
Greinin er þó ekki yfirlitsverk yfir sögu
unglingabókmennta, heldur mætti frekar
líta á umfjöllun mína sem nokkurs konar
svipmyndir, eða leifturskot úr íslenskum
unglingabókum.
Upphafspunktur minn er bókin Búrið eftir
Olgu Guðrúnu Árnadóttur sem kom út árið
1977, en Silja hefur lýst því yfir að íslenskar
unglingabækur fæddust með útgáfu þeirrar
bókar. Ég hoppa svo fram í tímann og drep
niður fæti á tíu ára fresti. Ég fletti í bókinni
Pottþéttur vinur eftir Eðvarð Ingólfsson sem
kom út árið 1987, opna svo Galdrastafi og
græn augu eftir Önnu Heiðu Pálsdóttur sem
kom út árið 1997 og lýk svo á því að fjalla
um Ef þú bara vissir… eftir Mörtu Maríu
Jónasdóttur og Þóru Sigurðardóttur sem kom
út árið 2007.
1977 – Búrið
Olga Guðrún Árnadóttir er einn af okkar
reyndustu þýðendum. Frá árinu 1973 hafa
um 20 leikrit og barnabækur birst í þýðingu
hennar. Hún hefur einnig samið þó nokkrar
barnabækur, sú fyrsta, Trilla, álfarnir og
dvergurinn Túlli, kom út 1972 þegar hún
var aðeins nítján ára gömul. Olga Guðrún
hefur tvisvar hlotið viðurkenningu IBBY á
Íslandi, í fyrsta skipti árið 1990 fyrir Ferðina
á heimsenda og svo árið 1996 fyrir ritstörf
sín og framlag til íslenskrar barnamenningar.
Árið 1977 kom út bókin Búrið: Saga