Börn og menning - 2015, Page 34
Börn og menning34
Í sumar varð félagið okkar, IBBY á Íslandi,
þrjátíu ára. Það má segja að starfið sé í
nokkrum blóma þessi árin. Við höfum verið
lánsöm þegar kemur að styrkveitingum,
félagsmenn hafa verið óeigingjarnir á tíma
sinn þegar kemur að stjórnarsetu og fjölmörg
árleg verkefni eru í föstum skorðum.
Þessi verkefni eru fjölbreytt, en eiga sér
þó einn samnefnara: Lestrarhvatningu.
Það er djúpstæð trú fólksins sem hefur
mótað stefnu félagsins að lesskilningur sé
eitt mikilvægasta veganestið sem hægt er
að gefa barni. Hugsjón alþjóðlegu IBBY-
samtakanna um að barnabækur byggi brýr
og auki á skilning manna í millum er okkar
leiðarljós - en hún verður innantóm nema
börn vilji lesa og njóti þess að lesa.
Það er því lykilatriði að börn fái sögur við
hæfi, að þau hafi aðgang að efni sem kveikir
lestrarlöngunina. Lestrartækni er mikilvægt
fyrsta skref, en raunveruleg færni næst ekki
nema að lestur verði lífsstíll.
Þessu vinnum við að með ýmsum hætti.
Við veitum viðurkenningar og tilnefnum
höfunda til verðlauna, því það skiptir máli
að veita fólkinu sem sinnir bókagerð fyrir
börn hvatningu. Við stöndum að málþingum
og ráðstefnum, af því að ef barnabækurnar
eiga að þrífast þarf að tala um þær, greina
þær og skoða. Við gefum út þetta tímarit,
hið eina sinnar tegundar á íslensku.
En við reynum líka að færa börnum sögur.
Því sögur eru það sem virkar. Góð saga
kveikir forvitnina, með forvitninni kemur
þjálfun, en án þjálfunar verður engin hæfni.
Þess vegna er dagur barnabókarinnar
eitt af flaggskipum félagsins. Þá fáum við
barnabókahöfunda til að semja fyrir okkur
glænýja sögu sem hægt er að lesa fyrir
grunnskólabörn á öllum aldri, öll í einu.
Brýrnar, sem bókmenntirnar byggja, verða
til þegar lesendur setja sig í spor annarra
og þegar lesturinn veitir allskonar fólki úr
allskonar áttum hlutdeild í sömu upplifun.
40.000 grunnskólabörn fara samtímis í sama
ferðalagið þegar sagan er lesin í öllum
grunnskólum landsins 2. apríl.
Og víkur þá - loksins - að tilefni þessa
texta.
Að segja frá Nesti og nýjum skóm.
Fyrir tæpum fimmtán árum var Sólveig
Ebba Ólafsdóttir, þáverandi formaður IBBY á
Íslandi, að kenna í grunnskólum í Reykjavík.
Sólveig er fróð og vel máli farin og var
stundum fengin til þess að segja krökkunum
sögur. Og hún var farin að taka eftir nokkru
dálítið einkennilegu. Hún var farin að taka
eftir því að þegar hún nefndi bræðurna
á Bakka, Búkollu eða ólátabelginn hann
Gutta, kom hún að tómum kofanum hjá
hópi nemenda.
Upp úr þessum sögustundum fæddist
hugmyndin að bók sem fjallaði um það sem
„allir eiga að þekkja“. Bók sem innihéldi
þjóðsögur, þulur, kvæði, myndir og kafla
úr lengri verkum. Bók sem myndi kveikja
forvitni og gleði og gæti lifað með börnunum
ævina út.
Nokkrum árum síðar, árið 2008, voru
Sólveig, Þorbjörg Karlsdóttir og fleiri
IBBY-konur staddar á heimsþingi IBBY í
Kaupmannahöfn. Þar fóru þær í heimsókn
á bókasafn þar sem gestgjafarnir sýndu
bók sem var alveg eins og þær Sólveig og
Þorbjörg höfðu látið sig dreyma um að
gefa út á Íslandi. Bók sem hafði verið gefin
börnum.
Eftir þessa heimsókn varð hugsjónaeldurinn
ekki kæfður lengur. Stjórnin samþykkti að
setja allt á fullt. Sólveig og Þorbjörg komu
saman í ritnefnd og vinnan hófst. Það var
ákveðið að láta drauminn rætast.
Dagleið til læsis
IBBY fréttir
Úrvalsbókin Nesti og nýir skór kom út á degi læsis nú í haust og IBBY á Íslandi gefur bókina 10.000 börnum sem hefja nám
í 1. bekk nú í haust og næsta haust.