Fréttabréf Ættfræðifélagsins - apr. 2020, Síða 2

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - apr. 2020, Síða 2
2http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2020 aett@aett.is Útgefandi: © Ættfræðifélagið Ármúla 19, 108 Reykjavík. = 588-2450 Veffang: http://www.ætt.is/ Netfang: aett@aett.is Kennitala: 610174-1599 Reikningsnúmer: 0536-26-8050 Ritnefnd Fréttabréfs: Guðfinna Ragnarsdóttir = 848-5208 Magnús Grímsson = 899-8831 Ritstjóri Fréttabréfs: Guðfinna Ragnarsdóttir Laugateigi 4, 105 Reykjavík = 848-5208 gudfinnamr@gmail.com Ábyrgðarmaður: Benedikt Jónsson for mað ur Ætt fræði fé lags ins Prófarkalestur: Magnús Grímsson Umbrot: Þórgunnur Sigurjónsdóttir Efni sem óskast birt í blaðinu berist ritstjóra á rafrænu formi (tölvupóstur/viðhengi) Prentun: GuðjónÓ *** Fréttabréf Ættfræði- félagsins er prentað í 450 eintökum og sent öllum skuldlausum félögum. Verð í lausasölu er 800 kr. Allt efni sem skrifað er undir nafni er birt á ábyrgð höfundar. Annað er á ábyrgð ritstjórnar. Nýkjörin stjórn Ættfræðifélagsins: Frá vinstri: Kristinn Kristjánsson, Áslaug Herdís Úlfsdóttir, (Guðfinna Ragnarsdóttir ritstjóri Fréttabréfsins), Björn Jónsson, Eiríkur Þór Einarsson, Benedikt Jónsson og Helga Margrét Reinhardsdóttir. Á myndina vantar Önnu Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Ljósmynd Arnbjörn Jóhannesson Ný stjórn Ættfræðifélagsins Ný stjórn Ættfræðifélagsins var kosin á aðalfundinum í febrúar s.l. Hana skipa Benedikt Jónsson formaður, Eiríkur Þór Einarsson varaformaður, Björn Jónsson ritari, Helga Margrét Reinhardsdóttir gjaldkeri, Anna Guðrún Hafsteinsdóttir, Áslaug Herdís Úlfsdóttir og Kristinn Kristjánsson. Hafa skal það heldur er sannara reynist! Til ritstjórnar Ég rak augun í það þegar ég fletti fréttabréfinu sem barst mér í dag, að orðið kútter væri dregið af nafni togarans Coot, sem var fyrsti tog- ari Íslendinga og kom til landsins 1902. En það er einhver misskiln- ingur. Íslensk orðsifjabók segir: kúttari k. (19. öld), kútter k. (19. öld) ‘skúta, seglskip af sérstakri gerð’. To. úr d. kutter < e. cutter, af cut ‘skera’, eiginl. ‘sá sem sker sjóinn’, sbr. e. clipper ‘hraðskreið skúta’, af e. clip ‘sníða, skera, klippa’. Á slóðinni timarit.is finnst orðið kútter fyrst í blaðinu Ísafold 1887, þrisvar sinnum, en það er 25 árum áður en Coot kom til landsins. Því er alveg ljóst að einhver hefur misskilið eitthvað. En annars, takk fyrir blaðið. Það er alltaf fullt af áhugaverðu efni og ég tek hverju tölublaði fagnandi. Með kveðju, Magnús Ó. Ingvarsson Ritstjóri þakkar Magnúsi ábendinguna og leiðréttinguna og góð orð í garð Fréttabréfsins sem einu sinni var undir hans stjórn. Og að sjálfsögðu viljum við eins og Ari fróði forðum hafa það heldur er sann- ara reynist.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.