Fréttabréf Ættfræðifélagsins - apr. 2020, Blaðsíða 23

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - apr. 2020, Blaðsíða 23
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2020 http://www.ætt.is aett@aett.is23 EFNAHAGSREIKNINGUR 31. desember 2019 EIGNIR: Bókabirg ir og bla a 1,200,000 Bankainnistæ ur: Netreikningur 200231 364,862 í Íslandsbanka Tékkareikningur 8050 Í Íslandsbanka 6,248 371,110 1,571,110 SKULDIR: 0 Höfu stóll 1.1. 1,458,356 +Hagna ur 60,882 1,397,474 1,571,110 REKSTRARREIKNINGUR 1. janúar - 31. desember 2019 TEKJUR: Bóksala og bla a 54,700 54,700 Bókabirg ir 1.1. 2,194,491 - Birg ir 31.12. 2,139,791 Brúttóhagna ur af bókasölu 54,700 Félagsgjöld 291 x 5900 1,716,900 64 x 6400 409,600 Eldri 6,300 2,132,800 Innkoma /félagsf. 27,000 Vextir 9,153 Brúttóhagna ur alls 2,223,653 GJÖLD: Fréttabréf: Prentun og umbrot 688,325 Bur argjöld 373,492 1,061,817 Húsaleiga 749,744 Internet jónusta 76,374 Sími 80,862 óknun til banka 61,111 Váryggingar 21,400 Skrifstofa 5,290 Augl singakort 30,000 Kosna ur/félagsf 73,772 Fjármagnstekjuskattur 2,401 2,162,771 Hagna ur 60,882 2,223,653 manna við félagið, ekki síst þeirra sem búa úti á landi og hafa ekki tök á að mæta á félagsfundi. Út komu eins og áður fjögur tölublöð Fréttabréfsins á árinu, alls 96 blaðsíður í A4 broti, stútfull af bráð- skemmtilegu og fróðlegu efni. Önnur starfsemi Alls voru haldnir sjö stjórnarfundir á árinu 2019. Á þeim hafa margvísleg mál verið á dagskrá eins og fjárhagsmál, viðvera á skrifstofunni, fjölgun félaga, bóksala, tölvumál, húsnæðismál, rekstur og fleira. Opið hefur verið á skrifstofu félagsins í Ármúla 19 á þriðjudögum á milli kl 13:00 og 18:00. Kristinn Kristjánsson hefur að venju séð um að taka á móti gestum og sinna þörfum þeirra. Ættfræðifélagið er með vef þar sem allir viðburð- ir félagsins eru auglýstir og kynntir. Þar eru einnig lög félagsins, ágrip af sögu þess, tenglar á gagnlegt efni af ýmsum toga og margvíslegur annar fróðleikur. Ættfræðifélagið er einnig með Facebook síðu og þar eru viðburðir félagsins einnig auglýstir og kynntir. Á liðnu ár var áfram reynt að næla í nýja félaga og það skilaði einhverjum árangri, þó að við hefð- um viljað sjá miklu fleiri ganga til liðs við félagið. Bókasala á liðnu ári var fremur dræm, eins og undan- farin ár. Gjaldkeri félagsins, Kristinn Kristjánsson, hefur haft veg og vanda af sölumálum, lagerhaldi og daglegum rekstri félagsins. Ritstjóri Fréttabréfsins, Guðfinna S. Ragnarsdóttir, hefur haldið áfram að mæta á námskeið Stefáns Halldórssonar um ættfræðigrúsk hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Þar hefur hún kynnt Ættfræðifélagið og ýmislegt sem hún hefur unnið í ættfræði. Þessu hefur ævinlega verið vel tekið og nokkrir þátttakend- ur á námskeiðunum hafa skráð sig í Ættfræðifélagið. Guðfinna hélt einnig erindi fyrir kvenfélögin í Eyjafjarðarsveit 2. nóvember sl. Fundinn sóttu um fimmtíu konur. Guðfinna ræddi þar um ættfræðinnar ýmsu hliðar, auglýsti Ættfræðifélagið og Fréttabréfið og setti upp sýningu með ættrakningum, myndum, ættargripum og fleiru. Margar konur gengu í félagið. Fjárhagur félagsins hefur haldist í horfinu frá fyrra ári. Af sjálfu leiðir að þetta er afar einfaldur rekstur og stjórn félagsins leitar ávallt leiða til að reka félagið með sem hagkvæmustum hætti. Alltof margir félagar okkar hafa fallið frá á liðnu ári. Einn þeirra var Hörður Einarsson félagi okkar í stjórn Ættfræðifélagsins. Við minnumst allra okkar góðu félaga, sem hafa kvatt, með virðingu og þökk fyrir samfylgdina. Ég vil biðja félagsmenn að rísa á fætur og minnast látinna félaga okkar. Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg til að vinna félaginu gagn á liðnu ári og legg störf stjórnarinnar í hendur aðalfundarins. Hafnarfirði 27. febrúar 2020 Benedikt Jónsson formaður stjórnar

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.