Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 2
2
1 SAMANTEKT
Gunnar Þór Jóhannesson. Breytingar og bjargráð. Aðferðir fólks í
sveitum til að takast á við samfélagslegar breytingar. Rit Mógilsár
Rannsóknastöðvar Skógræktar nr. 19 /2004. 48. bls.
Hér er fjallað um samfélagslegar breytingar sem fólk í sveitum hefur
staðið frammi fyrir. Lögð er áhersla á að skýra hvernig fólk mótar og
beitir margvíslegum aðferðum til að takast á við þær. Ritgerðin
byggir á vettvangsrannsókn sem fram fór í Fljótsdal á Héraði.
Ritgerðin hefst á umræðu um lykilhugtök rannsóknarinnar sem
varpa ljósi á aðstæður sem íbúar Fljótsdals þurfa meðal annarra að
takast á við. Þau eru: Hnattvæðing, bjargráð og félagslegur auður.
Hnattvæðing vísar til samfélagslegra breytinga sem er rammi
ritgerðarinnar. Bjargráð og félagslegur auður fela í sér áherslu á
nýsköpun, meðvitaða sköpun sjálfsmyndar og virkjun félagslegra
tengslaneta og henta vel til skilnings og greiningar á aðstæðum og
aðgerðum fólks.
Megin hluti ritgerðarinnar fjallar um breytingar á umhverfi
sauðfjárræktar, breyttar aðstæður íbúa Fljótsdals og mismunandi
bjargráð þeirra. Sérstaklega er fjallað um eitt tiltekið bjargráð –
Héraðsskógaverkefnið. Héraðsskógar er dæmi um byggðavænt
nýsköpunarverkefni sem byggir m.a. á virkjun félagslegra tengsla
og hagnýtingu félagslegs auðs.
Að lokum eru niðurstöður dregnar saman. Sauðfjárræktarfólk tekst
á við hnattrænar breytingar með margvíslegum bjargráðum.
Reynsla fólks af Héraðsskógaverkefninu er mikilvægt dæmi um
hverskonar bjargráð geta hentað í sveitum og eykur skilning á
hvernig bjargráð eru mótuð og framkvæmd af fólki í samspili við
formgerð samfélagsins.
Lykilorð: Hnattvæðing, bjargráð, félagslegur auður, byggðaverkefni