Rit Mógilsár - 01.03.2004, Side 39

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Side 39
39 Dæmi um hvernig verkefnið brúar bilið fyrir bændur kemur frá Indriða: Það eru semsagt tveir mánuðir þarna [í slátrun og smölun], svo er ég að vinna hjá Héraðsskógum, hef verið að vinna hjá þeim undanfarin ár í skógarhöggi, á veturna,... verið þrjá mánuði kannski þar. Svo hef ég verið í girðingaviðhaldi fyrir þá á vorin, ... fyrir það fékk ég um 300 þúsund krónur. Ég er að fá fyrir þrjá mánuði í skógarhöggi sexhundruð þúsund krónur, þá eru komin 900 þúsund, ég er að fá 400 þúsund í sláturhúsinu, þetta er það sem ég lifi á. 7 UMRÆÐUR OG LOKAORÐ SAUÐFJÁRRÆKT OG HNATTVÆÐING Hnattrænar breytingar eru í sjálfu sér ekki nýjar af nálinni. Ýmiskonar samskipti hafa lengi átt sér stað á milli fjarlægra staða á jarðarkringlunni. Flæði ímynda, fólks, fjármagns og upplýsinga hafa hins vegar orðið mun hraðvirkari á síðustu árum samfara tækninýjungum. Friedman (1995, 2000) bendir á að hnattvæðing eigi sér ekki stað á tilviljunarkenndan hátt þó hún virðist að mörgu leyti vera stjórnlaus. Áhrif og afleiðingar hnattvæðingar mótast af ákveðinni formgerð sem hefur orðið til í sögulegu og pólitísku samhengi. Á vissan hátt er þróun sauðfjárræktar táknmynd fyrir hnattrænar breytingar. Mótun og skipulag reglukerfis sauðfjárræktar átti sér stað samhliða nútímavæðingu íslensks samfélags. Á fyrri hluta aldarinnar var lögð áhersla á að auka framleiðni landbúnaðarins og um leið hófst uppbygging reglukerfis utan um hefðbundinn landbúnað, nautgriparækt og sauðfjárrækt. Leitast var við að auka framleiðslumagn, vél- og tæknivæðingu. Stjórnkerfið sem var smíðað utan um sauðfjárrækt og hugsað sem stuðningstæki við atvinnugreinina landsmönnum til hagsbóta var hins vegar að lokum keyrt í strand. Mikil verðbólga hér á landi ásamt versnandi markaðsaðstæðum erlendis hafði sitt að segja en einnig er ljóst að þau sem stjórnuðu kerfinu náðu ekki að sveigja það að breyttum aðstæðum. Allt frá áttunda áratug 20. aldar hefur sauðfjárrækt sem atvinnugrein og fólkið sem stundar hana háð varnarbaráttu og leitast við að aðlagast breyttum aðstæðum. Það hefur verið hægara sagt en gert þar sem sauðfjárrækt hefur verið nýtt sem byggðameðal í dreifbýli landsins. Sauðfjárrækt sem atvinnugrein hefur þannig verið hagnýtt til svæðisbundinnar styrkingar eða viðhalds byggðar. Þetta hefur heft bændafólk við að þróa atvinnugreinina sem slíka og það má einnig færa rök fyrir því að þessi tenging dreifbýlis við eina atvinnugrein hafi

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.