Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 5

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 5
5 3 INNGANGUR Tuttugasta öld hefur verið tími hraðra breytinga í íslensku samfélagi. Segja má að þjóðfélagið hafi tekið stökk inn í nútímann í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar þegar iðn- og vélvæðing hér á landi hófst fyrir alvöru. Síðustu áratugi 20. aldar og fyrstu ár þeirrar 21. er margt sem bendir til þess að ný þjóðfélagsgerð sé að renna upp, sem hefur aðrar áherslur í för með sér en áður. Lykilatriði í efnahagslífinu í dag eru tækni, miðlun upplýsinga og nýsköpun. Sífellt hærra hlutfall fólks vinnur við þjónustugreinar en vægi frumvinnslugreina fer minnkandi (Hagstofa Íslands, 2002). Hér er ætlunin að fjalla um samfélagslegar breytingar sem þessu fylgja í byggðarlögum sem byggja á frumvinnslu og bjargráð sem íbúar þeirra hafa beitt. Ritgerðin byggir á vettvangsrannsókn í tiltekinni sveit á Íslandi, þ.e. Fljótsdal. Hún fjallar um breytingar sem fólk þar hefur upplifað og þau bjargráð sem það hefur beitt til að takast á við þær. Í Fljótsdal hefur verið stundaður hefðbundinn landbúnaðar og er aðalatvinna íbúa þar sauðfjárrækt. Hefðbundinn landbúnaður á Íslandi hefur síðan á áttunda áratug 20. aldar gengið í gegnum ýmiskonar þrengingar. Sauðfjárbændur hafa staðið frammi fyrir aukinni samkeppni á matvörumarkaði og breyttum neysluvenjum sem hafa haft í för með sér minnkandi markað fyrir kindakjöt. Sauðfjárrækt hefur átt í vök að verjast og sauðfjárafurðir hafa ekki náð að halda markaðsshlutdeild sinni. Þrátt fyrir minni neyslu kindakjöts hefur framleiðendum ekki fækkað að sama skapi, sem hefur þýtt tekjusamdrátt hjá sauðfjárræktarfólki. Það hefur því þurft að taka til við ólík bjargráð til að geta haldið áfram búskap og þeirri búsetu sem það hefur valið sér. Ritgerðin grundvallast á þremur rannsóknarspurningum. Þær eru: Hvaða breytingar hafa orðið í umhverfi sauðfjárræktarfólks? Hvers konar bjargráð hefur það tekið til við? Hvernig mótar fólk bjargráð sín? Eftirfarandi umfjöllun er því þríþætt og vísar til breytinga, bjargráða og síðast en ekki síst framkvæmdar bjargráða. Að loknum inngangi verður fræðilegur rammi rannsóknarinnar skýrður ásamt þeim rannsóknaraðferðum sem hún byggir á. Því næst hefst umfjöllun um breytingar á umhverfi sauðfjárræktar og bjargráð fólks í Fljótsdal. Breytingar á reglukerfi og ytra umhverfi sauðfjárræktar á landinu eru raktar og jafnframt er fjallað um tengsl hefðbundins landbúnaðar við byggðastefnu stjórnvalda. Því næst er fjallað sérstaklega um breytingar sem hafa orðið í Fljótsdal og margvísleg bjargráð fólks á svæðinu. Til að varpa ljósi á hvernig fólk mótar bjargráð er gerð grein fyrir Héraðsskógaverkefninu. Héraðsskógar hafa sterka skírskotun til byggðastefnu og tengir ólíka aðila einu bjargráði á svæðinu. Upphaf þess, þróun og áhrif á svæðinu eru rakin ásamt því

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.