Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 41
41
grundvallarþættir að árangursríkum bjargráðum.
Bjargráð íbúa Fljótsdals eru mörg og ólík. Sauðfjárrækt er enn
megin atvinnugrein Fljótsdælinga. Á langflestum sauðfjárbúum stundar
fólk þó vinnu með þar sem sauðfjárbúskapurinn veitir ekki nægilegar
tekjur til að reka heimili. Nokkuð er um að fólk búi á svæðinu en stundi
ekki sauðfjárbúskap sem atvinnu. Aðstæður fólks í dag eru tilkomnar
vegna ýmissa samverkandi þátta en framleiðsluniðurskurður og
stórfelldur riðuniðurskurður eru miðlægir áhrifaþættir á svæðinu.
Reglukerfi sauðfjárræktar og vilji fólks til að stunda sauðfjárrækt
hefur markað þau bjargráð sem það hefur tekið til við. Þróun og
nýsköpun í sauðfjárrækt hefur verið miklum takmörkunum háð á
síðustu árum. Margir bændur hafa þó leitast við að nýta hús og aðrar
fjárfestingar eins vel og kostur er jafnvel þó að hluti framleiðslunnar falli
utan beingreiðslumarks. Jafnframt eru margir að vinna markvisst að því
auka framleiðni skepnanna og aðlaga framleiðsluna að óskum
neytenda með markvissu ræktunarstarfi.
Önnur bjargráð sem má nefna eru ferðaþjónusta, aukabúgreinar,
föst vinna utan heimilis og ýmis tilfallandi tímabundin störf.
Ferðaþjónusta er það bjargráð þar sem allar þrjár víddir hugtaksins eru
hvað skýrastar. Tveir aðilar hafa farið út í ferðaþjónustu. Án þess að
fara djúpt ofan í saumana á þessum bjargráðum er í báðum tilvikum
um hrein og klár nýsköpunarverkefni að ræða. Hvorki hefur verið boðið
upp á hestaferðir eða gistingu í íbúðum áður á svæðinu. Bæði
fyrirtækin byggja á virkjun tengslaneta bæði innan sveitar og utan.
Sömu viðskiptavinirnir koma ítrekað til þeirra og hestaferðirnar eru
reknar í samstarfi við stærra fyrirtæki annarsstaðar á landinu. Þannig
hafa þau í báðum tilfellum náð að byggja félagslegar brýr sem treysta
grundvöll rekstursins. Um leið byggja báðir aðilar á félagslegum
tengslum í nánasta umhverfi sínu. Þau fá hjálp frá nágrönnum sínum
og ýmiskonar aðra aðstoð í gegnum samþættuð tengslanet. Þau virkja
með öðrum orðum félagslegan auð sinn. Sú ferðaþjónusta sem þau
reka tengist sterklega sköpun sjálfsmyndar og ákveðinni ímynd
svæðisins. Það er mikið um að veiðifólk gisti í íbúðunum og
hestaferðirnar njóta hylli meðal fólks sem vill upplifa og komast í
snertingu við náttúruna. Þessi dæmi sýna glögglega að tengslanet og
sköpun sjálfsmyndar eru gagnvirk ferli, þau geta ekki átt sér stað í
tómarúmi eða einhliða. Neytendurnir, ferðafólkið í þessu tilfelli, sækist
eftir ákveðinni ímynd og/eða sjálfsmynd til að neyta. Í gegnum bjargráð
sín eru ferðaþjónustuaðilarnir að selja fólki ímynd svæðisins og hluta af
sjálfsmynd sinni og um leið eru þeir að byggja upp og móta sjálfsmynd
sína í tengslum við svæðið.
Fólk hefur leitast við að afla sér aukatekna á þann hátt að það