Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 32

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 32
32 vekur athygli hversu erfiðlega hefur gengið að fá viðurkenningu embættismannakerfisins. Hugsanleg velgengni langtímaverkefnis eins og þessa ræðst ekki síst af áframhaldandi þróun þess eftir stofnsetningu og þar skipta ýmis atriði máli. AÐ SKJÓTA RÓTUM Nokkrir þættir virðast hafa haft mikil áhrif í þá átt að heimafólk skyldi taka verkefninu jafn vel og raun varð á og að sá stuðningur hafi haldist. Þátttaka bænda og landeigenda í skipulagningu og þróun verkefnisins er grundvallaratriði í þessu samhengi. Héraðsskógaverkefnið er skipulagt sem verkefni bændafólks. Það hefur sjálfsstæða stjórn og er ekki háð stjórnkerfinu í Reykjavík. Verkefnið fær ákveðna upphæð til að spila úr og fólk á svæðinu ber fulla ábyrgð á framkvæmdum. Sigurður segir að „…þar af leiðandi virðist koma einhvernveginn sjálfkrafa innbyggður metnaður, að láta þetta skila sem mestu“. Guðrún undirstrikar að lykilatriði við gang verkefnisins sé að stjórnun þess sé á svæðinu. Bændur hafa mjög gott aðgengi að starfsfólki Héraðsskóga, það eru engir sérstakir viðtalstímar og fólk getur verið það sjálft. Hún segir að það sé höfuðatriði að bændur upplifi sig sem virka þátttakendur í framkvæmd verkefnisins. Þannig getur fólk verið stolt af vinnu sinni og bætt land sitt. Páll segir að skógrækt sé eins og hver önnur búgrein, yfirleitt er það þannig að sá sem er góður fjárbóndi sé einnig góður skógarbóndi. Þau sem koma inn í verkefnið af fullum krafti til þess að rækta skóg ná miklu meiri árangri en þau sem vilja fá ræktaðan skóg á jörðum sínum. Guðrún og Páll segja bæði að samskipti við bændur hafi gengið vel. Páll segir að það séu ekki allir í einhverjum „já-kór“, og það séu heilbrigð skoðanaskipti, en líka greinileg jákvæðni í samfélaginu. Starfsfólk Héraðsskóga leggur áherslu á að það sé ekki að ýta fólki út í skógrækt. Guðrún segir það hjálpa svolítið til að nánast allir starfsmenn Héraðsskóga búa í sveit. Það minnkar enn aðgreininguna á þeim og bændafólki, það séu eins lágir veggir á milli þeirra og hægt er. Það að skrifstofan sé eins opin og raun ber vitni getur þó stundum skapað álag í vinnunni. Hins vegar séu þessi samskipti við þátttakendur í verkefninu nauðsynleg fyrir framgang þess. Eftirfarandi orð Sigurðar draga kjarna Héraðsskógaverkefnisins fram: Héraðsskógar eru ekki stofnun, eða ríkisstofnun sem að yfirtekur lönd og menn afsala sér eignahaldi. Heldur,

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.