Rit Mógilsár - 01.03.2004, Side 42

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Side 42
42 geti haldið áfram annaðhvort búskap eða búsetu á jörðum sínum. Þau bjargráð sem „virka“ fyrir íbúana eru flest hver sveigjanleg að búsetuskilyrðum þeirra. Sauðfjárbúskapur er enn kjölfesta samfélagsins í Fljótsdal og fólk nýtir sér hann sem grunn að öðrum bjargráðum. Þó verður að taka tillit til þess að reglukerfi sauðfjárræktar hefur heft hreyfanleika fólks. Sumir segjast ekki hafa efni á að selja og flytja burt jafnvel þó þau vildu. Það er óvíst hvort miðlægt hlutverk sauðfjárræktar muni breytast eftir að framsal greiðslumarks verður gefið frjálst í upphafi árs 2004 en það verður að teljast líklegt að sauðfjárbúum í Fljótsdal fækki en þau sem eftir verða muni stækka. HÉRAÐSSKÓGAR SEM BJARGRÁÐ Saga skógræktar á svæðinu, skipulagning Héraðsskógaverkefnisins og sveigjanleiki þess sem bjargráðs eru þrjár megin ástæður fyrir árangri Héraðsskóga í Fljótsdal. Þegar kemur að því að setja nýsköpunarverkefni á laggirnar, hverju nafni sem það nefnist, skiptir máli að það sé merkingarbært fyrir hugsanlega þátttakendur, þ.e. að fólk geti séð sig í því að vinna það. Fljótsdalsáætlun ruddi brautina fyrir skógræktarverkefni í Fljótsdal. Íbúar dalsins vissu að skógrækt var raunhæfur kostur á svæðinu og eins höfðu margir persónulega reynslu af skógrækt, bæði á jörðum sínum og í gegnum vinnu á Hallormsstað. Það má því segja að skógrækt hafi verið hluti af menningarlegum auði íbúa Fljótsdals, hún stóð nær þeim sem bjargráð en margt annað. Skipulagning og framkvæmd Héraðsskóga eru lykilþættir í þessu samhengi. Frumkvæði að verkefninu kom bæði frá félögum í skógræktarfélögum og bændum. Stjórnmálamenn höfðu mikið að segja með því að tengja heimafólk og stjórnkerfið í Reykjavík og vinna verkefninu pólitískt fylgi. Verkefnið er skipulagt til langs tíma og það hefur tryggt fjármagn. Héraðsskógar eru því öruggt haldreipi, fólk sér það sem öruggan tekjugjafa og það getur fært þátttakendum umtalsverðar tekjur. Heimafólk hefur verið virkir þátttakendur í skipulagningu og framkvæmd verkefnisins frá upphafi. Verkefnið er skipulagt sem verkefni þátttakenda, landeigendur vinna sjálfir á jörðum sínum og bera ábyrgð á efndum samnings við stofnunina Héraðsskóga. Fastráðnir starfsmenn Héraðsskóga eru því frekar starfsmenn landeigenda heldur en öfugt. Héraðsskógaverkefnið er í grundvallaratriðum skipulagt þannig að það miðar að því að styrkja fólk í starfi á jörðum sínum og ýtir þannig undir það að fólk sé gerendur í lífi sínu. Áhrif Héraðsskóga dyljast engum. Verkefnið hefur augljós hagræn áhrif og fólk er sammála um að það hefur styrkt byggðina. Umhverfisáhrif verkefnisins eru mikil og nokkuð umdeild. Verkefnið hefur samt sem áður sótt á sem bjargráð meðal bændafólks. Bændur, sem sumir voru í vafa

x

Rit Mógilsár

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.