Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 20

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 20
20 atvinnu sína ef sauðfjárrækt yrði markaðsvædd að fullu. Ljóst er að það að nota sauðfjárrækt sem byggðameðal hefur ekki reynst vel fyrir atvinnugreinina sem slíka og jafnframt má spyrja hvort þessi tenging hafi reynst byggðunum vel. Að mati Eiríks (Landbúnaðarháskólanum) nægir sá byggðastuðningur sem hefur falist í beingreiðslunum ekki til að viðhalda veikustu byggðunum. Meira verður að koma til því að fólk mun ekki sætta sig við sambærileg kjör við þau sem beingreiðslur hafa þó tryggt bændum hingað til. Sauðfjárrækt þarf styrki ef vilji er fyrir hendi að halda framleiðslunni í svipuðu horfi og hún hefur verið undanfarin ár en byggðirnar þurfa einnig styrki til að verða lífvænlegri. Stjórnvöld standa frammi fyrir því að þurfa að ákveða hvort stunda eigi sauðfárrækt sem atvinnugrein sem lýtur lögmálum markaðarins eða hvort styrkja eigi þá sem hana stunda til að halda dreifbýli í byggð. Það pólitíska hálfkák sem einkennir stöðuna í dag getur ekki verið til góðs, þar sem sauðfjárrækt á í öðru orðinu að keppa á markaði og í hinu að þjóna sem megin stoð byggðar í sveitum. Það er auglýst eftir raunverulegri byggðastefnu af hálfu stjórnvalda, sem birtist ekki aðeins í orði heldur einnig á borði „…því að hin raunverulega byggðastefna í dag af hálfu stjórnvalda, hún er bara skipulegt undanhald því miður“ (Eiríkur, Landbúnaðarháskólanum). AÐSTÆÐUR FÓLKS Í FLJÓTSDAL Í þessum kafla byrja ég að fjalla um þær breytingar sem átt hafa sér stað í samfélagslegu umhverfi íbúa í Fljótsdal. Því næst er gerð grein fyrir upplifun bændafólks á stöðu sinni og fjallað bæði um hagrænar aðstæður í tengslum við sauðfjárbúskap og aðra samfélagslega þætti. Að lokum er fjallað um hvernig fólk hefur tekist á við þessar breytingar, hvernig það hefur skapað sér búsetugrundvöll á svæðinu og hvaða bjargráð fólk hefur nýtt sér. Viðmælendur mínir eru allir núverandi eða fyrrverandi bændur nema annað sé tekið fram. Breyttar aðstæður Þær breytingar sem hafa orðið á umhverfi íbúa í Fljótsdal eru samofnar almennum erfiðleikum í hefðbundnum landbúnaði. Hefðbundinn landbúnaður hefur verið megin atvinnugrein Fljótsdælinga. Árið 2000 lagði síðasta nautgripabúið upp laupana og er nú fyrst og fremst búið með sauðfé á svæðinu. Nokkuð er þó um aukabúgreinar. Hrossabúskapur er stundaður á nokkrum bæjum, eitt minkabú er í dalnum og á einum bæ er verið að gera tilraun með býflugnaræktun. Í kringum 1980 þegar framleiðslustýring í sauðfjárrækt var að hefjast var búið á nánast hverjum bæ í sveitinni og fjöldi fjár var mun

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.