Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 8

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 8
8 treysta á sig sjálf til að takast á við breytingar. BJARGRÁÐ Bjargráð (e. coping strategies)2 er hugtak sem nær til staðbundinna aðferða fólks til að takast á við breyttar (samfélagslegar) aðstæður á sjálfrýninn/meðvitaðan hátt (Bærenholdt og Aarsaether, 1998, 2001). Sjálfsrýni vísar til þess að einstaklingar verða að íhuga stöðu sína og samhengi aðgerða sinna hverju sinni. Fólk verður með öðrum orðum að finna sér og aðgerðum sínum merkingarbært samhengi (Bærenholdt og Aarsaether, 2001). Bærenholdt og Aarsæther skilgreina bjargráð sem: Pólitík hversdagslífsins; það er merkingarbær notkun á sögulegum möguleikum… Hvernig fólk tekur upp aðferðir sem eru að þeirra mati skynsamlegar (1998, bls. 30, skáletrun þeirra). Hugtakið bjargráð vísar bæði til þess að takast á við eitthvað og til meðvitaðra ráða fólks. Bjargráð draga fram einstaklinga sem gerendur í sínu eigin lífi. Það er mikilvægt að undirstrika að bjargráð eru margbreytileg og háð félagslegu og staðbundnu samhengi. Skýra má mismunandi bjargráð útfrá þremur víddum, þ.e. nýsköpunarvídd, vídd tengslaneta og sjálfsmyndarvídd (Bærenholdt og Aarsaether, 1998, 2001). Nýsköpunarvídd vísar til breytinga í hagrænni formgerð samfélagsins. Það felur m.a. í sér nýjar lausnir á staðbundnum vandamálum sem geta verið andsvar við hnattrænum breytingum og vaxandi áherslu á þekkingarsamfélagið. Fólk er þó ekki endilega að berjast á móti breytingum heldur getur nýsköpun ekki síður vísað til notkunar á nýjum möguleikum sem eru til komnir vegna breyttra aðstæðna. Í þessu samhengi er mikilvægt að taka með í reikninginn að nýsköpun er einnig menningarlegt og félagslegt fyrirbæri. Nýsköpun þarf ekki endilega að snúast um sköpun fjármagns. Menningarviðburðir og óformleg eða formleg félagsstörf geta verið nýsköpun. Vídd tengslaneta vísar til félagslegra tengsla sem fela í sér traust og þjóna sem grunnur að sameiginlegum aðgerðum fólks. Í gegnum félagsleg tengslanet kemst á samband á milli mismunandi hópa, „veik tengsl“ (sbr. Granovetter, 1973) verða til og í þessari vídd liggur forsenda félagslegs auðs (sjá aftar). Tengslanet tengja fólk, náttúru og hluti saman á pólitískan og merkingarbæran hátt. Það eru ávallt einhverjir gerendur í netunum sem beita beinu eða óbeinu valdi til að móta og endurskapa 2 Í Íslenskri orðabók er bjargráð skýrt sem „ráð til bjargar“ eða „hollráð“. Einnig er talað um Bjargráðasjóð sem varasjóð til að grípa til í vondum árum (Mörður Árnason, 2002). Sá skilningur sem lagður er í hugtakið hér er svipaður. Hér er lögð áhersla á bjargráð í merkingunni aðferðir fólks til að takast á við aðstæður sínar sem gerendur eða bjarga sér. Ég vil undirstrika að bjargráð í þessum skilningi geta verið fyrirbyggjandi, þ.e. þau þurfa ekki að vera viðbrögð við erfiðleikum heldur allskyns aðferðir sem fólk nýtir sér dagsdaglega.

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.