Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 11

Rit Mógilsár - 01.03.2004, Blaðsíða 11
11 formlegum viðtölum. Lögð er áhersla á að nálgast skilning og upplifun viðmælenda á rannsóknarefninu í stað þess að leiða viðtalið að fyrirfram ákveðinni niðurstöðu. Etnógrafískar rannsóknaraðferðir hentuðu rannsókn minni vel þar sem ætlunin var að grafast fyrir um hvernig fólk upplifði og tækist á við samfélagslegar breytingar. Ég vildi heyra raddir fólksins sjálfs, hvað þeim finnst mikilvægt og hvað þeim finnst skynsamlegt. Skipta má rannsóknarvinnu minni í tvo þætti. Annars vegar kynnti ég mér fyrirliggjandi gögn og kenningar og hins vegar gerði ég vettvangsrannsókn þar sem ég tók opin viðtöl og gerði þátttökuathuganir. Tvær (tengdar) ástæður urðu til þess að ég valdi að gera rannsókn í Fljótsdal og á Fljótsdalshéraði. Annars vegar er svæðið í sögulegu ljósi sveit þar sem sauðfjárbúskapur hefur verið ein meginstoð atvinnulífsins og þrátt fyrir samdrátt í landbúnaði skiptir hann enn töluvert miklu máli í staðbundnu hagkerfi svæðisins5. Hins vegar hefur sauðfjárrækt gengið í gegnum miklar þrengingar á síðustu 20 árum, bæði vegna sjúkdóma og framleiðslutakmarkana og virtist mér sem utanaðkomandi áhorfanda að fólki á svæðinu hefði gengið vel að takast á við þær þrengingar. Gagnasöfnun fór aðallega fram á tímabilinu september 2000 til nóvember 2001. Alls voru tekin 22 viðtöl og gerðar þrjár þátttökuathuganir. Viðmælendur eru alls 29, níu konur og 20 karlar. Flest viðtölin (12) voru tekin við íbúa í Fljótsdal en tíu viðtöl voru tekin við aðra sem tengjast annaðhvort svæðinu eða rannsóknarefninu á einn eða annan hátt. Þar má nefna embættismenn í stjórnkerfi landbúnaðarins, ráðunauta, sveitarstjórnarfólk og aðila sem vinna að nýsköpun á Austurlandi. Rétt er að taka fram að öllum þátttakendum eru gefin gervinöfn og í sumum tilvikum er starfsheitum þeirra og kyni breytt. Þetta er gert til að halda trúnað við viðmælendur. Þó að sumir hafi verið tilbúnir til að koma fram undir réttu nafni var jafnt yfir alla látið ganga. Úrvinnsla etnógrafískra rannsókna er tímafrek. Öll viðtölin voru tekin upp á segulband og þau síðan afrituð nákvæmlega. Í þátttökuathugunum fylgdist ég með því sem fram fór og skráði eins ítarlega og mér var unnt strax og heim var komið. Að þessu loknu voru gögnin ítrekað lesin á markvissan hátt og ákveðnir þræðir eða þemu dregin út sem niðurstöðurnar byggja á. Eftirfarandi umfjöllun er byggð á samræðum við viðmælendur mína og þátttökuathugunum með þeim, nema annarra heimilda sé getið. Ég vil þakka öllum þeim sem gáfu sér tíma til að ræða við mig. Án þeirra hefði þessi rannsókn ekki orðið að veruleika. Ég vil vekja athygli lesanda á því að ég vitna beint til orða viðmælenda minna. Eins og gengur í 5 Árið 1997 féllu 11% ársverka í Austur – Héraði í flokk landbúnaðar (Austur - Hérað, 2001).

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.