Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 22
leið upp á Þverárfjall. Sá sem sá
björninn fyrst, þann 2. júní 2008,
tók hins vegar upp tólið og hringdi
beint í fréttastofu Bylgjunnar og
var því útvarpað klukkan tíu um
morguninn.
„Allt í einu byrjuðu allir símarnir
á lögreglustöðinni að hringja og
fólk að spyrja um ísbjörn sem við
vissum ekkert um,“ segir Stefán.
„Við drifum okkur af stað og uppi
á fjallinu blasti við sjón eins og í
villta vestrinu. Hver einasti vopn-
færi Skagfirðingur var mættur með
riffilinn sinn ásamt tugum fólks
sem vildi sjá björninn.“
Ástandið var að sögn Stefáns
stórhættulegt og mikill tími fór í
að koma fólki burtu og loka svæðið
af. Á meðan sat björninn spakur
í hlíðinni og fylgdist með. Lög-
reglumenn pössuðu að hafa augun
ávallt á honum á meðan hringt var í
stjórnvöld og stofnanir því að engar
viðbragðsáætlanir voru til.
„Allt í einu byrjaði björninn að
hreyfa sig og fór bak við hól. Við
fórum þá nær til að missa ekki
sjónar á honum á meðan við vorum
að reyna að átta okkur á því hvernig
við ættum að taka á þessu,“ segir
Stefán. Mikil þoka var á fjallinu
þennan morgun og aðstæður ekki
góðar. „Þá kom í ljós að hann var
búinn að finna lyktina af okkur. Á
meðan við vorum að leita að honum
var hann að leita að okkur og svo
mættumst við á toppnum á einni
hæðinni.“
Stefán áætlar að það hafi aðeins
verið sex eða sjö metrar á milli
þeirra. „Við hlupum niður og björn-
inn tók á sprett á eftir. Ég hugsaði
að eftir öll ævintýrin í sérsveitinni,
sprengjusveitinni og Afganistan
væri það eftir öllu ef ég yrði svo
étinn af ísbirni hér uppi á Þverár-
fjalli,“ segir hann og hlær. „Allt í
einu sneri björninn við og um tíma
misstum við sjónar á honum. Þá
var ákveðið að ekkert annað væri
í stöðunni en að fella dýrið og það
var gert.“
Annar björn gengur á land
Stefán er ekki í nokkrum vafa um að
ákvörðunin um að fella ísbjörninn
var rétt. Sumir vildu þó meina að
réttast hefði verið að reyna að fanga
hann og koma aftur til síns heima.
Hann bendir á að engar deyfibyssur
eða gildrur hafi verið til staðar. Í
eftirvinnslu málsins var einnig stað-
fest að lögreglan hefði ekkert annað
getað gert.
Tveimur vikum síðar, þann 16.
júní, fékk lögreglan símtal um að
annar björn hefði sést en nú við
bæinn Hraun á Skaga. „Ég hélt að
einhver væri að fíf last í mér en eftir
eftirgrennslan komumst við að
því að svo var ekki,“ segir Stefán.
Aðstæðurnar voru hins vegar allar
aðrar, og lögreglan fékk nú að vita af
bangsa á undan alþjóð. Því tókst að
loka svæðið af og takast á við dýrið
á yfirvegaðri hátt. En þá var komin
fram krafa frá Umhverfisstofnun og
ráðuneytinu um að fanga það.
„Ekkert var til sparað. Tíu dýra-
læknar voru mættir á svæðið, allt
lögregluliðið á Norðurlandi vestra,
björgunarsveitarmenn og skyttur.
Björgúlfur Thor borgaði undir þotu
til að f lytja sérstakt búr frá Kaup-
mannahöfn til Akureyrar. Síðan
var komið varðskip í höfnina til að
f lytja björninn til Grænlands og
þyrla til að flytja hann í varðskipið,“
segir Stefán. „Þetta voru háleitar
hugmyndir og göfugt markmið en
veruleikinn sem fólk vildi ekki horf-
ast í augu við var að Grænlendingar
vildu ekki fá dýrið til baka.“
Ein helsta ástæðan fyrir því voru
smitvarnir. Hér á Íslandi gætu geis-
að sjúkdómar í búfénaði og öðru
sem Grænlendingar vildu ekki fá
inn í sitt land. Þegar loks björninn
fór af stað og gerði sig líklegan til
þess að fara aftur út á sjó var tekin
ákvörðun um að fella hann.
Fé til höfuðs honum í Kanada
Stefán segir að það hafi aldrei verið
og verði ekki gefið upp hver tók í
gikkinn og felldi ísbirnina tvo þetta
sumar. „Opinberlega var ég gerður
ábyrgur fyrir því og kveinka mér
ekki undan því,“ segir hann. „Eftir
þetta fékk ég morðhótanir alls stað-
ar að úr heiminum. Sem dæmi settu
dýraverndarsinnar í Kanada fé mér
til höfuðs. Sem mér fannst reyndar
skammarlega lítið. Ég lét þetta sem
vind um eyru þjóta og brosti frekar
út í annað.“
Bjarnarsögunni var þó ekki lokið
eftir þetta því þrálátur orðrómur
gekk um þriðja dýrið. Stefán segir
söguna vera þá að hann hafi verið
felldur og grafinn án þess að nokkur
fengi að vita, til þess að koma í veg
fyrir annan sirkus. „Ég held að það
sé skemmtilegast að leyfa fólki að
hafa sínar kenningar um það,“ segir
hann. „Við höfum aldrei gefið neitt
annað út nema að þriðji björninn
hafi ekki fundist.“
Eftir þetta voru gerðar verklags-
reglur um komur ísbjarna og eru
þeir alltaf felldir. Síðan 2008 hefur
einn björn komið til Skagafjarðar.
Birnirnir tveir sem felldir voru
2008 voru stoppaðir upp og hafðir
til sýnis í Skagafirði og á Blönduósi.
Þverárfjallsbjörninn er nú til sýnis
í Perlunni í Reykjavík.
Kjósa ekki blint
Stefán hefur gegnt stöðu odd-
vita Framsóknarmanna í Skaga-
firði síðan 2010. Skagafjörður er
eitt helsta vígi f lokksins og hefur
honum vegnað vel í sveitarstjórnar-
kosningum. Árið 2014 fékk flokkur-
inn til að mynda 45 prósenta fylgi.
„Stjórnmál hafa alltaf verið mér
hugleikin. Þótt ég hafi ekki sinnt
þeim þegar ég bjó fyrir sunnan fann
ég þörf til að láta gott af mér leiða
þegar við f luttum heim á Krókinn.
Ég ímyndaði mér þó ekki að endast
í þessu í ellefu ár og að þetta myndi
leiða mig í framboð til þings. En eftir
því sem tíminn leið fann ég að þetta
átti vel við mig,“ segir Stefán.
Hann segir ekki sjálfgefið að
Framsóknarf lokkurinn fái mikið
fylgi í Skagafirði. „Flokkurinn hér
hefur talað sterklega fyrir byggðar-
sjónarmiðum sem skipta íbúana
hér miklu máli,“ segir hann. „Okkur
hefur einnig gengið vel í því verkefni
að reka sveitarfélagið. Það er mikið
um framkvæmdir og þjónustustigið
er hátt. Ef íbúarnir fyndu að svo
væri ekki myndum við ekki fá þetta
fylgi sem við sjáum í kosningum.
Þótt margir séu Framsóknarmenn
í grunninn kjósa þeir ekki blint
heldur leita annað ef þeir telja þá
geta sinnt verkefninu betur.“
Klofningurinn skildi eftir sár
Forveri Stefáns í oddvitasætinu
var Gunnar Bragi Sveinsson, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, sem
gekk til liðs við Miðflokkinn eftir
klofninginn árið 2016. Stefán segir
klofninginn hafa tekið sinn toll í
Skagafirði eins og annars staðar.
„Þetta var einn ömurlegasti tími
sem ég hef upplifað í pólitík og skildi
eftir sig djúp sár í f lokknum,“ segir
hann. Leiðir f lokkanna tveggja hafi
þó legið í ólíkar áttir. „Ef þú horfir
á stefnumál Framsóknarflokksins
og Miðflokksins í dag sérðu að þeir
eru ekki mjög líkir.“ Hann segir Mið-
flokkinn í dag eiga meira sammerkt
með flokkum á hægri kantinum en
á miðjunni.
Hvað persónuleg særindi varðar
segir Stefán tímann lækna þau, og á
einhverjum tímapunkti verði gróið
um heilt. „Fólk er misjafnlega langt
komið í því ferli en ég held að flestir
horfi fremur fram á veginn en til
baka,“ segir hann.
Byggðamálin brýnust
Stefán hefur haft augastað á lands-
málunum um nokkurt skeið en
þegar klofningurinn var að eiga
sér stað fannst honum ekki rétti
tímapunkturinn til að sækjast eftir
þingsæti. Upphaflega stefndi hann
á annað sætið í prófkjöri en þegar
Ásmundur Einar Daðason félags-
málaráðherra ákvað að færa sig í
annað Reykjavíkurkjördæmið tók
Stefán af skarið og sigraði í próf-
kjörinu. Mun hann því leiða lista
Framsóknarmanna í Norðvestur-
kjördæmi í september.
Stefán segir prófkjörið hafa hjálp-
að við ákvörðunina, því þá væri ljóst
að grasrótin væri að baki honum en
ekki þröngur hópur í uppstillingar-
nefnd. Aðspurður hverju hann von-
ast til að koma til leiðar segir hann
byggðamálin verða efst á baugi.
„Byggðamálin eiga hug minn og
hjarta og það þarf að gera verulegt
átak í þeim málum á landsvísu,“
segir hann. „Það er gríðarlegur
aðstöðumunur hjá fólki sem býr á
höfuðborgarsvæðinu og því sem
býr á Bíldudal eða Hvammstanga.
Það er sama til hvers er horft, sam-
göngumála, heilbrigðisþjónustu eða
annars, það hallar alltaf á lands-
byggðina. Þegar gögn frá Byggða-
stofnun og Háskólanum á Akureyri
eru skoðuð kemur alltaf í ljós að það
hallar mest á Vestfirði og Norður-
land vestra. Þarna þarf að stíga inn
í.“
Spurður um núverandi ríkis-
stjórn segir Stefán hana hafa staðið
sig vel í erfiðum aðstæðum og sér
ekki ástæðu til annars en að fram-
hald verði skoðað, haldi fylgið.
Enginn hefði getað ímyndað sér þau
verkefni sem þau fengu í fangið.
„Faraldurinn litar allt og mun lita
næsta kjörtímabil einnig. Árin eftir
bankahrunið var farið í fækkun
opinberra starfa á landsbyggðinni,
þar á meðal tuga starfa hér í Skaga-
firði sem svæðið var lengi að jafna
sig á. Ég hef áhyggjur af því að það
sama gæti gerst núna,“ segir Stefán.
„Við sjáum fram á erfið ár og það
þarf að taka skynsamlega á málum.“
Stefán fékk morðhótanir eftir að ísbirnirnir tveir voru felldir og dýraverndunarsinnar í Kanada lögðu fé til höfuðs honum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Lögreglumennirnir og björninn mættust á Þverárfjalli og við tók eltingarleikur niður hlíðina. MYND/PÁLL FRIÐRIKSSON
VIÐ HLUPUM NIÐUR OG
BJÖRNINN TÓK Á SPRETT
Á EFTIR.
↣
ÞETTA VAR EINN ÖMUR-
LEGASTI TÍMI SEM ÉG HEF
UPPLIFAÐ Í PÓLITÍK OG
SKYLDI EFTIR SIG DJÚP
SÁR Í FLOKKNUM.
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð