Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 24
SIKILEYINGAR ERU ÓTRÚ- LEGT FÓLK OG MÉR VAR SÍFELLT BOÐIÐ Í HEIM- SÓKNIR OG MAT TIL ÓKUNNUGRA, EN SJÁLF VIL ÉG HELST EKKI FÁ NEINN HEIM TIL MÍN OG ALLS EKKI ÓBOÐNA GESTI. Berglind hefur undanfarið bólusett þjóðina auk þess að undirbúa sjónvarpsþáttaröð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Berglind Guðmunds-dóttir hefur frá árinu 2012 haldið úti upp-skriftavefnum Gulur, rauður, grænn og salt, sem notið hefur mikilla vinsælda. En Berglind er ekki aðeins ástríðukokkur því hún er einnig menntaður hjúkrunarfræðingur og er ein þeirra sem sneru aftur til starfa þegar heimsfaraldur skall á. „Ég er búin að vera í COVID-ráð- gjöf hjá Læknavaktinni í rúmt ár, en er núna í bólusetningunum,“ útskýrir Berglind, sem segir mikla stemningu myndast í Laugardals- höllinni þessa dagana þar sem þjóðin er bólusett í skömmtum. Bólusetningarvinnan gefandi „Það er svo gefandi að vinna við þetta enda allir sem mæta svo glaðir. Það hefur verið gaman að fylgjast með öllu þessu ferli enda hefur maður upplifað fólk hrætt og vonlaust og í þessari miklu óvissu, yfir svo í það núna að lausnin sé í sjónmáli og jákvæðir tímar fram undan.“ Berglind segir það hafa verið kærkomið að sinna starfi hjúkr- unarfræðingsins undanfarið, en hún hafði lengi einbeitt sér alfarið að starfinu í kringum uppskrifta- vefinn. „Þó mér finnist mjög gott að vinna heima þá er það ekki hollt til lengdar enda verður maður svo sjálf hverfur. Þetta verkefni kom upp í hendurnar á mér og hefur verið yndislegt og þó svo álagið hafi á köflum verið mikið þá hentar tarnavinna mér vel. Auðvitað bjóst maður þó við því að þetta yrði skemmri tími,“ segir Berglind sem hefur undanfarið horft þrjá mánuði fram í tímann. Þar sem við Berglind sitjum yfir hádegismat á veitingastað í mið- bænum og ræðum stemninguna í Laugardalshöllinni, þar sem Sin- fóníuhljómsveit Íslands lék fyrir bólusetta í vikunni, vindur starfs- maður staðarins sér að okkur. Hún segist ekki hafa komist hjá því að heyra að Berglind starfaði við bólu- setningarnar, sjálf hafi hún mætt í vikunni og vildi einfaldlega þakka fyrir sig. Matur fyrir sálina Fyrir utan uppgripin í hjúkrunar- starfinu undanfarið hefur Berglind verið sjálfstætt starfandi lengi og eðli málsins samkvæmt er mis- mikið að gera. „Stundum hugsa ég að ég ætti að sækja um venjulegt starf en yfir- leitt þegar ég ætla að fara að gera það kemur eitthvað upp sem togar mig til baka. Ég elska það sem ég er að gera enda mjög fjölbreytt,“ segir Berglind, sem hefur verið dugleg við að skapa sér tækifæri og nýjasta útspilið er hlaðvarp sem nefnist Matur fyrir sálina. „Þar ræði ég við gesti um andleg málefni sem ég hef mikinn áhuga á. Ég vil að hlaðvarp- ið virki hvetjandi og þar fái ólíkar raddir að heyrast.“ Matarástríðan hefur fylgt Berg- lindi frá unga aldri. „Ég var alltaf að baksa eitthvað í eldhúsinu, mömmu minni til mikillar mæðu, enda var ég ekki jafn dugleg að ganga frá eftir mig. Ég hef alveg reynt það en það bara býr ekki í mér, ég er svo spennt fyrir útkomunni að það tekst aldrei að ganga frá jafnóðum. Hugmyndin að vefnum kom þegar Berglind kom heim frá Barcel- ona árið 2012. „Þegar við komum heim í haustlægðina kom þessi hugmynd til mín. Þetta var eitthvað sem ég átti bara að gera frekar en að ég hafi ákveðið það. Ég trúi því að maður sé svolítið leiddur áfram,“ segir hún einlæg. „Til að endast í þessu þarf að hafa ástríðuna. Maður verður að elska þetta,“ segir Berg- lind, en miklu skiptir að virknin sé stöðug og fyrstu tvö árin lagði hún mikið upp úr því að birta minnst tvær til þrjár uppskriftir á viku. Matur má vera fljótlegur Berglind segist sækja sér innblástur víða og eins aðlaga hinar og þessar uppskriftir sjálfri sér. „Stundum fæ ég svo uppskriftir frá vinkonum og sumt kemur bara frá mömmu eða hefur fylgt mér heillengi. Eins fæ ég uppskriftir af erlendum síðum og merki þær þá þannig.“ Berglind segist hrifnust af Mið- jarðarhafsmataræðinu. „Ég elska litríkan mat og þar sem ég er ekki dugleg að skreyta þá er það kostur að slíkur matur skreytir sig sjálfur. Ég hef líka áttað mig á því að matur er ekkert endilega betri þó maður sé lengi að matreiða hann. Ég elda í raun allt nema íslenskan mat,“ segir hún og hlær. Talið berst að færni í eldhúsinu sem ekki sé öllum gefin og segir Berglind: „Maður á að elta ástríðu sína og það er óþarfi að skammast sín fyrir að vera ekki góður í að elda. Ég er til dæmis ekki að fara að sjá um bókhaldið fyrir neinn,“ segir hún með áherslu. Hún segist jafnframt birta uppskriftir án þess þó að skrifa mikið um þær eins og sumir vinsælir matarbloggarar geri. „Sumir geta samið ljóð um mat en ég er svo grófgerð að ég er meira: „Hér er matur, hann er góður – borðaðu hann!“ segir hún og skellir upp úr. Fór ein til Sikileyjar Á fimmtudaginn birtist fyrsti þátt- ur af fjórum í þáttaröðinni Aldrei ein í Sjónvarpi Símans, en í þátt- unum kynnir Berglind sér matar- menningu Sikileyinga. Berglind hafði heimsótt Ítalíu í þó nokkur skipti, en sumarið 2019 voru börnin hennar á leið í mánaðar sumarfrí til föður síns og hún vissi ekki hvað hún ætlaði sér að gera á meðan. „Ég opnaði þá f lugleitar- vélina Dohop og skrifaði „Take me anywhere!“. Kom þá upp borgin Catania á Sikiley. Miðinn þangað kostaði bara rúmar 20 þúsund krónur svo ég ákvað að kaupa hann þó ég vissi ekki hvort ég færi.“ Tveimur dögum fyrir brottför var Berglind enn óviss en fyrir hvatningu vinkonu sinnar fór hún af stað með þá hugsun að þá kæmi hún bara fyrr heim ef henni líkaði ekki. „Ég valdi mér svo gistingu í þrjá til fimm daga í einu og flakkaði þannig um alla eyjuna. Þetta var yndisleg ferð og ég naut mín ein á ferð. Það er í raun fyndið að þættirnir heiti Aldrei ein, því ég er alltaf ein,“ segir Berglind í léttum tón. „Ég vinn ein og er mikið ein, en er þó aldrei ein- mana,“ segir Berglind sem er ein- stæð, fjögurra barna móðir. Hjörtu og dyr Sikileyinga opin „Sikileyingar eru ótrúlegt fólk og mér var sífellt boðið í heimsóknir og mat til ókunnugra, en sjálf er ég ekki mikið að taka á móti ókunn- ugum og vil helst ekki fá óboðna gesti. Þessi munur fannst mér svo merkilegur, hér höldum við fundi á veitingastöðum en þeir vilja fá alla heim og eru alltaf með opið hjarta. Ég fór til að mynda í mat til bændahjóna sem bjuggu í eins og hálfs klukkutíma fjarlægð frá mér. Þangað var yndislegt að koma, enda rækta þau sínar eigin sítrónur, app- elsínur og kryddjurtir. Eftir kvöld- verðinn tóku þau ekki í mál að ég pantaði mér bíl til baka heldur vildu foreldrar þeirra á áttræðisaldri endilega skutla mér, sem þau gerðu og hlógu alla leiðina. Ég efast um að ég væri til í að skutla vini unglings- sonarins til Keflavíkur á miðnætti,“ segir Berglind í léttum tón. Það er augljóst að Berglind er heilluð af eyjunni og íbúum henn- ar. „Sikileyingar tala litla ensku en langar svo að tala við mann og nota því mikið látbragð. Eyjan er líka enn svo ósnortin og ekki full af ferðamönnum.“ Berglind segist hafa verið hissa á því hversu mikinn fisk heimamenn borða, jafnvel tvisvar á dag. Sjálf viðurkennir hún að hafa stundum langað í eitthvað annað. „Þá þóttist ég vera vegan.“ Eftir þrjár vikur á Sikiley hélt Berglind aftur heim, reynslunni ríkari og langaði að miðla töfrum eyjunnar til samlanda sinna. Úr varð svo að í október síðastliðnum sneri hún aftur ásamt tökumanni og framleiðanda og má afrakstur- inn nú sjá í þáttunum Aldrei ein. Mikilvægt að elta ástríðu sína Matargerð er ástríða Berglindar Guðmundsdóttur, en einskær tilviljun réð því að hún varði þremur vikum ein síns liðs á Sikiley árið 2019. Sú reynsla varð til þess að hún hélt þangað aftur nýverið, þá með tökulið með sér. Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is Berglind opnar kampavín með sverði á Gambini-vínekrunni. MYND/AÐSEND 2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.