Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 43
Við leitum að liðsauka til að starfa á sviði sjálfbærni ásamt okkar öfluga hópi.
Umsækjendur þurfa að hafa brennandi áhuga á sjálfbærni og öllu sem henni tengist,
hafa metnað og sýna frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Þar sem verkefnin okkar eru
víða um heim er mikilvægt að umsækjendur hafi gott vald á íslensku, ensku og einu
Norðurlandamáli.
SJÁLFBÆRNI Í MANNVIRKJAGERÐ
Helstu verkefni á sviði sjálfbærni í mannvirkjagerð eru m.a. innivist og orkunýting
bygginga, mat á vistvænum byggingarefnum, greining lífsferilskostnaðar (LCC),
umhverfisvottanir, s.s. BREEAM og Svanurinn og útreikningar á kolefnisspori.
• Umsækjendur þurfa að hafa próf í verkfræði eða tæknifræði og hafa þekkingu á
einhverjum af ofantöldum verkefnum
• Reynsla af mannvirkjahönnun og stjórnun verkefna er æskileg
SJÁLFBÆRNI INNVIÐA, ORKU OG SKIPULAGS
Helstu verkefni á sviði sjálfbærni innviða, orku og skipulags eru m.a. lífsferilsgreiningar
(LCA), umhverfisvottanir, s.s. BREEAM, útreikningar og aðgerðir vegna vistspora og
loftslagsmála, blágrænar ofanvatnslausnir og orkuskipti í samgöngum og innviðum.
• Umsækjendur þurfa að hafa próf í verkfræði, skipulagsfræði, umhverfisfræði eða
annað háskólapróf sem nýtist í starfi
• Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi þekkingu á einhverjum af ofantöldum
verkefnum og reynsla af stjórnun verkefna er æskileg
Nánari upplýsingar veita:
Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is
Áslaug Ósk Alfreðsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí. Sótt er um á umsokn.verkis.is
VERKÍS veitir trausta ráðgjöf sem styður
við uppbyggingu sjálfbærra samfélaga.
Við höfum mikla þekkingu á sviði
vistvænnar hönnunar og erum leiðandi
á heimsvísu þegar kemur að grænni
orkuvinnslu og nýtingu jarðvarma.
Við byggjum upp sjálfbær samfélög víða
um heim með því að hafa sjálfbærni alltaf
í huga við ákvarðanatöku – allt frá fystu
hugmynd til förgunar.
Sérfræðingar
í sjálfbærni
VIÐ BYGGJUM UPP
SAMFÉLÖG