Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 82
ÞEGAR KENNARI
GERÐI ATHUGA-
SEMDIR VIÐ VERK SEM ÉG VAR
AÐ GERA ÞÁ BÖLVAÐI ÉG, REIF
VERKIÐ, STRUNSAÐI ÚT OG KOM
ALDREI AFTUR.
Í Gallerí Fold stendur yfir sýning á olíumálverkum listamannsins Harry Bilson, en 25 ár eru liðin frá því hann hélt þar fyrst sýningu. Sam-starf hans og gallerísins hefur
verið einkar farsælt. Á sýningunni,
sem stendur til 2. maí, eru ný verk
og úrval verka listamannsins frá
fyrri árum.
Bilson fæddist á Íslandi árið 1948
í húsi ömmu sinnar á Laugavegi.
Móðir hans var íslensk en faðirinn
breskur. Hann flutti með foreldrum
sínum til Englands fimm ára gam-
all. „Þá talaði ég bara íslensku, sem
skapaði vandamál því strákarnir í
skólanum vildu endilega lumbra á
mér vegna þess að ég var öðruvísi.
Þeir umkringdu mig, spörkuðu í
mig, börðu mig og hentu hlutum
í mig. Ástandið varð svo slæmt að
mér var haldið inni í frímínútum,
settur inn í herbergi og fyrir framan
mig voru settir litir og pappír. Ég
byrjaði að mála.“
Hann segir að vegna eineltisins
og of beldisins sem hann varð fyrir
í skóla hafi hann glatað íslensku-
kunnáttunni. „Það að tala íslensku
jafngilti í mínum huga því að ég yrði
laminn. Í dag tala ég íslensku en
málfræðin þvælist fyrir mér, það má
segja að ég skilji meira en ég tala.“
Sex ára gamall var hann sigurveg-
ari á alþjóðlegri sýningu á barnalist
í Prag. „Kennararnir vildu áfram
halda mér frá hinum krökkunum í
frímínútum. Svo kom að því að ég
sagðist ég ekki vilja mála lengur. Ég
vildi leika við hin börnin, jafnvel
þótt ég ætti á hættu að verða lam-
inn. Eftir nokkurn tíma vaknaði
áhuginn á myndlist að nýju og það
eina sem mig langaði að gera var að
mála.“
Strunsaði út
Hann var nítján ára gamall þegar
hann seldi fyrstu mynd sína fyrir
19 pund. „Á þessum árum vann ég
ýmis störf eldsnemma á morgnana
til að geta málað síðdegis. Eitt starf-
anna var að skríða milli bíósæt-
anna klukkan fjögur á morgnana
og hreinsa upp það sem fólk hafði
skilið eftir. Þetta var á þeim tímum
þegar reykingar voru leyfðar í kvik-
myndahúsum og þarna fann ég
furðulegustu hluti. Ég var tuttugu
og þriggja ára þegar ég fór að selja
verk mín í nokkrum mæli og hef
verið listmálari upp frá því.“
Í myndlistinni er hann að mestu
sjálfmenntaður. „Ég stundaði nám
í mjög stuttan tíma í Saint Martin’s
School of Art. Ég var og er með stórt
egó. Þegar kennari gerði athuga-
semdir við verk sem ég var að gera
þá bölvaði ég, reif verkið, strunsaði
út og kom aldrei aftur.“
Sér hann eftir því að hafa ekki
menntast meira? „Bæði og,“ segir
hann. „Ég sé eftir því að því leyti að
ég hefði getað lært meira um tækni
en um leið var ég heppinn því mér
var ekki beint í neina ákveðna átt og
lærði af reynslunni og verkum lista-
manna sem ég dáðist að. Ég gerði
fullt af mistökum og fór í alls konar
áttir og kannaði alls kyns svæði sem
leiddu til þess að ég er þar sem ég er
í dag.“
Eastwood keypti verk
Hann segist fá stöðugan innblástur
af umhverfinu. „Að mála er eins og
að vera í hugleiðsluástandi. Eftir
tuttugu mínútna vinnu er ég allur
útataður í málningu og gólfið sömu-
leiðis. Ég ranka við mér forviða og
hugsa: Hvað í ósköpunum gekk á!“
Hann hefur selt myndir um allan
heim. Fyrrverandi forsætisráðherra
Ástralíu, Bob Hawke, var meðal
vina hans og átti myndir eftir hann.
Zsa Zsa Gabor keypti sömuleiðis
verk af honum. Clint Eastwood
keypti verk eftir hann í gegnum
gallerí í Carmel þar sem hann var
bæjarstjóri. Leikarinn Jack Palance
keypti einnig nokkur málverk eftir
hann. „Palance var skemmtilegur
náungi. Ég fór nokkrum sinnum
út að borða með honum og þá var
stöðugt verið að truf la hann og
biðja hann um eiginhandaráritanir.
Hann tók því alltaf vel vegna þess að
hann vissi að hann ætti velgengni
sína aðdáendunum að þakka.“
Bilson segist engan áhuga hafa
á sviðsljósinu. „Það fræga fólk sem
ég þekki nýtur einskis frelsis,“ segir
hann. Hann segist ætla að mála
fram í andlátið. Hann á sér áhuga-
mál sem færri vita af en hann hefur
skemmt sér við að semja smásögur,
sem hann segist eiga eftir að fín-
pússa.
Að mála er eins og að vera í hugleiðsluástandi
Harry Bilson sýnir olíumálverk í Gallerí Fold en 25 ár eru síðan hann sýndi þar fyrst. Varð fyrir ofbeldi í
skóla vegna þess að hann talaði íslensku. Selur málverk um allan heim. Clint Eastwood á verk eftir hann.
Harry Bilson hefur selt myndir sínar um allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Myndir á sýningu Bilsons í Gallerí Fold. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
06.03.–19.09.2021
Sigurhans Vignir
Hið þögla en göfuga mál
www.borgarsogusafn.is
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING