Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 30
vitna í skrif Ragnars Inga Aðal- steinssonar á bókarkápunni en þar segir hinn þekkti hagyrðingur: „Eðvarð er hagorður, hug- kvæmur, orðfær og fyndinn. Víða má greina hlýjar tilfinningar til samferðamannanna en svo er líka skotið föstum skotum. Eðvarð er óhræddur við að segja meiningu sína og vanur að komast strax að efninu, ákveðið og umbúða- laust. Ljóðin eru ort af mikilli fimi, brageyrað er næmt og hrynjandi ljóðanna falleg og grípandi. Virðingin fyrir æskustöðvunum er mikil og gefur sterkan undirtón í gegnum bókina líkt og kemur fram í ljóði hans um Súgandafjörð: Ég hef ævina alla unað við þennan fjörð, fáir fegurri staðir finnast á þessari jörð. „Halldór Blöndal sem sér um Vísnahorn Morgunblaðsins gaf honum sömuleiðis góðan vitnis- burð í vetur og sagði hann „átt- hagaskáld eins og þau gerast best.“ Flottur vitnisburður sem pabbi fær þarna,“ segir Sigrún Edda. Sigrún segir að bókinni hafi verið vel tekið og að margt sem faðir hennar yrkir um sé áhuga- verður spegill á samfélagið frá þeim tíma sem hann vann að sveitarstjórnarmálum. „Hann dregur fátt undan er snýr að honum sjálfum persónulega auk þess sem hann deilir áhyggj- um af stöðu hinna minni byggða sem eiga allt undir sjávarútvegi, líkt og Suðureyri sem byggst hefur upp vegna nálægðar sinnar við fengsæl fiskimið.“ Ágóðinn til Suðureyrarkirkju „Það er töluvert síðan ég nefndi við pabba að mig langaði til að gefa út ljóðin hans og varðveita í eigulegri og fallegri bók. Í heimsfaraldr- inum skapaðist loks rými til að ljúka þeirri vinnu og má segja að síðastliðið ár hafi verið nýtt til hins ýtrasta enda úr miklu að moða,“ segir Sigrún. „Við fjölskyldan getum þakkað henni mömmu sérstaklega fyrir hvað hún hefur verið einstaklega dugleg að halda blaðsneplunum hans pabba til haga í gegnum árin.“ Eftir að bókin kom út ákváðu þau feðginin að gefa ágóða bókar- innar til endurbóta á Suðureyrar- kirkju en kirkjan er fjölskyldunni afar kær. „Kirkjan var reist árið 1937 en pabbi var skírður þar við vígsluna af Jóni Helgasyni biskupi við hátíð- lega athöfn 1. ágúst það sama ár. Að undanförnu hefur verið unnið að því að fjármagna nauðsynlegar og brýnar endurbætur á bæði innra og ytra byrði kirkjunnar og standa þær endurbætur sem og fjáröflun nú yfir. Okkur finnst því vel við hæfi að leggja kirkjunni lið í þessu risastóra verkefni. Það er óhætt að segja að kirkjan eigi sér marga velunnara enda rætur margra sterkar í fjörðinn og margir sem vilja leggja sitt af mörkum til samfélagsins þar, líkt og við,“ segir Sigrún. Sigrún segir að þau feðgin séu ágætlega náin, sem og fjölskyldan öll. „Eitt af því sem maður getur sagt að maður taki með sér úr föður- garði er án efa ræktarsemin við fólkið og heimahagana. Það hefur verið mikill heiður að vinna að undirbúningi þessarar bókar sem geymir eins og ég hef nefnt hug- renningar pabba um fjörðinn okkar og fólkið og allt þar á milli og varð- veita um ókomin ár hans hjartans fjársjóð með þessum hætti.“ Á æskuslóð Það er indælt að koma á æsku- stöðvarnar heima, una glaður og hitta vinina hér. Bernskuslóðirnar margs konar minningar geyma sem munu lifa, sama hvert maður fer. Ýmislegt breytist en tímans tönn hlífir engu, tækniframfarir markið setja á flest. Brottfluttir gestir hressir um göt- urnar gengu glaðir í fasi og reyndu að skoða sem mest. Margt var breytt og ekki eins og fannst mér forðum, fjölmargt til bóta og ekki líkt því sem var, sumt var miður, ég nefni það ekki í orðum, fyrr iðandi mannlíf fyllti hér göt- urnar. En þessu verður að una með ein- hverju móti því ennþá stjórnmálaspekin á ferðinni er, hið slæma sem gerðist, er síðan settur var kvóti var sóknin til lífsbjargar tekin af fólkinu hér. Einhvern veginn áfram er vefurinn spunninn og ýmsir neita að gefa þetta upp á bát, en búast til varnar og sækja uns sigur er unninn, þeir Súgfirðingar neita að játa sig mát. Vorið svífur um Súgandafjörð Nú ilmar loftið og angar jörð þó allvíða gróður sé kalinn. Vorið svífur um Súgandafjörð og sindrar á fjörðinn og dalinn. (úr bókinni Ljóðin hans pabba) Sigrún og eiginmaður hennar Eyþór Páll eiga og reka fyrirtækið Prentmiðlun, sem þjónar útgef- endum, stórum sem smáum, við framleiðslu bóka. „Það var því frekar skrítin til- hugsun að vera allt í einu komin hinum megin við borðið sem útgefandi við gerð þessarar bókar. Eitt er að ritstýra og huga að upp- setningu og útliti. Annað er að velja pappír og bókbandsefni sem og kjölkraga og lesmerkiborða eða allt það sem prýða á vandaða og fallega bók. Þetta er eitthvað sem ég hafði ekki staðið frammi fyrir áður nema að takmörkuðu leyti en virkilega skemmtilegt og lærdómsríkt ferli þegar maður lítur til baka,“ segir Sigrún. Hún er mjög sátt við hvernig til tókst en segir pabba sinn hafa haft á orði að bókin sé persónulegri en hann sá kannski fyrir sér í fyrstu. „Þetta er fyrsta ljóðabókin sem gefin er út með vísum og ljóðum eftir hann, en hann er nýorðinn 84 ára svo það má segja að bókin hafi verið orðin löngu tímabær enda af nægu að taka. Við hefðum vel getað skellt í tveggja binda verk þar sem pabbi hefur verið iðinn við að semja við hin ýmsu tilefni í gegnum árin. Ég á hins vegar ekki von á því að við gefum út aðra bók þó maður eigi kannski aldrei að segja aldrei,“ segir Sigrún. „Líkt og titill bókarinnar Ljóðin hans pabba gefur í skyn þá er bókin mjög persónuleg og ég ætla að leyfa mér að segja að það sé ekki oft sem maður sér slíkar ljóðabækur en á sama tíma gefur hún manni innsýn í líf og störf í litlum firði. Pabbi er fæddur og uppalinn á Suðureyri við Súganda- fjörð og bjó þar í 68 ár eða þar til foreldrar mínir fluttu suður árið 2005. Maður þarf ekki að vera Súg- firðingur til að geta notið hennar en bókin geymir á vissan hátt sögu fólksins og fjarðarins sem og per- sónuleg hugðarefni pabba.“ Segir meiningu sína Sigrún segir að pabbi hennar hafi í gegnum árin hvorki legið yfir kveðskap, né skoðunum sínum og að þeir sem til hans þekkja viti það. Hann hefur löngum verið þekktur fyrir að hugsa hratt og tala hratt og kasta þannig fram stöku við hin ýmsu tækifæri, sjálfum sér og öðrum til skemmtunar. Aðspurð um hvað bókin fjallar segir Sigrún að kannski sé best að Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@ frettabladid.is Sigrún segir þá hugmynd hafa komið upp fyrir þónokkru að gefa út ljóð föður síns. Þau feðgin nýttu svo tækifærið í heimsfaraldr- inum. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI Bókin Ljóðin hans pabba er fyrsta bókin sem kemur út með ljóðum Eð- varðs sem er 84 ára gamall. Við hefðum vel getað skellt í tveggja binda verk þar sem pabbi hefur verið iðinn við að semja við hin ýmsu tilefni í gegn- um árin. Sigrún Edda Eðvarðsdóttir 2 kynningarblað A L LT 24. apríl 2021 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.