Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 63
www.namskeid.matis.is
Vefnámskeið fyrir
smáframleiðendur
matvæla
Leyfismál, gæðahandbók og stofnun fyrirtækja
Örverur á kjöti
Slátrun og kjötmat
Söltun og reyking
Umbúðamerkingar matvæla og pökkun
Hráverkun og pylsugerð
Sögun, úrbeining og marinering
Námskeið í boði:
Eldislax alinn í sjókvíum er
ekki umhverfisvæn matvara og
sleppifiskur úr eldi skaðar villta
laxastofna með erfðablöndun.
Eldislax drepst í stórum stíl í
sjókvíum því hann þolir illa
aðbúnaðinn og kvíarnar geta haft
mjög skaðleg og víðtæk umhverf-
isáhrif.
Hvorki „sjálfbær“ né „umhverfis
vænn“. Norski sjókvíaeldisrisinn
Mowi neyddist á dögunum til þess
að fjarlæga þessi orð af umbúðum
eldislax sem seldur er í Bandaríkj
unum því þessar merkingar töldust
„falskar, misvísandi og blekkjandi“
eins og það var orðað í sátt í mála
ferlum á hendur fyrirtækinu.
Að auki borgað fyrirtækið 1,3
milljónir dollara, eða sem nemur
169 milljónum króna, til að forða
sér frá dómsmáli. Fyrirtækið kaus
að semja og hætta þegar í stað að
merkja umbúðirnar utan um þessa
framleiðslu því það vissi sem er,
eldislax alinn í sjókvíum er ekki
sjálfbær eða umhverfisvæn mat
vara.
Skelfilegur dýravelferðarvandi
Sjókvíaeldi á fiski er eina dýrapró
teinframleiðslan á iðnaðarskala
sem skaðar villta stofna með erfða
blöndun og mögulegum, óaftur
kræfum afleiðingum. Ástæðan
er einföld. Ólíkt búdýrahaldi á
landi byggist eldi í sjó á villtum
dýrategundum en ekki húsdýrum
sem hafa verið með mannkyni
í aldir eða árþúsund. Þessum
fisktegundum hefur verið breytt
á síðustu áratugum með því sem
ræktendur kalla kynbætur. Eldis
lax vex til dæmis miklu hraðar og
verður þyngri en villtur lax. Þeir
eiginleikar gefa af sér meiri hagnað
fyrir eigendur sjókvíaeldisfyrir
tækjanna en eru hins vegar veru
lega hættulegir villtum stofnum
sem hafa aðlagast umhverfi sínu og
aðstæðum með mörg þúsund ára
náttúruvali. Að fá DNA úr eldisdýri
getur kollvarpað þeirri þróunar
sögu.
Aðbúnaður í eldi í sjó hentar
svo þessum „kynbættu“ fram
leiðsluvænu villtu tegundum afar
mismunandi. Sumum mun verr
en öðrum, sem birtist í mikilli
vanlíðan og háu dauðahlutfalli
eldisdýra.
Þetta á til dæmis við um lax, sem
drepst í stórum stíl í sjókvíum því
hann þolir illa aðbúnaðinn þar.
Að jafnaði er um helmingur allra
eldislaxa í sjókví vanskapaður,
heyrnarlaus eða nær ekki fullum
þroska vegna þeirra aðstæðna sem
eldislax þarf að lifa við þau tvö ár
sem hann er hafður í sjó.
Dýravelferðarvandi sjókvía
eldisiðnaðarins er á slíkum skala
að ræktendur spendýra og alifugla
kæmust aldrei upp með álíka
starfshætti.
Dauði utan sjókvíanna líka
En vandamál þessa iðnaðar eru
miklu fleiri. Sjókvíaeldi hefur líka
í för með sér dauða alls kyns dýra
utan sjókvíanna. Sníkjudýr og
sjúkdómar streyma óhindrað út
úr netapokunum með ömurlegum
afleiðingum. Botndýralíf þurrkast
út undir kvíunum því þar safnast
þykkt lag af úrgangi og rotnandi
fóðurleifum. Í þessu setlagi, sem
getur verið margra metra þykkt,
safnast svo upp leifar af lyfjum
og eitri sem er notað við fram
leiðsluna og í sumum tilfellum líka
kopar sem fyrirtækin nota til að
húða netmöskvana og spara sér
þannig þrif á þeim (koparinn er
ásetuvörn gagnvart gróðri og skel
dýrum).
Kopar eyðist ekki af sjálfu
sér í náttúrunni og hleðst upp í
umhverfinu með miklum skaða
fyrir lífríkið. Hér við land hafa
bæði Arnarlax og Arctic Sea Farm
orðið uppvís að því að nota kopar
húðuð net í sjókvíum þrátt fyrir
að það sé skýrt brot á starfsleyfi
þeirra.
Sníkjudýrin úr sjókvíunum,
laxa og fiskilús, er svo sérlega
skeinuhætt ungviði villtra laxa
stofna, urriða og sjóbleikju.
Rannsóknir frá Noregi sýna að
villt laxaseiði stráfalla ef þau lenda
í lúsageri frá sjókvíum á leiðinni
til fæðustöðva sinna í hafinu.
Sjókvíaeldi við Noreg á stóran þátt
í því að á undanförnum áratugum
hefur villtum laxi sem skilar sér í
norskar ár úr sjó fækkað um meira
en helming.
Þessi iðnaður skilur þannig
víða eftir sig djúp og skaðleg spor.
Við hjá Íslenska náttúruverndar
sjóðnum – The Icelandic Wildlife
Fund höfum kallað þau helspor
sjókvíaeldsins. Það er ótrúleg
tímaskekkja að þessi starfsemi sé
enn að fá leyfi til að breiða úr sér
í fjörðum landsins. Sjókvíaeldi er
ekki boðleg aðferð við matvæla
framleiðslu.
Við bendum þeim sem hafa áhuga
á að kynna sér þessi mál betur á
heimasíðu okkar iwf.is og síðu
okkar á Facebook.
Helspor sjókvíaeldisins
Eldislax í sjókví í Berufirði. Að jafnaði er um helmingur eldislaxa í sjókví vanskapaður, heyrnarlaus eða nær ekki
fullum þroska vegna þeirra aðstæðna sem þeir lifa við þau tvö ár sem þeir eru hafðir í sjó. MYND/ÓSKARPÁLLSVEINSSON
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
Austurströnd 14 • Hringbraut 35
....................................................Sími: 561 1433
www.bjornsbakari.is
MUNDU EFTIR GÖMLU GÓÐU
AFMÆLISKRINGLUNNI
- fyrir 25-30 manns
SUM RTILBOÐ
PAVLOVA
1.950 KR.-
Tilboð gildir frá 22. apríl til 2. maí
kynningarblað 7LAUGARDAGUR 24. apríl 2021 MATVÆLAIÐNAÐUR Í ÍSLANDI