Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 28
Góður andi þrátt fyrir erfiðleika Þrír af blaðamönnum Fréttablaðsins í árdaga þess rifja hér upp frumkvöðlakraftinn sem einkenndi útgáfu fyrsta fríblaðs á Íslandi fyrir tuttugu árum, en líka þrengingar og óvissu á upphafsárinu. Alltaf var þó gaman. Brynjólfur Þór Guðmundsson, sem nú er fréttamaður á Rík-isútvarpinu, var í upphafsliði Fréttablaðsins fyrir 20 árum. „Ég var nýbyrjaður í fréttamennsku. Var búinn að vera hálft ár á netmiðl- inum visir.is sem var í eigu sömu manna og Fréttablaðið og tengdist bæði DV og Degi. Ritstjórnir net- miðilsins og Fréttablaðsins voru sameinaðar viku áður en blaðið byrjaði að koma út og ég fór að skrifa í það. Var mest í almennum fréttum, um tíma í stjórnmálafrétt- um og stundum vaktstjórn þar til ég hætti eftir fjögur ár.“ Starfsliðið samanstóð af ungu fólki og nokkrum reynsluboltum inn á milli, að sögn Brynjólfs. „Við vorum að gera eitthvað nýtt sem dreif okkur áfram og vorum sann- færð um ágæti verkefnisins. Annars held ég að Fréttablaðið hefði lognast fljótt út af, það var svo illa fjármagn- að. Við fengum ekki útborgað á réttum tíma nema einu sinni fyrstu fjórtán mánuðina og þá uppgötv- aði það enginn fyrr en þriðja dag mánaðarins því það bjóst enginn við því. Það var 3. janúar 2002. Einn vinnufélaginn var hundfúll yfir ára- mótin því hann hélt hann ætti ekki krónu og komst ekki á djammið, honum hafði ekki dottið í hug að athuga það. Sigurjón M. Egilsson fréttastjóri kom með klósettpappír að heiman handa mannskapnum. Það er til marks um hvað staðan var erfið. Fólkið sem sá um þrifin hætti, það fékk ekki laun. Fréttablaðið fór á hausinn eftir árs rekstur en vegna þess hve and- inn var góður í starfshópnum héldu næstum allir áfram eftir að það var endurreist, að sögn Brynjólfs. „Flestir voru þar enn þegar það varð mest lesna dagblað landsins, líklega í mars 2003. Þá var fagnað og það var í fyrsta skipti, svo ég viti til, sem Fréttablaðið borgaði fyrir djamm sem stóð fram eftir nóttu. Gummi Steingríms spilaði á harmóníku og ætli Trausti Hafliða hafi ekki verið á gítarnum? Ég tel að ritstjórnarstefna Fréttablaðsins hafi svínvirkað en mín skoðun er sú að það hefði aldrei náð að verða ársgamalt ef ekki hefði verið fyrir baráttuanda starfsfólksins.“ gun@frettabladid.is Baráttuandi starfsfólksins hélt lífi í blaðinu fyrsta árið „Við starfsfólk- ið vorum sann- færð um ágæti verkefnisins,“ segir Brynjólfur. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Guðsteinn Bjarnason var meðal fyrstu starfsmanna Fréttablaðsins en fór yfir á Fiskifréttir árið 2017. Hann kveðst hafa byrjað blaðamannsferilinn á Tímanum sem breyttist í Dag Tímann – og síðan Dag – en verið boðið starf á Fréttablaðinu, sem var í startholunum þegar Dagur fór á hausinn vorið 2001. Eigendur voru þeir sömu, Eyjólfur Sveinsson og Sveinn R. Eyjólfsson. „Ég held ég hafi byrjað að tína inn einhverjar menningarfréttir og viðburði og sinna erlendum frétt- um,“ segir Guðsteinn um verkefni sín á Fréttablaðinu. „Við hófum störf í gamla Hampiðjuhúsinu, fórum svo á Suðurgötuna og síðan í Skaftahlíðina,“ rifjar hann upp. Mest kveðst Guðsteinn hafa sinnt erlendu fréttunum meðan hann var á blaðinu. „Ég réði mér mikið sjálfur þar, var kannski svo- lítið í mínum heimi en ekki alveg í hringiðu hins íslenska frétta- hasars. Framan af var Google-leitarvélin ekki eins öf lug og nú og ég safnaði fjölmörgum erlendum vefslóðum sem ég fann nýjar fréttir á. Verst var hversu erfitt var að afla mynda, sérstaklega frá Norðurlöndunum og Grænlandi, það stoppaði oft fréttir þaðan sem ég vildi leggja áherslu á. Mér skildist myndaveit- ur þar vera of dýrar fyrir útgáfuna. Við vorum bara með AP og AFP líka. Í byrjun var ég líka að tína inn fréttaskeyti þaðan og umorða þau. Netið var ekki eins fullkomið og síðar varð.“ Einar Karl Haraldsson var rit- stjóri til að byrja með, að sögn Guðsteins. „Gunnar Smári hafði tekið þátt í hugmyndavinnu útgáf- unnar og var í öllu, meðal annars umbrotinu. Hann var gríðarlega áhugasamur og hélt reglulega fræðslufundi. Fljótlega tók hann við ritstjórninni og Jónas Krist- jánsson kom að henni á tímabili.“ Að taka þátt í að búa til nýtt dagblað segir Guðsteinn hafa verið gaman. „Það var frábær andi í hópnum sem að því stóð – en Fréttablaðið fór á hausinn eftir ár, maður fann vel fyrir aðdraganda þess, launagreiðslur drógust á lang- inn og óvissan var mikil. Ég var viðbúinn því að fara í eitt- hvað annað en fyrst hægt var að halda áfram þá gerði ég það. Enda skemmtilegt að vinna með fólkinu þar og reyndar var alltaf gaman á Fréttablaðinu nema þegar upp- sagnahrinur gengu yfir.“ gun@frettabladid.is Safnaði mörgum erlendum vefslóðum og fann nýjar fréttir þar Guðsteinn var mest í er- lendum fréttum og þótti verst að koma ekki Norðurlönd- unum og Græn- landi meira að. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Kristján Hjálmarsson, fram-kvæmdastjóri H:N Markaðs-samskipta, kveðst líklega einn af fimmtán blaðamönnum sem ráðnir voru á Fréttablaðið frá fyrsta degi. „Við byrjuðum í Þverholtinu, í gömlu Ísafoldarprentsmiðjunni. Ætli við Tinni Sveinsson, sonur annars eiganda blaðsins, höfum ekki verið með þeim yngstu? Ég var að minnsta kosti með minnstu starfsreynsluna sem blaðamaður.“ Kristján kveðst hafa ákveðið að starfa við fjölmiðla þegar hann var plötusnúður í grunnskóla. „Um aldamótin stofnuðum við nokkrir félagar heimasíðuna 01.is sem naut mikilla vinsælda hjá ungu fólki. Svo sótti ég um vinnu á Fréttablað- inu, hélt utan um sjónvarpsdag- skrána og skrifaði íþróttafréttir, en blaðið fór svo snemma í prentun á kvöldin að við þurftum að treysta á textavarpið eða húsverði í íþrótta- húsum til að fá úrslit. Jafnvel birta hálf leiks tölur. Kappið var mikið hjá öllum og þetta var ótrúlega skemmtilegur tími því við vorum að vinna frumkvöðlastarf með því að gefa út fríblað. Róbert Reynis- son var eini ljósmyndarinn og sá um myndvinnslu líka, hann vann myrkranna á milli.“ Að sögn Kristjáns valdist vel inn á ritstjórnina. „Þar var rosalega góð stemning, Gunnar Smári og Sigurjón M. Egilssynir voru auð- vitað prímusmótorar. En aðstæður til efnisöflunar voru aðrar en í dag, erlent sjónvarp var yfirleitt í gangi og við horfðum á Tvíburaturnana falla í beinni útsendingu 11. septem- ber 2001. Þá var ekki farið á Inter- netið að fræðast um turnana heldur hlaupið út í bókabúð að kaupa bækur.“ Til marks um samstöðuna í starfshópnum vildu langf lestir halda áfram þegar blaðið hafði verið endurreist eftir gjaldþrot. En Kristján rifjar upp að auðvitað hafi verið leiðindi þegar fulltrúar sýslu- manns komu að innsigla. Fréttablaðið átti velgengni að fagna eftir að það komst aftur á skrið og Kristján minnist könnun- ar í mars 2003 sem sýndi það með mestan lestur dagblaða á landinu. Það var sigur. Hann telur það tvennu að þakka, frídreifingunni og að blaðið náði vel til yngra fólks. Stofnun og gengi Fréttablaðsins varð Kristjáni efni í háskólaritgerð. „Ég átti eftir að klára BA-verkefnið í stjórnmálafræði við HÍ og endaði á að skrifa um Fréttablaðið, undir handleiðslu Þorbjörns Brodda- sonar prófessors. Ég lagði grunn að því í háskóla í Jönköping í Svíþjóð þar sem Lars Åke Ängblom, prófess- or í fjölmiðlafræði og áhugamaður um fríblöð, hvatti mig til þess. Þetta segir sína sögu um hversu vænt mér þótti – og þykir – um Fréttablaðið. Ég var þar í þrettán ár og alltaf hélst góður starfsandi þar, sama hvað gekk á,“ segir Kristján og kveðst hafa unnið við alla hluta blaðsins nema leiðara. „Ég skrifaði líka í kventímaritið Birtu, sem Steinunn Stefánsdóttir ritstýrði. Svo var ég fréttastjóri á visir.is síðasta árið.“ gun@frettabladid.is Valdi Fréttablaðið sem efni í háskólaritgerð Kristján kom að öllum hlutum Fréttablaðsins nema leiðurum á ferli sínum þar og skrifaði líka í Birtu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GUNNAR SMÁRI HAFÐI TEKIÐ ÞÁTT Í HUGMYNDA- VINNU ÚTGÁFUNNAR OG VAR Í ÖLLU, MEÐAL ANN- ARS UMBROTINU. HANN VAR GRÍÐARLEGA ÁHUGA- SAMUR OG HÉLT REGLU- LEGA FRÆÐSLUFUNDI. VIÐ HORFÐUM Á TVÍBURA- TURNANA FALLA Í BEINNI ÚTSENDINGU 11. SEPTEM- BER 2001. ÞÁ VAR EKKI FARIÐ Á INTERNETIÐ AÐ FRÆÐAST UM TURNANA HELDUR HLAUPIÐ ÚT Í BÓKABÚÐ AÐ KAUPA BÆKUR. SIGURJÓN M. EGILSSON FRÉTTASTJÓRI KOM MEÐ KLÓSETTPAPPÍR AÐ HEIMAN HANDA MANN- SKAPNUM. ÞAÐ ER TIL MARKS UM HVAÐ STAÐAN VAR ERFIÐ. Mikil spenna var að glugga í fyrsta tölublaðið 2001. FRÉTTABLAÐIÐ/INGÓLFUR 2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.