Fréttablaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 70
Auðvitað fannst mér sumt
glatað sem gamla fólkið var að
segja þegar ég var yngri en það
hefur samt haft áhrif.
Eiginkona mín,
Ester Zophoníasdóttir
Sílatjörn 14, Selfossi,
áður til heimilis að Ásavegi 16
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
18. apríl síðastliðinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ástþór E. Ísleifsson
Óli Pétur
Útfararstjóri
s. 892 8947
Hinrik Valsson
Útfararstjóri
s. 760 2300
Dalsbyggð 15, Garðabæ
Sími 551 3485
osvaldutfor@gmail.com
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Gróu Jóhönnu Friðriksdóttur
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til heilbrigðisstarfsfólks
á Landspítala Fossvogi fyrir hlýja og
einstaka umönnun.
Auðbjörg Bergsveinsdóttir Jón Baldur Þorbjörnsson
Friðrik Már Bergsveinsson Júlíana Sóley Gunnarsdóttir
Berglind Bergsveinsdóttir Guðjón Grétar Engilbertsson
Árni Örn Bergsveinsson Sólrún Axelsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Vissulega er dálítið sérstakt að hugsa til þess að ég skuli hafa fylgt handrit-unum eftir. – Það er best að drífa sig til jarðar – vel Ísland! – Ég hef oft hugsað
um það í seinni tíð hversu skemmtileg
tilviljun það er en var ekkert meðvituð
um það lengi vel,“ segir Eva María Jóns-
dóttir miðaldafræðingur sem verður
fimmtug á mánudaginn. „Það fyndna
er líka að kona sem fæddist í Danmörku
20. apríl 1971, síðasta daginn sem hand-
ritin voru þar, er komin hingað til lands
og byrjuð að vinna hér í Árnastofnun.
Það er líka tilviljun. Hún er danskur
miðaldafræðingur.“
Þegar glittir í sálina
Hvað kom til að þú fórst í miðaldafræði?
Leyndist alltaf í þér fornaldarþrá þegar
þú varst að fíf last í sjónvarpinu eða
varð einhver sérstakur atburður þess
valdandi?
„Ég held að ég geti þakkað það því að
hafa verið í góðum tengslum við eldri
kynslóðir, afa, ömmur og fleiri ættingja.
Það getur skilað sér. Auðvitað fannst
mér sumt glatað sem gamla fólkið var
að segja þegar ég var yngri en það hefur
samt haft áhrif og ég held að það sé
mikilvægt að þjóðsögur séu lesnar fyrir
börn, að það sé farið með ljóð og gefinn
gaumur að ýmsu sem er eilíft og tilheyrir
okkar arfi. Það getur smitað þau síðar og
orðið til þess að þau velja fag sem tengir
þau enn dýpra við það efni.“
Eva María kveðst hafa reynt að vera
í nútímanum langt fram eftir starfs-
ferli sínum. „Svo þegar maður er búinn
að vera lengi í argaþrasi nútímans og
öllum þeim hraða sem því fylgir og
jafnvel þjarkstemningu á köf lum, þá
er að gott að geta fengið meiri fjarlægð
á umfjöllunarefnin og auðvitað finnst
hún í því sem gerðist í fjarlægri fortíð.
Í öllu er þessi sammannlegi undir-
straumur og það gefur manni mikið að
koma niður á hann reglulega. Ég er bara
eins og gullgrafari. Við erum öll með sál
og það er svo fallegt þegar glittir í sálina
í manneskjunni, þá verður maður svo
bjartsýnn. Það þarf að vera hið varan-
lega ástand.“
Hin línulega dagskrá
Maður Evu Maríu er Sigurpáll Scheving
hjartalæknir, þau eiga samanlagt sjö
börn. Eva María segir þau öll í námi og
búandi í foreldrahúsum. „Flest þeirra
eiga aðra foreldra þannig að þau eru
ekki alltaf hjá okkur en þetta er stórt
mengi sem er tengt tilfinninga- og
blóðböndum,“ segir hún og bætir við:
„Ég er heppin að hafa margt gott fólk í
kringum mig og nóg af viðfangsefnum í
samskiptum og nánd.“
Ekki kveðst hún geta haldið upp
á afmælisdaginn eins og hún hefði
kannski ímyndað sér fyrir COVID-19.
„En ég mun geta haldið upp á hann á
minn hátt. Ég ætla að reyna að upplifa
sólarupprásina og sólsetrið á þessum
degi. Það er hin línulega dagskrá sem
náttúran er að bjóða upp á.“
gun@frettabladid.is
Bara eins og gullgrafari
Eva María Jónsdóttir miðaldafræðingur hélt upp á komu handritanna frá Kaupmanna-
höfn 21. apríl 1971 með því að fæðast fimm dögum seinna. Nú er hún í Árnastofnun.
Eva María ætlar að reyna að upplifa sólarupprásina og sólsetrið á afmælisdaginn. MYND/SIGURÐUR STEFÁN JÓNSSON
SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, var
við eftirlitsstörf við Suðvesturlandið
þennan mánaðardag árið 1967 þegar
hún kom að hópi togara suðvestur
af Eldey. Einn þeirra var Brandur EY
sem var 3,5 sjómílum innan fiskveiði-
markanna. Honum var gefið merki um
að sigla tafarlaust til Reykjavíkur til
að skipstjórinn gæti staðið þar fyrir
máli sínu, en því var ekkert sinnt. Þá
var kallað í varðskipið Þór til að fylgja
togaranum til hafnar í Reykjavík. Fimm
dögum síðar laumaðist Brandur úr
Reykjavíkurhöfn með tvo íslenska
lögreglumenn innanborðs en varðskip
fann togarann síðar sama dag út af
Snæfellsnesi og var honum enn snúið
til Reykjavíkur.
Skipstjórinn var dæmdur í þriggja
mánaða varðhald, fjársekt og til að
sæta upptöku afla og veiðarfæra.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 24 . A P R Í L 19 67
Hasar varð á fiskimiðum Íslands
Herskip Breta siglir á varðskip.
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R30 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT