Fréttablaðið - 24.04.2021, Qupperneq 24
SIKILEYINGAR ERU ÓTRÚ-
LEGT FÓLK OG MÉR VAR
SÍFELLT BOÐIÐ Í HEIM-
SÓKNIR OG MAT TIL
ÓKUNNUGRA, EN SJÁLF VIL
ÉG HELST EKKI FÁ NEINN
HEIM TIL MÍN OG ALLS
EKKI ÓBOÐNA GESTI.
Berglind hefur undanfarið bólusett þjóðina auk þess að undirbúa sjónvarpsþáttaröð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Berglind Guðmunds-dóttir hefur frá árinu 2012 haldið úti upp-skriftavefnum Gulur, rauður, grænn og salt, sem notið hefur mikilla
vinsælda. En Berglind er ekki aðeins
ástríðukokkur því hún er einnig
menntaður hjúkrunarfræðingur
og er ein þeirra sem sneru aftur til
starfa þegar heimsfaraldur skall á.
„Ég er búin að vera í COVID-ráð-
gjöf hjá Læknavaktinni í rúmt ár,
en er núna í bólusetningunum,“
útskýrir Berglind, sem segir mikla
stemningu myndast í Laugardals-
höllinni þessa dagana þar sem
þjóðin er bólusett í skömmtum.
Bólusetningarvinnan gefandi
„Það er svo gefandi að vinna við
þetta enda allir sem mæta svo
glaðir. Það hefur verið gaman að
fylgjast með öllu þessu ferli enda
hefur maður upplifað fólk hrætt og
vonlaust og í þessari miklu óvissu,
yfir svo í það núna að lausnin sé í
sjónmáli og jákvæðir tímar fram
undan.“
Berglind segir það hafa verið
kærkomið að sinna starfi hjúkr-
unarfræðingsins undanfarið, en
hún hafði lengi einbeitt sér alfarið
að starfinu í kringum uppskrifta-
vefinn. „Þó mér finnist mjög gott
að vinna heima þá er það ekki hollt
til lengdar enda verður maður svo
sjálf hverfur. Þetta verkefni kom
upp í hendurnar á mér og hefur
verið yndislegt og þó svo álagið
hafi á köflum verið mikið þá hentar
tarnavinna mér vel. Auðvitað bjóst
maður þó við því að þetta yrði
skemmri tími,“ segir Berglind sem
hefur undanfarið horft þrjá mánuði
fram í tímann.
Þar sem við Berglind sitjum yfir
hádegismat á veitingastað í mið-
bænum og ræðum stemninguna í
Laugardalshöllinni, þar sem Sin-
fóníuhljómsveit Íslands lék fyrir
bólusetta í vikunni, vindur starfs-
maður staðarins sér að okkur. Hún
segist ekki hafa komist hjá því að
heyra að Berglind starfaði við bólu-
setningarnar, sjálf hafi hún mætt í
vikunni og vildi einfaldlega þakka
fyrir sig.
Matur fyrir sálina
Fyrir utan uppgripin í hjúkrunar-
starfinu undanfarið hefur Berglind
verið sjálfstætt starfandi lengi og
eðli málsins samkvæmt er mis-
mikið að gera.
„Stundum hugsa ég að ég ætti að
sækja um venjulegt starf en yfir-
leitt þegar ég ætla að fara að gera
það kemur eitthvað upp sem togar
mig til baka. Ég elska það sem ég er
að gera enda mjög fjölbreytt,“ segir
Berglind, sem hefur verið dugleg
við að skapa sér tækifæri og nýjasta
útspilið er hlaðvarp sem nefnist
Matur fyrir sálina. „Þar ræði ég við
gesti um andleg málefni sem ég hef
mikinn áhuga á. Ég vil að hlaðvarp-
ið virki hvetjandi og þar fái ólíkar
raddir að heyrast.“
Matarástríðan hefur fylgt Berg-
lindi frá unga aldri. „Ég var alltaf að
baksa eitthvað í eldhúsinu, mömmu
minni til mikillar mæðu, enda var
ég ekki jafn dugleg að ganga frá eftir
mig. Ég hef alveg reynt það en það
bara býr ekki í mér, ég er svo spennt
fyrir útkomunni að það tekst aldrei
að ganga frá jafnóðum.
Hugmyndin að vefnum kom
þegar Berglind kom heim frá Barcel-
ona árið 2012. „Þegar við komum
heim í haustlægðina kom þessi
hugmynd til mín. Þetta var eitthvað
sem ég átti bara að gera frekar en að
ég hafi ákveðið það. Ég trúi því að
maður sé svolítið leiddur áfram,“
segir hún einlæg. „Til að endast í
þessu þarf að hafa ástríðuna. Maður
verður að elska þetta,“ segir Berg-
lind, en miklu skiptir að virknin sé
stöðug og fyrstu tvö árin lagði hún
mikið upp úr því að birta minnst
tvær til þrjár uppskriftir á viku.
Matur má vera fljótlegur
Berglind segist sækja sér innblástur
víða og eins aðlaga hinar og þessar
uppskriftir sjálfri sér. „Stundum fæ
ég svo uppskriftir frá vinkonum og
sumt kemur bara frá mömmu eða
hefur fylgt mér heillengi. Eins fæ ég
uppskriftir af erlendum síðum og
merki þær þá þannig.“
Berglind segist hrifnust af Mið-
jarðarhafsmataræðinu. „Ég elska
litríkan mat og þar sem ég er ekki
dugleg að skreyta þá er það kostur
að slíkur matur skreytir sig sjálfur.
Ég hef líka áttað mig á því að matur
er ekkert endilega betri þó maður
sé lengi að matreiða hann. Ég elda í
raun allt nema íslenskan mat,“ segir
hún og hlær.
Talið berst að færni í eldhúsinu
sem ekki sé öllum gefin og segir
Berglind: „Maður á að elta ástríðu
sína og það er óþarfi að skammast
sín fyrir að vera ekki góður í að
elda. Ég er til dæmis ekki að fara
að sjá um bókhaldið fyrir neinn,“
segir hún með áherslu. Hún segist
jafnframt birta uppskriftir án þess
þó að skrifa mikið um þær eins og
sumir vinsælir matarbloggarar
geri. „Sumir geta samið ljóð um
mat en ég er svo grófgerð að ég
er meira: „Hér er matur, hann er
góður – borðaðu hann!“ segir hún
og skellir upp úr.
Fór ein til Sikileyjar
Á fimmtudaginn birtist fyrsti þátt-
ur af fjórum í þáttaröðinni Aldrei
ein í Sjónvarpi Símans, en í þátt-
unum kynnir Berglind sér matar-
menningu Sikileyinga.
Berglind hafði heimsótt Ítalíu í
þó nokkur skipti, en sumarið 2019
voru börnin hennar á leið í mánaðar
sumarfrí til föður síns og hún vissi
ekki hvað hún ætlaði sér að gera á
meðan. „Ég opnaði þá f lugleitar-
vélina Dohop og skrifaði „Take me
anywhere!“. Kom þá upp borgin
Catania á Sikiley. Miðinn þangað
kostaði bara rúmar 20 þúsund
krónur svo ég ákvað að kaupa hann
þó ég vissi ekki hvort ég færi.“
Tveimur dögum fyrir brottför
var Berglind enn óviss en fyrir
hvatningu vinkonu sinnar fór hún
af stað með þá hugsun að þá kæmi
hún bara fyrr heim ef henni líkaði
ekki.
„Ég valdi mér svo gistingu í þrjá til
fimm daga í einu og flakkaði þannig
um alla eyjuna. Þetta var yndisleg
ferð og ég naut mín ein á ferð. Það
er í raun fyndið að þættirnir heiti
Aldrei ein, því ég er alltaf ein,“ segir
Berglind í léttum tón. „Ég vinn ein
og er mikið ein, en er þó aldrei ein-
mana,“ segir Berglind sem er ein-
stæð, fjögurra barna móðir.
Hjörtu og dyr Sikileyinga opin
„Sikileyingar eru ótrúlegt fólk og
mér var sífellt boðið í heimsóknir
og mat til ókunnugra, en sjálf er ég
ekki mikið að taka á móti ókunn-
ugum og vil helst ekki fá óboðna
gesti. Þessi munur fannst mér svo
merkilegur, hér höldum við fundi á
veitingastöðum en þeir vilja fá alla
heim og eru alltaf með opið hjarta.
Ég fór til að mynda í mat til
bændahjóna sem bjuggu í eins og
hálfs klukkutíma fjarlægð frá mér.
Þangað var yndislegt að koma, enda
rækta þau sínar eigin sítrónur, app-
elsínur og kryddjurtir. Eftir kvöld-
verðinn tóku þau ekki í mál að ég
pantaði mér bíl til baka heldur vildu
foreldrar þeirra á áttræðisaldri
endilega skutla mér, sem þau gerðu
og hlógu alla leiðina. Ég efast um að
ég væri til í að skutla vini unglings-
sonarins til Keflavíkur á miðnætti,“
segir Berglind í léttum tón.
Það er augljóst að Berglind er
heilluð af eyjunni og íbúum henn-
ar. „Sikileyingar tala litla ensku
en langar svo að tala við mann og
nota því mikið látbragð. Eyjan er
líka enn svo ósnortin og ekki full af
ferðamönnum.“ Berglind segist hafa
verið hissa á því hversu mikinn fisk
heimamenn borða, jafnvel tvisvar
á dag. Sjálf viðurkennir hún að hafa
stundum langað í eitthvað annað.
„Þá þóttist ég vera vegan.“
Eftir þrjár vikur á Sikiley hélt
Berglind aftur heim, reynslunni
ríkari og langaði að miðla töfrum
eyjunnar til samlanda sinna. Úr
varð svo að í október síðastliðnum
sneri hún aftur ásamt tökumanni
og framleiðanda og má afrakstur-
inn nú sjá í þáttunum Aldrei ein.
Mikilvægt að elta ástríðu sína
Matargerð er ástríða Berglindar Guðmundsdóttur, en einskær tilviljun réð því að hún varði þremur vikum ein
síns liðs á Sikiley árið 2019. Sú reynsla varð til þess að hún hélt þangað aftur nýverið, þá með tökulið með sér.
Björk
Eiðsdóttir
bjork@frettabladid.is
Berglind opnar kampavín með sverði á Gambini-vínekrunni. MYND/AÐSEND
2 4 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð