Fréttablaðið - 11.05.2021, Blaðsíða 2
Karlinn í tunglinu?
Við fyrstu sýn er sem þessi maður þrífi sjálft tunglið en ef betur er að gáð þrífur hann kúlulaga þak Ásmundarsafns við Sigtún í Reykjavík. Safnið var formlega
opnað árið 1983 og er helgað verkum myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar. Ásmundur fæddist árið 1893 og lést árið áður en safnið var opnað. Einstæð
bygging safnsins var áður heimili og vinnustofa Ásmundar, þar eru nú ávallt til sýnis verk hans sem hann ánafnaði Reykjavíkurborg. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Stór sinubruni varð í Heiðmörk í
síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Til stendur að halda bridds-
hátíð á nýjan leik í janúar
2022. Bridgesamband Íslands
vinnur hörðum höndum
að því að fá briddskappann
Mick Jagger til að taka þátt á
mótinu.
thorgrimur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Ársþing Bridgesambands
Íslands var haldið um síðastliðna
helgi eftir ítrekaðar frestanir. Tals-
verð lægð hefur verið í briddssen-
unni síðasta árið vegna fjöldatak-
markana og mörgum mótum hefur
verið aflýst vegna faraldursins.
Á ársþinginu voru þó metnaðar-
fullar áætlanir viðraðar fyrir Bridds-
hátíð Reykjavíkur í janúar 2022 og
meðal annars stendur til að halda
briddsskóla að nýju í haust með
ókeypis byrjendanámskeiði fyrir
25 ára og yngri. Bridgesambandið
vonast jafnframt til þess að fá enska
rokksöngvarann Mick Jagger til að
spila á mótinu.
Jagger er kunnur briddsunn-
andi og hefur fengið nasaþefinn
af Íslandi á síðustu árum þar sem
hann hefur drukkið íslenskt vatn
á tónleikum sínum víðs vegar um
heim. Meðal annars svalaði hann
sér á vatni frá Iceland Glacial á tón-
leikum á Kúbu árið 2016.
Söngvarinn heimsfrægi kom til
Íslands árið 1999. Þá sigldi hann á
snekkju sinni til Ísafjarðar, þar sem
hann skoðaði meðal annars sjó-
minjasafnið í Neðstakaupstað og
bragðaði á kæstum hákarli. Hann
ku hafa spýtt kræsingunum þeim út
úr sér en sjónarvottur náði að hirða
munnbitann og setja í krukku til
varðveislu.
Mick Jagger er ekki eini mektar-
maðurinn sem reynt hefur verið að
fá til Íslands á briddsmót.
Bridgesambandið reyndi meðal
annars að ná sambandi við Bill
Gates, stofnanda Microsoft, þegar
hann heimsótti Ísland árið 2016 og
fá hann til að sækja mótið, en hafði
þá ekki erindi sem erfiði.
Einnig hefur verið reynt að fá
bandaríska fjárfestingakónginn
Warren Buffett til að spila á bridds-
mótinu. Sá af þakkaði boðið pent
og kvaðst vilja ferðast sem minnst,
enda kominn á tíræðisaldur.
Tíminn mun leiða í ljós hvort
betur heppnast með Jagger. Jafet S.
Ólafsson, forseti Bridgesambands-
ins, segir að líkt og í laxveiðinni
dugi ekki annað en að „kasta út
góðri flugu“ til að eitthvað gerist.
Jafet vonast til að slakað verði á
samkomutakmörkunum áður en
mótið verður haldið í Hörpu í janú-
ar 2022. Mótið var stofnað árið 1984
og var þá haldið á Hótel Loftleiðum.
Þá var lítið um ferðamenn á Íslandi
og auðvelt að fá aðstöðu á hótelum
fyrir keppnina en það hefur reynst
erfiðara á síðustu árum.
Jafet bendir á þann ljósa punkt
á faraldrinum að það kunni að
reynast auðveldara að útvega rými
á næsta ári vegna fækkunar ferða-
manna eins og ástandið er. n
Vilja Jagger á briddsmótið
Briddshátíðin var haldin í Hörpu í janúar 2019. Aðsóknin var með besta móti
en ekki er þó vitað til þess að Mick Jagger hafi mætt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ef ekki er kastað út
góðri flugu, þá gerist
ekki neitt.
Jafet S. Ólafsson
vonast til þess að
Mick Jagger láti
sjá sig.
hjorvaro@frettabladid.is
VEÐUR Veðurspá gerir ekki ráð fyrir
úrkomu næstu daga sem breyta
muni því að jarðvegur verði áfram
þurr og því er áframhaldandi hætta
á sinu- og gróðureldum á því svæði
þar sem óvissustig er í gildi.
„Á fimmtudag og föstudag er hins
vegar spáð skúrum. Sú úrkoma mun
hins vegar ekki ná að bleyta upp í
jarðveginum að neinu ráði,“ segir
Birgir Örn Höskuldsson, veður-
fræðingur hjá Veðurstofunni.
„Það er útlit fyrir áframhaldandi
næturfrost sem verður til þess að
það næst ekki mikil spretta í jarð-
veginn. Það eru almannavarnir
sem sjá um að lýsa yfir óvissustigi
og ákvörðun um að breyta því stigi,“
segir Birgir.
Hann segist telja líklegt að óvissu-
stigið muni gilda út vikuna hið
minnsta. „Veðurfræðingar eru ekki
alveg sammála um horfur svo langt
fram í tímann. Það er mjög óvana-
legt að það líði svona margir dagar í
röð hér á landi án teljandi úrkomu,“
segir Birgir Örn enn fremur. n
Lítil væta í kortunum
Borgarferðir í haust
Bucharest
Prag
Frá 79.990 kr
Flórens
Berlin
7.okt
30.sept
21.okt
4.nóv
Í beinu flugi
www.aventura.is
Sundagarðar 2 - 104 Reykjavík
Sími: 556 2000
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Frá og með deginum í dag
er hægt að sækja nýja uppfærslu á
smitrakningarappi Embættis land-
læknis og almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra, Rakning C-19.
Með uppfærslunni nýtir appið
Blue tooth-virkni til að styðja við
rakningu smita.
Nýja útgáfan gerir smitrakn-
ingarteymi almannavarnadeildar
auðveldara fyrir að rekja smit á milli
aðila þegar tengsl eru ekki þekkt og
því erfiðara að rekja smitið.
Í tilkynningu frá landlækni segir
að sem fyrr verði „enginn afsláttur
gefinn á vernd persónuupplýsinga“.
Enn verði gögn vistuð í símtækinu
sjálfu í aðeins fjórtán daga.
Bluetooth-tækni verður notuð
til að reikna út fjarlægð milli tækja.
Komi upp smit hjá einstaklingi
með appið biður rakningarteymið
um leyfi til að skoða gögn. Ef sím-
inn hefur verið í minna en tveggja
metra fjarlægð í 15 mínútur við
annan síma með appið kemur upp
tilkynning hjá eiganda þess tækis. n
Auðveldara verði
að rekja smit
Notast verður við
bluetooth-tækni til að
rekja smit.
2 Fréttir 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGUR