Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 6
RAFMAGNAÐ ÆVINTÝRI MEÐ ALVÖRU 4X4
Einu rafknúnu Plug-In Hybrid jepparnir í sínum stærðarflokki með lágt drif.
Ótrúlegt verð á bílum hlöðnum lúxusbúnaði.
JEEP COMPASS PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.999.000 KR.* JEEP RENEGADE PLUG-IN HYBRID VERÐ 5.499.000 KR.*
*G
ildir m
eðan birgðir endast, hvítur R
enegade, svartur Com
pass Lim
ited.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Hefja þarf vöktun og mæl
ingar vegna hugsanlegra
jökulhlaupa úr lóni sem
hefur verið að myndast frá
aldamótum við Hafrafell
undir Langjökli. Með þessu
gæfist tveggja og hálfrar
klukkustundar fyrirvari til
að bregðast við hættunni sem
þá kynni að steðja að sumar
bústaðabyggðinni í Húsafelli.
gar@frettabladid.is
NÁTTÚRA „Kæmi til stærra hlaups
gæti skapast hætta í Húsafellsskógi
og er því æskilegt að gert verði
hættumat fyrir sumarbústaða
byggðina,“ segir í skýrslu Veðurstofu
Íslands og fleiri stofnana vegna mik
ils jökulhlaups úr Hafrafellslóni við
Langjökul í fyrrasumar.
Jökulhlaupið sem varð úr Hafra
fellslóni 18. og 19. ágúst í fyrra fór
í Svartá og síðan í farveg Hvítár og
með henni niður eftir Borgarfirði.
„Hlaupvatn fyllti farveg árinnar
undir Hvítárbrú hjá Húsafellsskógi
en neðst í Hvítársíðu hækkaði
vatnsborð um einn metra og eðja
barst sums staðar upp á engjar,“
segir í skýrslunni. Dauðir laxar bár
ust upp á engjar neðan Hraunfossa.
Haft er eftir Húsfellingum að
þetta sé mesta f lóð sem vitað sé
um undir brúna við Kaldadalsveg.
Talið sé að hlaupvatnið hafi verið
3,4 milljónir rúmmetra. Borist hafi
fram verulegt magn af hlaupseti
sem búast megi við að verði upp
spretta rykmisturs og móðu um
nokkurn tíma.
Hafrafellslón hefur verið að
myndast frá síðustu aldamótum
vegna hörfunar jökulsins að því er
segir í skýrslunni. „Hætta er á fleiri
hlaupum úr lóninu á komandi
árum og er lagt til að lónið verði
vaktað að sumarlagi með athugun
tunglmynda. Einnig er æskilegt að
setja upp vefmyndavél og ef til vill
vatnshæðarmæli við lónið þegar
hlaup er talið nálgast,“ leggja sér
fræðingarnir til.
Hraði hlaupsins í fyrra er áætlað
ur þrír til fjórir metrar á sekúndu að
jafnaði frá jökli niður að Hvítárbrú
við Kaldadalsveg.
„Ljóst er að ekki mátti miklu
muna að hætta skapaðist við
Kaldadalsveg og norðarlega í
Húsafellsskógi við hlaupið,“ segir
í skýrslunni.
„Niðurstöður benda til að um 2,5
klukkustundir gæfust til umráða til
að vara íbúa og ferðafólk á Húsa
fellssvæðinu við, ef búnaður væri
til staðar við lónið sem sendi við
vörun um leið og vatnsborð þar
tæki að lækka,“ segja skýrsluhöf
undar.
Sagt er að full ástæða virðist vera
til frekari vöktunar með fjarkönn
un, vatnshæðarmælingum og vef
myndavélum. Miðað við hlaupið í
fyrra sé aðallega hætta á eignatjóni
fremur en slysum á fólki.
„Þó er rétt að upplýsa fólk á svæð
inu um hættu á áframhaldandi jök
ulhlaupum úr lóninu og að næsta
hlaup kunni að geta orðið stærra
en hlaupið sem hér er fjallað um,“
segja sérfræðingarnir. „Umsjónar
menn á Húsafellssvæðinu og ferða
fyrirtæki sem þar starfa þurfa að
vita af hlauphættunni og tryggja
þarf að upplýsingar geti borist
skjótt milli þessara aðila og nátt
úruvaktar Veðurstofunnar.“
Bent er á það í skýrslunni að
Langjökull hafi hopað stöðugt
á síðustu 25 árum. Líklegt sé að
lægðin við Hafrafell sem lónið fyllti
síðla sumars 2020 stækki til suðurs
við frekara hop jökulsins. n
Hlaup úr jökullóni ógn við Húsafell
Mikil ummerki sáust í farvegi Hvítár við Kaldadalsveg. MYND/VEÐURSTOFAN
Brú við Húsafellsskóg
Tunga
Húsafell
Hvítá
Svartá
Geitland
Svartárjökull
Hafrafell
Lónið
Hafragil
Flosagil
Flosavatn
Flosaskarð
Geitá
Sandar
Meðalhraði á stóra jökulhlaupinu úr Hafrafellslóni er talinn hafa verið 2 til 3 metrar á sekúndu. MYND/VEÐURSTOFAN
hjorvaro@frettabladid.is
LANDBÚNAÐUR Sólríkt hefur verið
síðustu vikur, næturfrost og þurrt í
veðri. Af þeim sökum hafa sinu og
gróðureldar geisað á nokkrum stöð
um á höfuðborgarsvæðinu undan
farna daga og almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir
óvissustigi vegna veðursins.
Svæðið þar sem óvissustigið er í
gildi nær frá Eyjafjöllum að sunnan
verðu Snæfellsnesi. Almenningur
hefur verið hvattur til að sýna aðgát
með opinn eld á þessum svæðum og
öðrum þar sem gróður er þurr.
Í gær brann sina og gróður á
svæði á stærð við tvo fótboltavelli
í Guðmundarlundi í Kópavogi og
í síðustu viku var umfangsmikill
eldur í Heiðmörk sem talinn er vera
sá stærsti frá upphafi.
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtakanna, segir að næstu
dagar muni ráða því hvort rask
verði á plönum bænda hvað útirækt
varðar.
„Fyrst og fremst höfum við auð
vitað miklar áhyggjur af því hvað
gróður er að taka illa við sér um
allt land. Plön hafa ekki enn raskast
hvað útirækt varðar en það fer að
líða að því að svo verði,“ segir Gunn
ar um stöðu mála.
„Það er hins vegar þannig að
bændur sem ætla að sá fyrir græn
meti geta ekki beðið mikið lengur
eftir úrkomu. Svo er næturfrostið að
gera bændum erfitt fyrir en frostið
gerir hlutina erfiðari á ökrunum,“
segir hann enn fremur.
„Staðan er verst í uppsveitum
Árnessýslu en þar fara 80 prósent
grænmetisframleiðslu í landinu
fram. Svo heyrði ég í bændum
norðan heiða í dag sem segja nætur
frostið hafa töluverð áhrif á störf
þeirra,“ segir formaðurinn.
„Þó svo að það sé sólríkt og þurrt
er lofthitinn ekki mikill og nætur
frostið er töluvert.
Það var til að mynda níu gráða
frost á Þingvöllum um helgina. Nú
liggjum við bara á bæn og vonum
að það fari að hlýna á næturnar og
rigna á daginn,“ segir Gunnar. n
Bændur orðnir áhyggjufullir yfir áframhaldandi þurrkatíð
Gunnar segir bændur uggandi.
thorgrimur@frettabladid.is
COVID-19 Ýmsar tilslakanir á sótt
varnareglum tóku gildi í gær. Fjölda
takmarkanir fóru úr 20 í 50 manns,
sund, baðstöðum og líkamsræktar
stöðvum var leyft að taka við þrem
ur fjórðu af hámarksfjölda gesta og
hámarksfjöldi þátttakenda í íþrótt
um og sviðslistum var hækkaður úr
50 upp í 75 í hverju hólfi.
Þá fór hámarksfjöldi gesta á sitj
andi viðburðum úr 100 í 150 manns
og opnunartími veitingastaða var
lengdur um klukkustund. Heimilt
er nú að taka á móti nýjum gestum
til klukkan 22 og allir verða að hafa
yfirgefið staðinn klukkan 23.
Nándarregla er áfram almennt
tveir metrar og grímuskylda og
leiðbeiningar um grímunotkun
breytast ekki.
Fá tilfelli hafa greinst utan
sóttkvíar undanfarna daga sam
kvæmt minnisblaði sóttvarna
læknis til heilbrigðisráðherra.
Í gær voru 100 manns í einangrun
með virkt Covid19 smit. Sólar
hringinn á undan greindust tvö
innanlandssmit. n
Nýjar tilslakanir á
sóttvarnareglum
50
Fimmtíu manns mega
nú koma saman í stað
tuttugu áður.
Barir mega nú hafa opið til kl. 23.00.
6 Fréttir 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGUR