Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 22

Fréttablaðið - 11.05.2021, Side 22
Við áttum frábært tímabil í hand- boltanum þar sem liðið stóð sig frábærlega eftir erfiða byrjun en við enduðum sem deildar- meistarar. Anton Rúnarsson Fálkar og Valkyrjur eru annars vegar hópur feðra og hins vegar kvenna í Val. Fálkarnir sinna fjáröflunum og félagsstarfi fyrir félagið og Valkyrjur stuðla að jafnrétti innan félagsins ásamt því að veita konum bæði vett- vang og rödd. „Fálkarnir eru félagsskapur feðra í Val, stofnaður árið 2009 til að styðja við barna- og unglinga- starf Vals. Það gerum við með því að safna fé með ýmsum hætti og veitum því í styrki,“ segir Einar Logi Vignisson, formaður Fálka. „Yfirgnæfandi meirihluti Fálkanna er ekki Valsarar, en þeir eiga börn í Val og þess vegna gerast þeir Fálkar. Þetta eru feður sem vilja láta gott af sér leiða og það er góður andi í klúbbnum. Það gefur ákveðinn slagkraft í svona sjálfboðastarf að hafa formbundinn félagsskap. Virkir Fálkar eru um 50 og það er kosin stjórn á hverju ári sem sér um að manna vaktir á grillið yfir sumarið og í aðrar fjáraflanir,“ segir Einar. „Meðlimir leggja til vinnu sína og greiða jafnframt mánaðarleg félagsgjöld sem eru notuð til að standa straum af kostnaði, en afgangurinn fer í styrki. Þar fyrir utan reynum við að styðja félagið með öðrum hætti og tökum t.d. að okkur ýmis sjálfboðastörf og stöndum einnig fyrir viðburðum fyrir félagsmenn á veturna með fyrirlestrum o.fl. Við fáum miklar þakkir frá Valsmönnum fyrir það sem við erum að gera og það eflir menn. Fálkarnir standa í þessu vegna þess að þetta er gaman. Það skiptir máli að allir séu glaðir og jákvæðir, þá nenna menn þessu,“ segir Einar. „Svo endar þetta auðvitað með því að flestir Fálkar verða miklir Valsarar, það er ekki hjá því komist í þessum öfluga klúbbi.“ Vettvangur Valskvenna „Valkyrjur er félag kvenna í Val sem leggja sérstaka áherslu á jafn- réttisstefnu Vals. Félagsskapurinn var stofnaður árið 2012 og í dag eru meðlimir 140,“ segir Magda- lena Kjartansdóttir, formaður Valkyrja. „Valkyrjur taka þátt af ýmsum ástæðum og það er mikilvægt að starfsemi Valkyrja sé fjölbreytt svo breiður hópur geti fundið þar tilgang og verkefni við hæfi. Valkyrjur vinna að verkefnum sínum á ýmsan hátt. Þar er vett- vangur fyrir konur til að ræða mál- efni félagsins, þær beita sér fyrir kynjajafnrétti innan Vals og stuðla að því að auka sýnileika kvenna og fjölga þeim í stjórnum, ásamt mörgu fleiru,“ segir Magdalena. „Valkyrjur hafa komið að ýmsu gegnum árin, bæði hlutum sem tengjast þjónustu á leikjum og ýmsu félagsstarfi. Stelpur hafa notið betri aðstöðu og aðbúnaðar síðustu ár en konur koma enn í minna mæli að ákvörðunartöku innan deilda Vals. Það gengur hægt en örugg- lega að bæta úr því,“ segir Magda- lena. „Jafnrétti er mikilvægt innan íþróttahreyfingarinnar sem og annars staðar. Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt að börn og ungmenni taki þátt í skipulögðu íþróttastarfi og það er bæði mikilvægt að halda í þann hóp sem hefur tekið þátt í starfi Vals og bæta í hann,“ segir Magdalena. „Við hvetjum konur til að ganga til liðs við okkur til að kynnast starfi Vals og hafa gaman saman.“ Öflugur stuðningur við starfið Magdalena Kjartansdóttir, formaður Valkyrja, og Einar Logi Vignisson, formaður Fálka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Atvinnumaðurinn Anton Rún- arsson var valinn íþróttamaður ársins hjá Val í fyrra. Anton er ákaflega stoltur af viðurkenning- unni, segir hana mikinn heiður og vonar að hann geti verið fyrir- mynd fyrir yngri iðkendur. Anton er 32 ára gamall, þriggja barna faðir og er kvæntur Sigrúnu Gróu Skúladóttur. Hæfileikar hans á sviði boltaíþrótta komu fljótlega í ljós en Anton var ekki nema sjö ára gamall þegar hann gekk til liðs við Val. „Ég ólst upp fyrstu sex árin á Akureyri en flutti til Reykjavíkur sjö ára gamall og byrjaði í 2. bekk í Hlíðaskóla. Ég var í bæði hand- bolta og fótbolta upp alla yngri flokka Vals og varð yngsti leik- maður í sögu Vals í fótboltanum til að skrifa undir samning við Val á sínum tíma.“ Margir boltar á lofti Fótboltinn laut þó að lokum í lægra haldi fyrir handboltanum. „Á endanum hætti ég í fótbolta til að einbeita mér að handboltanum þar sem allir mínir bestu vinir voru á fullu. Handboltinn hefur alltaf verið sigursæll í öllum flokkum innan félagsins og unnum við ófáa titla saman í yngri flokkum sem hélt áfram þegar ég byrjaði að spila í meistaraflokknum.“ Anton hefur spilað sem atvinnu- maður í fjögur ár, fyrst tvö ár í Danmörku og síðar tvö ár í Þýska- landi. Eftir árin í atvinnumennsk- unni sneri hann aftur heim og kláraði íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík ásamt því að klára öll þjálfarastigin hjá Handknattleiks- sambandinu. Anton hefur ekki síður getið sér góðan orðstír sem þjálfari yngri flokkanna hjá Val undanfarin ár. Þegar hann er spurður að því hver sé lykillinn að því að vera góður þjálfari nefnir hann nokkra mikil- væga eiginleika. „Að elska það sem þú ert að gera og tilbúinn að vera til staðar fyrir yngri iðkendur félagsins sem margir hverjir eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttum. Að vera heiðarlegur og sanngjarn skiptir miklu máli og að vera góð fyrir- mynd fyrir aðra.“ Stoltur og hrærður Anton segir engin orð ná yfir þá tilfinningu að hafa hlotið viður- kenningu sem íþróttamaður Vals árið 2020. „Tilfinning var ólýsanleg. Ég get eiginlega ekki lýst því hversu stoltur og hrærður ég er. Þegar ég var lítill strákur sá maður allar hetjurnar sem voru að vinna alla þessa titla í öllum greinum innan félagsins sem maður leit upp til og dáðist að. Það voru ófáir leik- irnir sem maður var mættur á til að horfa á hetjurnar og hvetja þá áfram. Það er mikill heiður að vera ein af þeim í dag og vonandi getur maður verið hvatning fyrir yngri iðkendur félagsins,“ segir Anton. „Valur er stærsta félag á Íslandi með marga frábæra íþróttamenn innan félagsins í öllum deildum sem hefðu einnig getað orðið fyrir valinu. Við áttum frábært tímabil í handboltanum þar sem liðið stóð sig frábærlega eftir erfiða byrjun en við enduðum sem deildarmeist- arar þar sem margir leikmenn spiluðu vel og eiga stóran þátt í þessari viðurkenningu.“ Anton tiltekur nokkur augna- blik sem standa upp úr á ferli hans sem Valsari. „Eftir að ég koma heim úr atvinnumennskunni árið 2016 þá urðum við Íslands- og Bikarmeistarar árið 2017 eftir svakalega úrslitakeppni við FH sem var algjörlega frábær árangur. Sama ár náðum við einnig langt í Evrópukeppninni og spiluðum í undanúrslitum á móti Turda frá Rúmeníu. Að hljóta nafnbótina Íþrótta- maður Vals árið 2020 er augnablik sem ég gleymi aldrei og mesti heiður sem íþróttamaður innan félagsins getur fengið. Ég er ótrú- lega stoltur og þakklátur að hafa fengið þá viðurkenningu.“ Aftur út til Þýskalands Anton skrifaði nýverið undir samning við TV Emsdetten á nýjan leik. Hann segir fyrirhugaða búferlaflutninga leggjast vel í sig og fjölskylduna, enda ekki í fyrsta Augnablik sem ég gleymi aldrei Anton hefur starfað sem atvinnumaður í handbolta í fjögur ár. MYND/AÐSEND skipti sem þau leggja land undir fót. „Ég spilaði með TV Emsdetten í tvö ár áður en ég kom aftur heim í Val. Við þekkjum klúbbinn og bæinn mjög vel og okkur leið ótrúlega vel þarna. Það er spenn- andi að fara aftur utan í atvinnu- mennskuna og halda áfram að þróa mig og bæta sem leikmann. Elsta stelpan okkar var í leikskóla úti og strákurinn okkar fæddist þarna. Tengingin við liðið og bæinn er því mjög sterk og erum við mjög spennt fyrir þessu ævintýri sem er fram undan. Það er auðvitað ekkert auðvelt að flytja út með þrjú börn og koma öllum fyrir í skóla, ásamt öðru tungumáli og mun eflaust taka smá tíma að aðlagast. En þetta verður ævintýri og gaman að leyfa þeim að kynnast öðru umhverfi.“ 6 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVALUR 110 ÁR A

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.