Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.05.2021, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 11.05.2021, Qupperneq 24
Landsliðskonan Elín Metta Jensen hefur verið í Val alla sína fótboltaævi. Hún á margar dýrmætar minningar úr Val og segir þær ekki síst tengjast liðs- félögum og fólkinu í Val. „Ég var tæplega 5 ára gömul þegar ég fór á mína fyrstu æfingu hjá Val, og ég man að hún var á malar- vellinum. Ég man samt lítið eftir æfingunni sjálfri en eftir þetta tók ég nánast alltaf boltann með mér þangað sem ég fór. Eldri systkini mín voru bæði í fótbolta og pabbi var mikill Valsari þannig það var ekki beint mikil uppreisn fólgin í því að ég skyldi ákveða að byrja að æfa fótbolta með Val,“ segir Elín Metta Jensen, Valsari frá fyrstu tíð og landsliðskona í knattspyrnu. „Það dýrmætasta sem ég á úr Val eru minningarnar með fólkinu þar, og þá sérstaklega liðsfélögunum. Mér finnst ég hafa lært ýmislegt af þeim og af sumum þjálfurum líka. Mér finnst margar fótboltastelpur sem ég þekki, bæði úr Val og öðrum klúbbum, búa yfir gríðarlega mik- illi orku og vilja til að gera hlutina vel. Það er mjög hvetjandi að vera í kringum svoleiðis manneskjur.“ Sætir sigrar og æskuminningar Öll sumur æskunnar var Elín Metta vön að fara í Knattspyrnuskóla Vals með vinkonum sínum úr Val. „Ég á margar góðar minningar frá löngum sumardögum þar sem við æfðum oft tvisvar á dag, og kíktum jafnvel í sund eða Naut- hólsvíkina eftir æfingar. Þetta var oft og tíðum mikið álag en mér fannst þetta virkilega skemmti- legt,“ segir Elín Metta og rifjar upp sína kærustu minningu úr Val, þegar kemur að félags- og liðsand- anum. „Mér fannst mjög skemmtilegt að fara á Dana Cup í 3. flokki. Ferð- in var í heild sinni mjög skemmti- leg enda margar af mínum bestu vinkonum með í för. Það voru tveir Römm er taugin í Val Elín Metta segir hvetjandi að vera í kringum fótboltastelpurnar í Val sem vilji alltaf gera vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Elín Metta hér í harðri baráttu um boltann með meistara­ flokki Vals, en hún leikur einnig með kvennalandsliði Íslands í knatt­ spyrnu. MYND/ AÐSEND Valskórinn var stofnaður haustið 1993. Góður andi ríkir í kórnum og margir kórfélagar hafa verið með frá upphafi. Kór- inn er blandaður kór sem æfir í Friðrikskapellu á Hlíðarenda. Helga Birkisdóttir, formaður kórsins, gekk til liðs við kórinn árið 2004 á sama tíma og Bára Gríms- dóttir kórstjóri sem enn stjórnar kórnum. Helga segir að kórinn skipi að mestu leyti fólk sem er tengt Val á einhvern hátt, margir hafi æft með félaginu eða átt börn þar. En í kórnum er líka fólk sem hefur enga beina tengingu við Val. „Við erum blandaður fjögurra radda kór og æfum einu sinni í viku, á mánudögum. Vetrarstarfið endar svo á glæsilegum vortón- leikum,“ segir Helga. „Við höldum jólatónleika í kapellunni en vor- tónleikarnir hafa undanfarin ár verið í Háteigskirkju og þá erum við með einsöngvara með okkur. Við leggjum mikinn metnað í tón- leikana og söngvararnir trekkja að. Við höfum fengið Ragga Bjarna, Andreu Gylfa, Diddú og Egil Ólafs- son til að syngja með okkur svo dæmi séu nefnd. Ragnheiður Grön- dal ætlaði að syngja með okkur í fyrra en það varð að setja það á ís út af Covid.“ Stjórnandi kórsins, Bára Gríms- dóttir, er tónskáld og hefur kórinn sungið mikið af lögum sem hún hefur samið en lagavalið er annars mjög fjölbreytt. „Svo er fastur liður á vortón- leikunum að syngja alltaf lag eftir Sigfús Halldórsson. Það er svona Góður andi í Valskórnum Helga Birkis­ dóttir, formað­ ur Valskórsins, segir góðan anda í kórnum þrátt fyrir heimsfaraldur. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN hlutir sem stóðu upp úr: í fyrsta lagi fórum við á geggjað diskótek sem var haldið fyrir mótsgesti og í öðru lagi unnum við mótið sem var algjört æði,“ segir Elín Metta og hlær við, sællar minningar. Leikgleði og barátta í hávegum Elín Metta mælir hiklaust með því að stelpur sem hafa áhuga á fót- bolta og því að hreyfa sig komi og prófi að æfa með Val. „Heilt yfir þykir mér leikgleði og barátta einkenna þær knatt- spyrnukonur sem ég hef spilað með í Val. Þegar ég var yngri voru Dórurnar tvær (Dóra María Lárus- dóttir og Dóra Stefánsdóttir) ásamt Margréti Láru í miklu uppáhaldi. Ég leit líka mikið upp til Kötu Jóns,“ segir Elín Metta um fyrirmyndir sínar úr röðum kvennaboltans í Val. Spurð um sætasta sigurinn segir Elín Metta: „Með Val er það örugglega Íslandsmeistaratitillinn 2019 og með landsliðinu er það sennilega sigurinn okkar á Þjóðverjum um árið.“ Orð séra Friðriks gott veganesti Elín Metta lýkur þriðja ári í læknis- fræði í vor. „Ég get ekki sagt að ég hafi sér- stakan áhuga á íþróttaálagi og meiðslum, það eru aðrir hlutir í læknisfræðinni sem mér finnst skemmtilegri. Almennt er ég þó frekar áhugasöm um heilbrigðan lífsstíl og eftir rúm tuttugu ár af nánast stanslausum fótbolta- æfingum hef ég komist að því að hreyfing er mjög mikilvæg fyrir andlega og líkamlega heilsu, að minnsta kosti í mínu tilviki.“ Hún er og verður alltaf Valsari. „Já, römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til. Það er svo reyndar misgaman á æfingum en þegar Pétur Péturs og Eiður Ben hafa vit á því að hafa reitarbolta og spil á æfingu er yfirleitt skemmti- legt að vera til. Annars finnst mér heilt yfir alltaf jafn gaman að vinna fótboltaleiki,“ segir Elín Metta. Afmælisósk hennar til Vals á 110 ára afmælinu er eftirfarandi: „Ég vona að Valsarar hafi orð séra Friðriks í huga og láti ekki kappið bera fegurðina ofurliði.“ tenging við félagið,“ segir Helga. Annar fastur liður hjá Val- skórnum er að syngja við athöfnina þegar íþróttamaður Vals er valinn á gamlársdag. „Við höfum samt ekki mikið verið að mæta á pallana og halda uppi söngnum þar. En það hefur verið rætt í gríni að við ættum að mæta á leiki og syngja Valssöng- inn,“ segir Helga og hlær. Í kórnum ríkir góður andi en æfingar hafa þó verið með heldur óhefðbundnum hætti undanfarið. „Vegna samkomutakmarkana höfum við hist í minni hópum í kapellunni þegar það hefur verið hægt. En svo höfum við líka hist í gegnum fjarfundarbúnað og sungið hver í sínu horni. Það hefur því vantað svolítið upp á þetta félagslega sem venjulega tengist kórstarfinu,“ segir Helga. „Í venjulegu árferði höldum við kórpartí þar sem mikið er sungið. Eins hittumst við oft eftir tónleika og borðum saman. Við höfum haldið æfingahelgar þar sem farið er út á land, gist, æft fyrir tónleika og haft gaman saman.“ Helga segist hlakka til þegar hefðbundið kórstarf getur hafist á ný og bætir við að lokum að þau séu alltaf tilbúin að taka á móti nýju fólki í kórinn. Við erum bland- aður fjögurra radda kór og æfum einu sinni í viku. Afmælisóskin er sú að Valsarar hafi orð séra Friðriks ætíð í huga og láti ekki kappið bera fegurðina ofurliði. Elín Metta Jensen 8 11. maí 2021 ÞRIÐJUDAGURVALUR 110 ÁR A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.